Fréttablaðið - 26.07.2004, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 26.07.2004, Blaðsíða 17
Ég las grein í Fréttablaðinu þar sem kattavinir lýsa vanþóknun sinni á skráningargjaldi sem fólki sé gert að greiða af köttum sínum. Segjast þeir enga ábyrgð bera á villiköttum, en telja að þetta gjald eigi m.a. að fara til greiðslu ýmiss kostnaðar af þeirra völdum, og frábiðja sér nokkur afskipti af þeim. Það að vera kattavinur þýðir ekki bara að þykja vænt um sinn eigin kött, heldur að bera fyrir brjósti velferð katta yfirleitt. En hver ber ábyrgð á þessum vesal- ings útigangsköttum og hvaðan koma þeir? Ekki detta þeir af himnum ofan. Hversu oft sjáum við ekki svohljóðandi auglýsing- ar í blöðunum „Kassavanir kett- lingar fást gefins“. Það eru sjálf- sagt kattavinir sem eru að aug- lýsa kettina, af því að þeir fá sig ekki til að farga þeim en – það er til verra hlutskipti en dauðinn. Og hverjir fá svo kettlingana? Skyldu það allt vera kattavinir? Oft eru það foreldrar að láta undan óskum barna sinna. En kettir eru ekki leikföng, þeir eru lifandi dýr með vitund og til- finningar. Sumir fá leið á þeim, en tíma ekki að láta svæfa þá og þá er farið með þá eins og dauða hluti. Þeim er hent í ruslið, lokað á þá dyrum, eða farið með þá „út í sveit“ og þetta „góða“ fólk, sem kettirnir treysta og elska, hend- ir þeim út og keyrir í burtu, reynir svo að svæfa samvizku sína – ef hún er einhver – með því að „kettir bjargi sér alltaf“. En hversu lengi skyldu þeir svo ráfa þar um, algerlega ráðvilltir og hræddir, mjálmandi aumlega á húsbændur sína. Svona verða villikettir til. Það mætti fækka þessum kettlinga- auglýsingum mikið, með því að láta taka ketti úr sambandi eða gefa læðum pilluna. Ég lít svo á að skráningargjald sé af hinu góða, það stuðli að því, að óekta kattavinir fái sér síður ketti. Hins vegar er það kannske stór biti fyrir suma, t.d. gamalt fólk og öryrkja sem þrá félagsskap gæludýra. Það hafa verið ófagr- ar fréttirnar í fjölmiðlum undan- farið, núna síðast að kvöldi 21. júlí, um kettlingana í bílnum. Einhvers staðar er pottur brot- inn í dýraverndunarlögum, fyrst aðstandendum Kattholts er gert að skila þessum hálfdauðu vesal- ingum til eigendanna, í annað sinn, þrátt fyrir glæpsamlega meðferð á þeim. Þarna er verð- ugt verkefni fyrir kattavini að taka höndum saman og lýsa yfir stuðningi við Kattholt og ekki láta svona viðgangast, þegjandi og hljóðalaust, og leggja jafn- framt lið í baráttu fyrir skilvirk- ari dýraverndunarlögum, því við berum öll ábyrgð. ■ 17MÁNUDAGUR 26. júlí 2004 Skráningargjald af köttum af hinu góða SNÆBJÖRG RÓSA BJARTMARSDÓTTIR SKRIFAR UM KATTAVERND Það að vera katta- vinur, þýðir ekki bara að þykja vænt um sinn eigin kött, heldur að bera fyrir brjósti velferð katta yfirleitt. En hver ber ábyrgð á þessum vesalings úti- gangsköttum og hvaðan koma þeir? Ekki detta þeir af himnum ofan. ,, CAPAROL einangrunarmúrkerfi.Einangrun að utan, heil hús eða að hluta.40-60 % ódýrara en önnur einangrunarklæðning. Auðveldara í viðhaldi. Gæðavottað af RB og Brunamálastofnun CAPAROL í stað málningar. Fyrir viðhald á gamalli skeljasandsklæðningu og þar sem hús eru mikið sprungin eða illa farin. Fyllir í smáar sprungur og gefur húsinu jafna áferð. Yfirmúr í öllum litum NCS litakerfisins. Smiðjuvegi 44 200 Kóp. s: 5346160 flotefni@flotefni.is www.flotefni.is CAPAROL FYRIR ALLAR AÐSTÆÐUR - mest lesna blað landsins Á MIÐVIKUDÖGUM Sparnaður, hlutabréf, lífeyrir ofl. Auglýsingasíminn er 550 5000 auglysingar@frettabladid.is 16-41 (16-17) Leiðari 25.7.2004 22:12 Page 3

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.