Tíminn - 10.12.1972, Blaðsíða 12

Tíminn - 10.12.1972, Blaðsíða 12
12 TÍMINN Siiiiiuidagui' 10. desember I!I72 TÍMINN 13 VOLK MANNSINS í LÍFSGILDA- SPRENGINGUNNI (iubmundur Daníelsson: IAKMU.OMID Úlgef'andi isafoldarprcnlsmiAja. Dað dylst varla sæmilegum les- anda þessarar nýju skáldsögu Guðmundar Danielssonar, aö hann ætlar henni veigamikiö hlut- verk — ekkert minna en vera þverskuröarstál islenzks þjóðlffs siöustu þrjá áratugina. t bókar- kynningu er það haft eftir.höfundi, aö Járnblómið sé „skáldsaga um velferöarrkiö og trúna”. t>að má aö visu til sanns vegar færa, en er hvergi nærri tæmandi skil- greining. Fang sögunnar er miklu stærra og teygjanlegra, og ef til vill er það meginannmarki hennarsem skáldverks: Uenni er ekki markaður nógu skýr hringur, ekki valið og hafnaö meö nægilegri skarpskyggni á megin- markmiö. Frásagnarfjörið er of lausbeizlað til þess, og dálæti á þvi ol' mikið. Sagan er eins og gæðingur, sem ekki er fyllilega laminn til gangs. Guðmundur er og hel'ur jal'nan verið tilþrifa- mikill skelliriddari á skáldreið sinni, en ekki nostursamur gang- þjálfari. Maðurinn og mannseðliö hefur ætið verið sögefni Guð- mundar. Hann heíur verið mann- lifs- og mannfélagsskáld,en ekki þjóðfélagsskáld. Manneskjan i tiltölulega frjálsri mótun fá- mennissamskipta hefur verið söguhetja hans. Ilinn Irjói sögu- still Guðmundar hæfir vel á óraviðum slétlum manneðlisins, og næmleiki hans á þúsundþa'tt tilbrigði mannlegra viðbragða er aðdáunarverður. llann er alltaf að lýsa manneskjunni — og henni einni. En i þjóðfélagsskáldsögu, ekki sizt sögu, sem er ætlað að vera þverskurðarstál þjóðfélags- byltingar, og á einnig að leiða lram skýringu á umturnun mann- lifsgilda, má ekki horfa á mann- inn — leiksoppinn — einan, heldur verður að byggja á fjórum horn- steinum, sem þunginn hvilir jafnt á, — manninum, gömlu gild- unum, byltingunni og þvi sem úr henni ris eða mótar fyrir. Þennan stóra stakk ætlar Guðmundur augsýnilega sögu sinni, en 'hann er samt allur i manninum sem fyrr, og auðvitað er sá þáttur mikilvægastur, en hann er ekki spunninn með nógu harðfylgnu vali eða samræmi við hinar horn- stoðirnar til þess að náist það jafnvægi, sem eitt getur full- komnað hið stóra ætlunarverk. Það er lika að minum dómi vill- andi að tala um Járnblómið sem „skáldsögu um velferðarrikið og trúna”. Þelta er miklu fremur saga um afdrif eða volk mannsins i lifsgildasprengingunni, gu 11 - æðinu, undanfara eða elnivið þess „velferðarrikis”, sem menn eru að bisa við og eygist ef til vill i fálmandi tilraunum undir sögu- lok, sem gjöf til nýrra kynslóða. Fn þetta er ekki saga um örlög mannsins i eiginlegu velferðar- riki. Sagan hefst þegar siðari heims- styrjöldin flæðir yfir landsfólkið, og hún kemur ekki aðeins i mynd striðsins, Það er sjálft Bolafljót heimsins, sem þar er á ferðinni. Sterkasti þáttur sögunnar er skýrsla um það, hvernig menn bregðast við, eftir eðliskostum og rótfestu. Sumir reyna að ná. landi með þvi að synda með straumn- um, aðrir reyna að standa hann af sér, og enn aðrir berast með honum sem reköld. En jafnvel þeir, sem berast fyrir straumn- um, týna ekki með öllu sjálfum sér, og þegar flóðið sjatnar, er maðurinn enn sjálfum sér likur, trúr eðliskostum sinum, og bregzt við eins og hann hefur náttúru til. Einum þræði er sagan svo áköf leit að nýju lifslandi, þótt sá þáttur sé raunar engan veginn eins sterkur og birzt hefur i lifi æskunnar sjálfrar hin siöari ár, og sagan birtir sterkari ályktanir um afhroð þeirrar leitar en rétt- mætt er að draga af framvind- unni enn. Undir sögulok, þegar dregur úr meginhlaupi striðsins og heims- fljótsins, efnir höfundur til út- tektar á þvi, sem gerzt hefur, og er það brugðið á keimlikt ráð og i Kristnihaldi undir Jökli, þótti ekki sé um beina eftirlikingu að ræða. Þessi saga á sinn Umba, sem er erlendur lifsskoðari og nefnist Brúsi frá Lóni, og honum flytja fulltrúarnir skýrslu sina. En jafnframt verður ljóst, að slik hlutlæg gagnasöfnun um lifsgild- in er vonlaust, verk, þvi að hver og einn lifandi maður hlýtur að ánetjast og verða hluti af þvi lifs- samfélagi, sem hann ætlaöi aðeins að horfa á. Unga konan, leitandi, rótslitna kynslóðin, segir: „Hvað er ég, Brúsi? Einu sinni trúði ég þvi, að ég væri prinsessa úr Austurlöndum, dáin fyrir mörg hundruð árum, fædd aftur á þessum stað, inni i miðjum kál- garðinum, sem hér var einu sinni kringum húsið. Nú veit ég ekki lengur hverju ég trúi, eða hvort ég trúi nokkru. Eg er kannski um- myndað tunglskin — storknað og kalt ljós næturinnar á himni og eiginlega ekki til..Það er ekki auðvelt að syrgja, ef maður hefur ekki fyrst elskað. Ég er að reyna að snúa þessu við núna: Fyrst að syrgja piltinn minn, þangað til sorgin umbrevtist i ást....” Og skýring Brúsa er hrein og klár: „Eftir þvi sem ég kemst næst, ertu það sama og þúsundir ungmenna um öll vestræn lönd: svöng sál i leit að nýjum lifs- gildum, af þvi að búið er að eyði- leggja þau gömlu". Járnblómið var sett á turn kirkjunnar i Brimveri i nafni fölskvalausrar, mannlegrar til- finningar i heitu brjósti. Krossinn kom í stað þess i krafti sýndar og uppgerðar, tákn ástar, sem aldrei hafði verið til. Og þótt járnblómið sé komið á byggðasafn i Hlaðbæ heldur mannlifið áfram i tákni þess, þegar fólk finnur sjálft sig á ný. Sögunni er lokað með orðum séra Gils i bréfi til Brúsa: „Krossinn á Brimverskirkju er ekki annað en verðlaust pjátur, sem fátæk og heimsk hópsálin hefur hengt um hálsinn á sér og telur sér trú um að sé gull. Aftur á móti var járnblómið ósvikið. Það, sem þú eitt sinn gerir af allri sálu þinni og innsta grunni hjartans, það stendur. Eftir allt saman er það járnblómið, sem stendur”. Og enn er Guðmundur sjálfum sér trúr — það er maðurinn, sem er gullið — eða sorinn — þrátt fyrir allt. Þótt varla sé hægt að fullyrða, að Guðmundi Danielssyni hafi tekizt að skila fullkominni byggingu á þeim grunni, sem hann lagði sögu sinni, er Járn- blómið á margan hátt stórbrotið skáldverk og mikilvægt framlag i úttekt þessa örlagarika tima- skeiðs. Höfundur gerir ekki kröfu til þess að sagan veiti neitt fullnaðarsvar. Þótt tákn sögu- fólksins séu járnblóm og kross, er tákn höfundarins spurningar- merkið. Þessi saga er þvi kannski fyrst og fremst heimildasöfnun, mikil og margvisleg, án mats á þvi, hvort allar þær heimildir eru gild málsskjöl i úttektinni, sem Brúsi ætlaði að gera, eða aðrir hyggja að sagan ætti að vera. Og ef til vill hefði Guðmundur ekki átt að marka sögunni þennan farveg, sem veldur þvi, að lesandinn væntir svara — svara, sem honum finnst hann hafa verið svikinn um. En liklega eru það dýpstu rök sögunnar, og það sem höfundur vill segja fyrst og siðast og sýna skýrastf' að það sé óðs manns æði að ætla að skilja og skýra með einstökum mannlifs- dæmum og lögmálum orsaka og afleiðinga áhrif þeirrar deiglu, sem við höfum verið i. Auðvitað er ekki að spyrja að þvi, að þessi saga er rituð af þeirra tilþrifamiklu sögugleði, sem aldrei fölskvast hjá Guðmundi, og manni virðist stundum taka af honum tauminn. Viö þekkjum umhverfið, lífs- amstrið og fólkið. Sumir munu meira að segja telja, að þeir þekki sögufólkið og lifsdæmi þess bæði i sjón og raun, og þykir lik- lega einhvepum nóg um. En þetta er að verða svo viðtekinn háttur skáldsagnahöfunda, að menn ættu ekki að kippa sér upp við það, jafnvel þótt þeir sjái þar svip af sjálfum sér. Sögu- fólkið er raunar aðeins tákn eins og járnblómið og krossinn. En sagan verður sannari og áhrifa- sterkarj. þegar sögupersónur eru lesendum samferðafólk með holdi og blóði. Og auðvitað hefur Guðmundur Danielsson ritað bráðskemmti- legu sögu, fulla af fersku lifi hins sundurleita fólks, brugðið upp kimilegum myndum, sýnt okkur ógleymaniegar persónur, leitt okkur jafnt á markaðstorg s ý n d a r m e n n s k u n n a r og hégómans sem i innstu vé sann- gildra tilfinninga og manns- lundar. Bókin er rituð á þróttmiklu og lifandi máli, en það má helzt að henni finna,að handahófs gæti, og höfundar hefði átt að sverfa betur, meitla meira, vera kröfu- harðari og ætla hverri málsgrein meiri tima. Prentvillur eru of margar og málhnökrar minna allt of viða á hroðvirkni. Svo stór- brotin saga sem Járnblómið er, átti rélt á miklu meiri umönnun, meiri alúð og vinnu höfundar sins. Manni finnst,að Guðmundur hefði þurft að skrifa hana einu sinni eða tvisvar enn. En liklega eru honum ekki slik vinnubrögð lagin. —AK Elzta áheitið, sem menn minnast — Það bar á góma i sumar, að sá siður væri til að heita á Hallvarð Hallsson, sem forð- um bjó i Skjaldabjarnarvik og er þar grafinn i túni, þar eð hann kærði sig ekki um leg „hjá Árnes-Gvendi" i kirkju- garði sóknarinnar. Þess var þá jafnframt getið, að alllangt myndisiðan þessi áheit hófust. elzta áheitið, sem blaðið hefur komizt á snoðir um, var gert fyrir réttum sextiu árum. Þá bjuggu i Skjaldabjarnarvik ung hjón. Öli G. Halldórsson og Valgerður Guðnadóttir og var Valgerður vanfær. t Árneshreppi var ung ljós- móðir. er hafði nýlokið námi. Guðrún Þorláksdóttir að nafni. og mun hún hafa kviðið þvi okkuð að taka á móti barni á afskekktum stað, þar sem engrar hjálpar var að vænta, ef út af bæri. Varð henni það fyrir að heita á Hallvarð karlinn. sem i túninu hafði lengi legið. Hann hafði verið talinn kunna nokkuð fyrir sér. Hvort þessa hafa þá verið einhver fordæmi. eða Guðrún hefur fyrst orðið til slikra áheita. vita þeir ekki. er blaðið hefur leitað til. En barnið fæddist :i. desember 1912, og reiddi báðum vel af, móður og afkvæmi. Barnið er fæddist þennan dag i Skjaldabjarnar- vik við vernd og tilsjón Hall- varðs var Friðgeir Ólason læknir. sem fórst hér i Faxa- flóa á heimleiö frá Ameriku, ásamt mörgum öðrum. er þýzkur kafbátur sökkti einu af skipum Eimskipafélagsins. Guðrún Þorláksdóttir ljós- móðir. sem áheitið gerði. fór seinna til Vesturheims, og hefur verið á lifi til skamms tima að minnsta kosti. Sunnudagur 10. desember 19 ÍSLENZKUR IÐNAÐUR A MIKLA MÖGULEIKA EF HONUM ERU BÚIN RÉTT SKILYRÐI TIL VAXTAR Gunnar .1. Friðriksson. formaður Kélags islcnzkra iðnrekenda. i vcrksiiiiðju sinni Frigg. Timinn hefur snúið sér til Gunnars J. Friðrikssonar, for- manns Félags islenzkra iðnrek- enda, og beðið hann að skýra frá stöðu islenzks iðnaðar um þessar mundir og framtiðarhorfum i iðnaðarframleiðslu. F"er viðtalið við Gunnar hér á eftir. — Nú á atvinnurekstur i landinu við nokkurn vanda að striða, Gunnar. Hvernig er ástandið i iðnaðinum? — Ástandið er ekki gott. Veruleg framleiðsluaukning hefur að visu orðið i iðnaðinum á undanförnum árum. Á árinu 1969 nam fram- leiðsluaukningin 9%. 1970 varð hún 17%. Hún varð 13-15% i fyrra og á öörum ársfjórðungi 1972 varð hún 10-12% miðað við sama ársfjórðung i fyrra. Mikil framleiðsluaukning Á árinu 1971 náði aukning fram- leiðslunnar til flestra greina iðnaðarins, en þó varð hún mest i útflutningsgreinunum. Afkoma iðnaðarins batnaði á árunum 1969 og 1970,en versnaði á árinu 1971. Þannig var hagnaður eftir skatt skv. útreikningum Framkvæmdastofnunarinnar 86 milljónir kr. 1968, 147 m. kr. 1969, 305 m. kr. 1970 og 207 m. kr. 1971. Umskiptin i afkomu iðnaðarins i fyrra urðu um og eftir mitt ár, þegar gengisbreytingarnar erlendis tóku að valda verulegum kostnaðarhækkunum. Vegna mikillar aukningar framleiðsl- unnar er afkoman 1971 miklu verri en hagnaðartölurnar, sem ég nefndi áðan, gefa til kynna við fyrstu sýn. Versnandi staða Framkvæmdastofnunin hefur reynt að áætla afkomu iðnaðarins á þessu ári.og bendir flest til þess, að hún versni að mun frá i fyrra. Þar vega þyngst á metunum kostnaðarhækkanir, 26% launa- hækkun skv. taxta frá 1. október i fyrra, vinnutimastyttingin um 10% auk launaskriðs, sem telja má vist, að fylgi þenslunni á vinnumarkaðnum, þá hefur iðnaðurinn búið um langa hrið við ströng verðlagsákvæði. Nærri lætur.að launahækkanirnar einar hafi á þessu timabili valdið 13% hækkun framleiðslukostnaðar i islenzkum iðnaði. Ennfremur hafa komið til hækkanir á hrá- :efnum, svo sem ull 52,8%, og gærum, 13%, og einnig á allri aðkeyptri þjónustu. Ekki liggja fyrir nákvæmar upplýsingar um hækkanir á erlendum hráefnum, en mjög varlega áætlað eru þær á milli 5 og 10%. Miðaö við óbreytt ástand virðist hallarekstur þvi miður óum- flýjanlegur i flestum greinum iðnaðarins á næsta ári. Nauðsyn ráðstafana i efnahagsmálum er þvi ekki dregin i efa af iðnrekend- um. Með tilliti til versnandi afkomu 1971 og 1972 og afkomuhorfanna nú, má ljóst vera,að útflutnings- tilraununum, sem unnið hefur verið að sleitulaust á undan- förnum árum með verulegum árangri.er stefnt i voða. Stórfelld aukning útflutnings — Hvernig hafa þessar tilraunir til að auka útflutning islenzkra iðnaðarvara gengið? — Árangurinn af þessari viðleitni til að auka útflutning á islenzkum iðnaðarvörum er mjög ánægju- legur. Útflutningur á iðnaðar- vörum jókst um 48% 1970 og 41.3% 1971 og á fyrstu 7 mánuðum þessa árs jókst hann um 71%. Á bak við þennan árangur, sem náðst hefur, liggur bæði mikil vinna og fjármagn, þvi að vinna markað erlendis fyrir áður óþekktar vörur kostar mikið átak. Ef nú af einhverjum ástæðum svo sem vegna of hás verðs, þ.e. of mikillar verð- hækkunar vörunnar, verður að draga þessar vörur út af þessum mörkuðum, væri allt þetta starf i markaðsöflun fyrir islenzkar iðnaðarvörur unnið fyrir gýg, þvi að þótt betri aðstæður sköpuðust siðar, segjum eftir t.d. 2-3 ár, þyrfti meira og minna að byrja upp á nýtt á byrjuninni með öllum þeim gifurlega mikla kostnaði og fyrirhöfn, sem þvi fylgir. Það er þvi mikið i húfi, að takast megi að verja iðnaðinn áföllum á næsta ári. Það er lifsnauðsynlegt, að þessum iðnaði sé á hverjum tima sköpuð þau skilyrði, að til sam- dráttar þurfi ekki að koma. Fyrstu sporin Sá árangur, sem náðst hefur i útflutningi islenzkra iðnaðar- vara, er að minum dómi aðeins brautryðjendastarf eða fyrstu skrefin. Gegnum það starf hafa þeir, sem að þvi hafa unnið, öðlazt ómetanlega reynslu, en þess má geta, að fram að þvi að þetta starf hófst með skipulegum hætti, gat varla heitið,að til væru menn hér á landi með alhliða reynslu i útflutningi iðnaðarvara svo gjörólikur, sem slikur útflutn- ingur er útflutningi landbúnaðar- og sjávarafurða. Það er þvi full ástæða til að ætla,að við hagstæð skilyrði mundi útflutningur á islenzkum iðnaðarvörum vaxa ár frá ári og verða æði fjölbreyti- legur þar sem haldast myndi i hendur reynsla þeirra, sem vinna að útflutningi, og framleiðenda, sem framleiða iðnaðarvörur, sem hæfar eru til útflutnings og auk þess sem aukin framleiðsla til út- flutnings hefur undantekningar- laust skapað möguleika til að auka afköst og framleiðni. Síaukin erlend samkeppni Þótt mér hafi nú orðið tiðrætt um útflutning á iðnaðarvörum er fjöldi iðngreina hér á landi, sem keppir á innlendum markaði við hliðstæða vöru erlenda án þess að njóta nokkurrar tollverndar, og má segja, að þessar greinar séu algerlega i sama báti og iðn- greinar, sem flytja vörur úr landi, hvað snertir það að bera uppi aukinn framleiðslukostnað. Ég vil i þessu sambandi nefna skipasmiðar, veiðarfærafram- leiðslu og umbúðaframleiðslu. Þetta eru allt mjög stórar iðn- greinar á okkar mælikvarða og hafa hundruð manna I vinnu. Auk þess stendur iðnaðurinn nú lrammi íyrir siaukinni erlendri samkeppni með sáralitilli eða mjög dvinandi tollvernd. 1 sam- bandi við þann iðnað finnst mér rétt að benda á það, þegar talað er um tollvernd, að vegna verð- stöðvunarinnar allt frá árinu 1970 hefur iðnaðurinn i sáralitlum mæli fengið aðstöðu til að njóta þessarar tollverndar, sem að eftir er og ætluð var til þess að byggja fyrirtækin upp, áður en allir verndartollar verða afnumdir i samræmi við ákvæði EFTA- samningsins ,en nú er aðeins ár þar til næsta tollalækkun sam- kvæmt þeim samningi tekur gildi eða 1. jan. 1974,en þá hefur hún lækkað um 40% frá þvi ísland gerðist aðili að EFTA. Ekki má mismuna iðnaðargreinum — En hvað um þær efnahagsráð- stafanir, sem rikisstjórnin hefur nú i undirbúningi? — I sambandi við það mál vil ég leggja áherzlu á tvö meginatriði. t fyrsta lagi, að iðnaðinum verði ekki mismunað og liann hljóti hliðstæða lyrirgreiðslu við aðra atvinnuvegi og i öðru lagi, að iðnaöinum verði ekki mismunað innbyrðis Það, sem ég hef sagt her aö framan, skýrir þetta full- komlega,i og þarf ég þvi ekki að skýra þessi meginatriði frekar. Það, sem höíuðm'ali skiptir.er að ekkert verði dregið úr þeim lramkvæmda- og lramfarahug, sem rikt hefur i iðnaðinum,heldur verði þær ráðstalanir, sem gerðar verða,hvati til nýrra átaka i iðnaðarframleiðslu á tslandi. — En hvernig eiga þá þessar ráð- stafanir að vera? —Einn liður i þvi að bæta hag atvinnuveganna gæti verið að létla af honum ýmsum gjöldum s.s. launskatti, atvinnuleysis tryggingarsjóðsgjaldi og aðstöðu- gjaldi. Fyrir iðnaðinn gæli þetta þýlt 250-300 millj. kr. á ári. Að öðru leyti hallast ég að þvi, að eina fausnin sé,að gengi krón- unnar sé ávallt rétt skráð. Upp- bætur til alvinnuveganna tel ég mjög varhugaverða leið. Lánsf jármálin — En hvað um lánsfjármálefni iðnaðarins nú? Þar stendur eitt- hvað til bóta? — Það er mikilvægt, að séð verði fyrir nægu fjármagni til nauð- synlegrar fjárfestingar og reksturs. Það er að visu svo, að Iðnþróunarsjóður hefur getað sinnt þeim lánsumsóknum, sem honum hafa borizt og hafa full- nægt þeim krölum, sem hann gerir um arðsemi og rekstrar- möguleika, en útlán hans tak- markast við þann iðnað, sem stendur i erlendri samkeppni. Framhald á bls. 18 - Rætt við Gunnar J. Friðriksson, formann Félags íslenzkra iðnrekenda, um stöðu iðnaðarins og væntanlegar efnahagsráðstafanir Sútun á gæruskinnum í sútunarverksmiðju Sláturfélags Suðurlands. Unnið við skipsskrúfu i Vélsmiðjunni Héðni.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.