Tíminn - 10.12.1972, Blaðsíða 3

Tíminn - 10.12.1972, Blaðsíða 3
W$gÍ!Í fyrsta breiðskífa Náttúru kemur út eftir helgina Hljómsveitin Náttúra er um þessar mundir að senda frá sér sina fyrstu breiðskifu. Verður hún leyst út næstkomandi mánudag og kemur væntanlega i hljóm- plötuverzlanir seinna sama dag eða á þriðjudag. Alls eru 9 lög á plötunni, öll samin af meðlimum hljómsveitarinnar. Hafa þeir einnig samið suma textana, en flestir þeirra eru samdir af Albert Aðalsteinssyni, rótara hljóm- sveitarinnár Svanfriðar. Platan ber heitð TÖfralykillinn (The Magie Key), eftir samnefndu lagi Karls Sighvatssonar. Hljómsveitin boðaði frétta- menn á sinn fund siðdegis á fimmtudag i tilefni nýju plötunnar. Eintak af henni hafði þeim ekki borizt i hendur, en plötuumslagið var til staðar. Er það i svart/hvitu og túlkar heiti plötunnar, en báðum megin á þvi er mynd af lykli. i heild er það vel unnið og allnýstárlegt, en Egill Eðvarðsson annaðist hönnun þess sem og plötumiða. Á baksiðu umslagsins er auglýsingu frá Sony-umboðinu hér i bæ, J.P. Guðjónsson h.f. og kvaðst hljóm- sveitin vilja færa þvi sérstakar þakkir fyrir það framtak. Viðstöddum gafst kostur á að hlýða á nokkur lög hinnar nýju plötu af segulbandi. Eins og áður segir eru lögin niu og er „spilatimi” plötunnar um 40 minútur. Auk The Magic Key, sem Náttúrumenn segja að sé „commercial” lag plötunnar, má nefna t'onfusion.lag og texti eftir Sigurð Ólafsson, bassaleikara hljómsveitarinnar, eina lagið eftir hann á plötunni, að likindum það bezta,segir K. Sighvatsson. Tigcr er tileinkað hundi, er lézt fyrir fáum árum og var i eigu söngkonunnarShadyOwens. Enn má nefna Out af Thc Darkness og (iethsemanc Garden. Eru textar þeirra beggja eftir Ólaf Garðarsson — K. Sighvatsson: „Frábærir textar og óvenjulegir að gerð.” Eins og framangreint ber með sér eru allir textar plötunnar á ensku. Upptaka plötunnar hófst um miðjan október og tók tiu daga. Fór hún fram i Orange Studio i London. Annaðist hljómsveitin ein allan undirleik og útsetningar. Geta má þess, að i sumum lögunum leikur Karl Sighvatsson á „galdratækið” Moog Sv nthesiser. Náttúra gefur plötuna út sjálf, og er heildar- kostnaðurinn við gerð hennar yfir hálfa miljón að sögn Karls. Næstkomandi mánudag mun Magnús Þórðarson kynna Töfra- lykilinn og spjalla við Náttúru- menn i þættinum Popphornið, en hann hefst kl. 16.25. Minna má á, að skipan hljóm- sveitarinnar er þessi: Sigurður Árnason, bassi, Karl Sighvatsson, orgel, söngur Shady Ownes, söngur, Ólafur Garðarsson, trommur, Björgvin Gislason, gitar. Rótari hr. Einar Gunnarsson og umboðsmaður Á- mundi Ámundason. Stutt kynning af plötunni lofar góðu, en fjallað verður nánar um efni hennar hér siðar. Kalli, olafur, Björgvin, Shady og Sigurður. Kalli: Maður verður lika að hugsa uin söluna, og ini annað að ræða en liafa a.ni.k, eitt „coinniercial" lag á plötu,... (Tinianiynd: Itobert) ÓSGEIR iRKOBSSOn ■■ytir ýi-ú'.-'r'* ' ,., i, . :•////,/,:///,W'/,,",. "/'/ > ',/•'' ■&■//&■■!•>/.■! . ■■■■■■ ■■ w/ffWff-ff/w**//.-; A SVALKÖLDUM SÆVI UM BORÐI SIGURÐI HRAFNISTU MENN II Efni III. bindis: . . . og þá hljóp á dauða færið. Þeir vita það fyrir vestan. Ótæmandi auðiuvi í sjónum. Það fiskast. ekki alltal þótt róið sé. Þar hefur gifta fylgt nafni . . . að gefast aldrei upp. Sjómannabók í sérflokki Bindin öll, I—III, sjálf- sögð á hverju sjómanna heimili. Eldri sem syngri lesa til ánægju og fróðleiks frásagnir gamlii fólksins Þar kennir margra gr;pra Lifsreynslan er ótrúlega fjölbreytt og cklci alltaf mulið undir okkar forfeður. Svo er það Lási kokkur sem krydd i alvöruna. Bækur Jónasar um sjóslys —- svaðilfarir og hetjudáðir á sjó eru orðnar sjö að tölu og óþarft að kynna. Hreysti og karlmennsku þrek, Fangaskipið, Stórslys á Saxelfi, Vitaskipið Elbe I ferst, Örlaganóttin, Hetjuleg orrusta. Jólabækur Ægisútgáfunnar AFBURÐAMENN OG ÖRLAGAVALDAR Hér eru dregnar svip- myndir um lif og störf 20 manna og kvenna sem áttu mikinn þátt í mótun nútíma veraldar. Bókin er öðrum þræði ósvikinn skemmtilestur auk þess að vera fróðleiks náma ef einhvern þessara frumherja ber á góma. Denise Robins er mcðal metsöluhöfunda víða um lönd. Vinsældir hcnnar hér á landi hafa aukist ár frá ári og nú cr svo komið að bækur hennar seljast jafnan upp fyrir jól. Þessi nýja bók veldur væntanlega ekki von- brigðum. En spurningin er hverjir ná í hana þar sem upp lagið er takmarkað. Karl tólfti, Napoleon. Hit.ler. Þrjár stórkostlegustu innrásir sögunnar. Þeir ætluðu allir að taka Rússland. Hvernig væri umhorfs i heiminum ef einhverjum þeirra hefði tekizt það. F'orvitnileg bók og skemmtileg. gerast hja rtazel. Allt tjá og tundri og öllu ægir saman. Æðisgengnar orrustur Herbúðalífið i ótal myndum, Bakkus og gleðikonur. Ha/.el er mikilvirkasti striðsbókahöfundur m’jtímans. TRÚLOFUNAR- HRLNGAR — aígreiddir samdægurs. Sendum um allt land HALLDOR Skólavörðustíg 2 ÆVIÞÆTTIR TUTTUCU HfKllMEHNi naani soguknar Markgreiíkfrúin í Teneyjum mnmmm oe

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.