Tíminn - 02.08.1974, Blaðsíða 15
Föstudagur 2. ágúst 1974.
TÍMINN
15
Anna Erslev:
FANGI KONUNGSINS.
(Saga frá dögum Loð-
viks XI. Frakkakon-
ungs).
Sigriður Ingimarsdóttir
þýddi.
Georg fór þó ekki beint
inn heldur upp i einn
turninn og staðnæmdist
ekki fyrr en á efsta
stigapallinum. Þá tók
hann upp stóran hvitan
klút og veifaði út um
gluggann.
Það var merkið, sem
Leó átti að biða eftir.
Sendiboði konungs
stóð þögull við hlið hans
og skildi hvorki upp né
niður. En Loðvik kon-
ungur hafði kennt her-
mönnum sinum að þegja
og hlýða.
,,Jæja,” sagði Georg.
„Nú getum við sótt
hanzkann.”
Þeir klifruðu niður
stigann og gengu inn i
kirkjuna. Þar var Leó
fyrir, og á altarinu lá
einhver hlutur vafinn
dýrum dúk. Georg tók
böggulinn, rakti hann i
sundur og sýndi lifverð-
inum hanzkann og bréfið
frá ábótanum.
Lifvörðurinn tók þá
hanzkann og fékk þeim
lausnarbréfið, og gengu
þeir nú alls hugar fegnir
til fangelsisins. Þar sat
meistari Húbertus i
þröngu búri og var orð-
inn mjög máttfarinn. —
Stundu siðar sat hann
meðal barna sinna.
Meistari Húbertus fór
skömmu siðar til
Gatanóborgar ásamt
fjölskyldu sinni. Þar
náði hann sér brátt and-
lega og likamlega, þvi
að fólkið var honum
mjög gott. — En gleðin
náði þó fyrst hámarki
sinu, þegar þau ísabella
og Georg voru gefin
saman I hjónaband.
Endir.
O Þróun
varðskipinu ÆGI. Þetta var upp-
haflega kafbátaleitartæki, og það
olli byltingu i fiskveiðum með nót.
Þetta eru undanfarar mikilla nýj-
unga i tækjabúnaði fiskiskipa, og
undirritaður fann til sannrar
gleði að fá aftur að sjá þessa
gömlu kunningja frá æskuárun-
um á Ingólfi Arnarsyni og honum
Ægi.
Ef sama afturhald hefði ráðið i
tækjabúnaði fiskiskipa og i skipa-
gerðinni, ja þá lýzt manni nú ekki
á blikuna. Islenzkir sjómenn eru
þvi, eins og áður var sagt, rig-
bundnir við gamlar hefðir og
nýjungagjarnir i senn. Þversögn-
in stóra á hér við.
Fiskisagan flýgur— yfir
land
Ekki má gleyma fjarskiptum
með öllu. Það liðu oft margar vik-
ur á tslandi, þar til fregnaðist um
sæfara, sem taldir voru af. Vitna
má þar til Björns Jórsalafara og
oft mun það hafa komið fyrir, að
menn komu utan úr Vestmanna-
eyjum og lentu við Landeyjasand
eða á Stokkseyri, eftir að búið var
að jarða þá, eða halda
minningarguðþjónustu þeim til
heiðurs i kirkjunni heima. Þetta
var áöur en fjarskiptin komu til
sögunnar. Fiskisagan flaug, en
yfir sjó flaug hún ekki, né óbrúað-
ar ár og fjallaskörð. Fjarskipti
eru þvi ekki ómerkur þáttur i þró-
unarsögu fiskveiða og sjávarút-
vegs, þó samhengið sé á stundum
ekki eins augljóst og fiskarnir,
sem taldir eru úr trollinu. Með
loftskeytum er skipunum leið-
beint við veiðarnar. Togaraflot-
inn talast við mörgum sinnum á
dag, og það sama gera bátarnir,
og sjómenn tala við heimili sin.
Skip eru kvödd inn, þegar fisk-
skortur er á markaði, eða i frysti-
húsinu, og nýting mannafla og
tækja verður mun betri en ella
væri.
Á sýningunni i Laugardalshöll-
inni eru fjarskiptatæki sýnd, en
þau breyttu miídu eins og áður
sagði, og áhorfandinn sér hlutina
I nýju samhengi.
Stauranót og sildarverk-
un á Austfjörðum
Hér hefur verið stiklað á stóru.
Megnið af rúmi og tima hefur
verið notað til hugleiðinga um
þróun i fiskveiðum og þróun fiski-
skipa. Samt má ekki láta hjá liða
að minnast á fornan atvinnuveg,
en það eru veiðar i landnót á
Austfjörðum og mannvirkjagerð
og aðstööu i landi til sildarsöltun-
ar, en fyrir henni stóðu einkum og
sér i lagi Norðmenn. Má heita, að
þar sé undanfari stórrekstrar i
f
Arekstur við
bílaleigu
JG-Reykjavlk. — Harkalegur
árekstur varð á Hliðarfæti
(götunni, sem liggur frá Reykja-
nesbrautað Loftleiöahótelinu), er
leigubifreið ók aftan á bilaleigubil
frá Loftleiðum.
Ákeyrslan átti sér stað fyrir
framan bilaleiguna. Slys urðu
ekki á mönnum, en báðar
bifreiðarnar voru óökufærar eftir
áreksturinn.
Auglýsið í Tímanum
fiskveiðum og fiskvinnslu. Mjög
haglega gert likan er á sýning-
unni af slikri starfsstöð, og
ennfremur af stauranót, eða
landnót, sem sildin gekk i. Sumir
halda þvi fram, að síldarsöltun
hafi aldrei orðið meiri á Aust-
fjörðum en á þessum áratugum.
Arið 1880 voru fluttar út héðan
96.760 tunnur af sild.
11 aldir i sýningarskrá
Þegar sýningin er skoðuð væri
ef til vill rétt fyrir menn að kynna
sér efni ritgerðar i sýningarskrá,
en hana hefur Asgeir Jakobsson
samið. Auðvitað er erfitt að festa
ellefu alda sögu sjávarútv. og
fiskveiða á fáein blöð i sýningar-
skrá en tekst þó merkilega vel.
Peningamál, aflatölur og annað
hagfræðilegt rúmast þar betur en
á myndum eða I munum, og til að
hafa fullt gagn af þessari sýn-
ingu, færi vel á þvi að lesa þessa
stuttu ritgerð.
Ef gerð er einhver úttekt á
sýningunni, þá er hún léttbyggð
og fer hratt yfir. Sér i lagi er þó
fengur að, að sjá fleiri þætti at-
vinnu manna á Islandi i sam-
hengi. Við höfum haft sjávarút-
vegssýningar, landbúnaðar-
sýningar og iðnsýningar, sér-
sýningar af öllu tagi, en þessi
samsýning opnar ný svið, þótt
umfang verði skiljanlega minna
fyrir hinar einstöku greinar þjóð-
arbúskaparins.
Hönnuðir sýningarinnar voru
þeir Stefán Snæbjörnsson og Ast-
mar Ólafss. Sýningarráð~s]Svaf—
útvegsins skipuðu eftirtaldir
menn: Már Elisson fiskimála-
stjóri, formaður, Guömundur
Garðarsson, fulltrúi, S.H. Guð-
mundur Ibsen, fulltrúi S.I.S.,
Loftur Loftsson, fulltrúi S.I.F.,
Ingimar Einarsson, fulltrúi
L.I.O. og Ingólfur Stefánsson,
fulltrúi F.F.S.t.
— JG.
Athugið breytta dætlun og hótel í
Mallorcaferð Fulltrúardðsins
Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna i Reykjavik efnir til hópferð-
ar til Mallorca 21. ágúst næst komandi I samvinnu við Ferða-
skrifstofuna Sunnu. Menn geta valið um tvö hótel i mismunandi
veröflokki, en bæði eru mjög hagstæð. Þetta eru Hotel Alexandra
og Hótel Niagara. Bæði hótelin eru viö Arenalströndina.
Nú þegar hafa tryggt sér far um 30 manns. Þeir, sem hafa hug á
að fara i þessa ferð þurfa að hafa samband við skrifstofu Fram-
sóknarflokksins sem allra fyrst. Skrifstofan er að Rauðarárstlg
18, simi 2 44 80.
ÞROUIM
B7a-'isna
OPIN DAGLEGA KL. 14.00—22.00
í KVÖLD
KL. 9.oo
ÞROUN
B-74-nS74
BJARTUR í SUMARHÚSUM
HEÍMSÆKIÐ séra guðmund. leikþáttur úr sjálfstæðu fólki fluttur af róbert
ARNFINNSSYNI OG VAL GÍSLASYNI
TÍZKUSÝNING
KL. 9.30 Á VEGUM ÁLAFOSS
DAGLEGA NÝJAR ÍSLENZKAR KVIKMYNDIR KL. 4.00 og 8.00
Reykjavikurdeild: Kynnisferðir um Reykjavík hefjast dagleg kl. 2.45 frá Gimli v/Lækjargötu og Laugardals-
höll kl. 3.00. Sætapantanir í síma 28025.