Fréttablaðið - 27.06.2005, Síða 73
MÁNUDAGUR 27. júní 2005
Michael Jackson, konungur
poppsins, biðlaði til Margrétar
Englandsdrottningar um að hún
veitti honum riddaratign, að
sögn Bob Jones, fyrrum umboðs-
manns popparans. Jones, sem
starfaði í 34 ár fyrir söngvarann,
segir að poppkóngurinn hafi ver-
ið staðráðinn í því að fá nafnbót-
ina Sir.
„Við eyddum gríðarlegum
fjárhæðum til þess að ná sam-
bandi við fólk drottningarinnar
svo hún myndi veita honum
tignina,“ sagði Jones og bætti
við: „Þau höfðu engan áhuga á
því“.
Jones, sem bar vitni í réttar-
höldunum yfir Jackson, heldur
þessu fram í nýrri bók sem hann
skrifaði um líf sitt með
söngvaranum. ■ MICHAEL JACKSON Vildi fá aðalstign hjá bresku drottningunni.
Jacko vildi riddaratign
Skondnar
sta›hæfingar
Stundum láta stjörnurnar hafa
eftir sér afar undarlegar full-
yrðingar. Kannski ekki við öðru
að búast þegar nánast hvert ein-
asta orð sem þær láta út úr sér er
skráð niður.
Það getur hins vegar verið
mjög skondið að rifja nokkrar
staðhæfingar þeirra upp og hér
eru nokkur nýleg dæmi:
„Borið saman
við aðrar
leikkonur á mínum
aldri er ég eigin-
lega of feit.“
-Lindsay Lohan,
sem er greinilega
ekki alveg í takt
við kjörþyngd
raunveruleikans.
„Ég hef unnið mikið til að
öðlast þennan vöxt, til að gefa eig-
inmanni mínum góða gjöf. Þetta
er gjöf sem heldur áfram að lifa.“
-Já, vonandi heldur líkami þinn
áfram að lifa, Jessica Simpson.
„Aldrei spyrja konu hvort hún
sé ófrísk nema þú getir beinlínis
séð barnið koma út úr henni.“
-Matt Dillon, um það hvernig
hann forðast óþarfa kinnhesta.
„Ég verð að þekkja fólk áður
en ég leyfi því að kreista á mér
brjóstin.“
-Pamela Anderson setur sér há
viðmið.
„Enginn hefur nokkurn tímann
veitt mér samkeppni.“
-Paris Hilton hlýtur að fá verð-
laun fyrir besta sjálfsálitið.
„Ég horfi á kvikmyndir með
Brad Pitt og hugsa: „Ég er hér,
hringdu í mig“.“
-Katie Holmes í viðtali
nokkrum dögum áður en hún
kynntist Tom Cruise. ■
LINDSAY LOHAN