Fréttablaðið - 26.07.2004, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 26.07.2004, Blaðsíða 20
FÓTBOLTI Ísland mætti Danmörku í öðrum leik liðanna í Norðurlanda- móti U-21 árs landsliða kvenna sem fram fer á Norðurlandi. Liðin skildu jöfn, 1-1, eftir venjulegan leiktíma og sigruðu Danir í víta- spyrnukeppni en aðeins þarf að notast við þau úrslit ef liðin eru jöfn í riðlinum. Strax á fyrstu mínútu fengu Ís- lendingar upplagt færi en Dóra María skallaði boltann framhjá markinu í upplögðu færi. Erla S. Arnardóttir kom svo Íslandi yfir á 20. mínútu með hælspyrnu eftir að boltinn hafði skoppað aðeins í teign- um. Við markið sóttu Danir meira og mínútu seinna skaut Maria Herping í slána af 25 metra færi. Best Dana í leiknum, Tanja Mejer, skoraði svo á 29. mín- útu eftir vandræða- ástand í íslensku vörn- inni en Ásta Árnadóttir fann sig ekki í leiknum og fékk Johanna Rasmus- sen gott svæði til að at- hafna sig á kantinum. Undir lok fyrri hálfleiks átti Dóra María skalla rétt yfir eftir frábæran undirbúning frá Margréti Láru Viðarsdóttur. Margrét Lára kom svo við sögu í byrjun seinni hálfleiks og átti þá gott skot í stöng. Seinni hálf- leikur var daufari en sá fyrri en í báðum leikhlutum voru Íslendingar betri fyrstu 20 mínút- urnar og eftir það áttu Danir leik- inn. Vörn Íslendinga var oft á tíð- um brothætt og auk þess virtust Danir hafa meira þol í leikinn heldur en Íslendingarnir. Danir komust nálægt því að skora þegar Ditte Larsen átti þrususkot í slána og niður en boltinn virtist ekki fara yfir marklínuna. Nína Ósk Kristinsdóttir komst svo ein inn fyrir þegar um fimm mínútur voru eftir af leiknum en missti boltann helst til of langt frá sér og danska vörnin náði boltanum af henni. Þær eiga aðeins einn leik eftir á móti Svíum og mið- að við úrslit mótsins ættu Svíar að teljast sigur- stranglegri í leiknum á Blönduósi á þriðjudag. „Danska liðið er mjög sterkt en við spiluðum bet- ur í dag heldur en á föstu- dag á móti Englendingum. Við sköpuðum okkur betri færi en við náðum ekki að skora. Þetta var frekar jafn leikur og smáatriðin skiptu máli. Ég er stoltur af stelpunum í þessum leik. Við ætl- um að hvíla okkur í kvöld og byrja að hugsa um leikinn á móti Svíum á morgun. Við getum meira og munum sýna það,“ sagði Úlfar Hinriksson, þjálfari íslens- ka liðsins, eftir leikinn. ■ 20 26. júlí 2004 MÁNUDAGUR Við lýsum eftir... ... íslenskum frjálsíþróttaáhugamönnum til að mynda einhverja umgjörð í kringum stærstu mót ársins í frjálsum íþróttum. Þeir voru fáir sem lögðu leið sína í Laugardalinn um helgina þegar Meistaramót Íslands fór fram jafnvel þótt veður væri afbragðs gott og flestir þeir bestu á Íslandi væru meðal keppenda. Betur má ef duga skal! „Ég verð nokkur ár að jafna mig á þessu og skilja hverju ég hef áorkað.“ Bandaríski hjólreiðakeppinn Lance Armstrong eftir sjötta sigur sinn í röð á Tour de France sport@frettabladid.is Við hrósum... ... Gylfa Einarssyni, leikmanni norska liðsins Lillestrøm, sem virðist ekki geta hætt að skora. Hann skoraði eitt mark fyrir liðið í stórsigri gegn Viking, 5–1, og hefur skorað í sjö leikjum í röð 1–0 Erla S. Arnardóttir 20. 1–1 Tanja Mejer 29. BEST Á VELLINUM Margrét Lára Viðarsdóttir ÍBV TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 7–7 (2–4) Horn 2–2 Aukaspyrnur fengnar 14–5 Rangstöður 0–6 MJÖG GÓÐAR HJÁ ÍSLANDI Margrét Lára Viðarsdóttir ÍBV Dóra María Lárusdóttir Val GÓÐAR HJÁ ÍSLANDI Erla S. Arnardóttir Sunnuna Þóra B. Helgadóttir Kolbotn 1-1 ÍSLAND DANMÖRK [ NM undir 21 árs kvenna ] [ Úrslitin á mótinu í gær ] [ Staðan ] A-RIÐILL England–Svíþjóð 0–1 Ísland–Danmörk 1–1 B-RIÐILL Finnland–Þýskaland 0–0 Bandaríkin–Noregur 2–0 VÍTASPYRNUKEPPNIN: 0–1 Helle Nielsen 1–1 Dóra Stefánsdóttir 1–2 Kamilla Andersen 1–2 Varið frá Nínu Ósk Kristinsdóttur 1–3 Karen Haastrup 1–3 Kristín Ýr Bjarnadóttir skaut í stöng 1–4 Christine Pedersen A-RIÐILL Svíþjóð 2 2 0 0 3–0 6 Ísland 2 0 2 0 2–2 2 England 2 0 1 1 1–2 1 Danmörk 2 0 1 1 1–3 1 B-RIÐILL Bandaríkin 2 2 0 0 5–0 6 Þýskaland 2 1 1 0 3–1 4 Finnland 2 0 1 1 0–3 1 Noregur 2 0 0 2 1–5 0 Helgi Valur Daníelsson: Áframhald- andi áhugi AIK FÓTBOLTI Helgi Valur Daníelsson var til reynslu hjá sænska liðinu AIK í síðustu viku. þótti standa sig vel á æfingum hjá liðinu og hafa forráðamenn félagsins áhuga á því að skoða hann enn frekar. Helgi Valur leikur með Fylkis- mönnum gegn Grindavík í kvöld og er búist við því að útsendarar sænska félagsins verði meðal áhorfenda. Ásgeir Ásgeirsson hjá Fylki staðfesti við Fréttablaðið í gær að AIK hefði ekki gert tilboð í Helga Val en félagið hefði spurst fyrir um möguleikann á því að fá hann strax. ■ Norðurlandamót U-21 árs landsliðs kvenna í fótbolta: Aftur jafntefli hjá íslenska liðinu ÚLFAR HINRIKSSON Sáttur við sínar stelpur gegn Dönum. Sigur hjá Birgi Leifi og Ólöfu Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG og Ólöf María Jónsdóttir úr GK báru sigur úr býtum á Ís- landsmótinu í höggleik sem lauk á Garðavelli á Akranesi í gær. GOLF Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, og Ólöf María Jónsdóttir, úr Golfklúbbnum Keili, báru sigur úr býtum á Ís- landsmótinu í höggleik sem lauk á Garðavelli á Akranesi í gær. Þetta er annað árið í röð sem Birgir Leifur vinnur þetta mót en sigur hans var mjög öruggur. Hann fór fyrstu tvo hringina á 68 höggum eða fjórum höggum undir pari sem er vallarmet á Garða- velli og hafði fimm högga forystu á Örn Ævar Hjartarson úr Golf- klúbbi Suðurnesja eftir tvo daga. Björgvin Sigurbergsson úr Golfklúbbnum Keili náði síðan að minnka forystu Birgis Leifs niður í fjögur högg fyrir lokadaginn en Björgvin lék þriðja hringinn á 71 höggi eða einu höggi undir pari. Birgir Leifur náði sér ekki á strik og lék þriðja hringinn á þremur höggum yfir pari. Á lokahringnum náði Birgir Leifur upp fyrri dampi, jók for- ystuna og var búinn að tryggja sér sigurinn þegar nokkrar holur voru eftir. Hann endaði síðan á 283 höggum, fimm höggum undir pari, og var fimm höggum á undan Björgvini. Örn Ævar Hjart- arson varði þriðji og Ólafur Már Sigurðsson úr Golfklúbbnum Keili varð þriðji. Ólöf María Jónsdóttir úr Golf- klúbbnum Keili var hlutskörpust í kvennaflokki og var þetta í fjórða sinn sem hún vinnur þetta mót. Hún lék hringina þrjá á 231 höggi, einu höggi minna en Tinna Jó- hannsdóttir úr Golklúbbnum Keili og Helena Árnadóttir úr Golf- klúbbi Akureyrar sem leiddi eftir tvo fyrstu hringina. Konurnar léku aðeins þrjá hringi þar sem annar hringurinn var felldur út vegna rigningar. Helena Árnadóttir hafði fimm högga forystu eftir fyrsta daginn, lék þá holurnar átján á einu höggi yfir pari. Hún leiddi einnig eftir annan daginn, var þá einu höggi á undan Ólöfu Maríu en náði ekki að halda henni fyrir aftan sig á loka- daginn. Ólöf María var kominn með forystu eftir níu holur í gær og sigurinn var öruggari en loka- tölurnar gefa til kynna. Íslandsmeistarinn í fyrra, Ragnhildur Sigurðardóttir, náði sér ekki á strik í mótinu og kenn- di þreytu um í samtali við Fréttablaðið. ■ SÁTTIR SIGURVEGARAR MEÐ BIKARANA Íslandsmeistarar í höggleik árið 2004, Birgir Leifur Hafþórsson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar og Ólöf María Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Keili sjást hér með verðlaunagripi sína. Fréttablaðið/Eiríkur LOKASTAÐAN Karlar: Birgir Leifur Hafþórsson, GKG 283 Björgvin Sigurbergsson, GK 288 Örn Ævar Hjartarson, GS 291 Ólafur Már Sigurðsson, GK 294 Sigmundur Einar Másson, GKG 296 Heiðar Davíð Bragason, GKJ 297 Sigurpáll Geir Sveinsson, GA 297 Rúnar Óli Einarsson. GS 298 Willy Blumenstein, GL 299 Helgi Birkir Þórisson, GK 300 Konur: Ólöf María Jónsdóttir, GK 231 Tinna Jóhannsdóttir, GK 232 Helena Árnadóttir, GA 232 Anna Lísa Jóhannsdóttir, GR 234 Ragnhildur Sigurðardóttir, GR 234 Þórdís Geirsdóttir, GK 236 Nína Björk Geirsdóttir, GKJ 236 Helga Rut Svanbergsdóttir, GKJ 242 Herborg Arnardóttir, GR 243 Katrín Dögg Hilmarsdóttir, GKJ 246 44-45 (20-21) Sport 25.7.2004 21:05 Page 2

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.