Fréttablaðið - 20.10.2005, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 20.10.2005, Blaðsíða 44
6 ■■■ { Hafnarfjörður } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Fjölmiðlaflóra Hafnarfjarðar Í Hafnarfirði eru gefin út tvö bæjarblöð í hverri einustu viku. Fjarðarpósturinn hefur verið gefinn út síðan 1983 og fyrir nokkrum árum hófu Víkur- fréttir að gefa út blað í bænum. Við ræddum við drifkrafta blaðanna tveggja. Kærkomin viðbót Hallgrímur Indriðason er fréttastjóri Víkurfrétta sem borið er út í öll hús í Hafnarfirðinum vikulega og hefur komið út þar í bæ síðan í lok árs 2002. „Í þessu blaði erum við einnig með fréttir úr Garðabæ og Álftanesi og það er borið út á þessum þremur stöðum. Við erum með þrjá starfs- menn í Hafnarfirði, ég sé um skrif og myndatökur. Svo erum við með aug- lýsingastjóra og einn sölumann með honum,“ sagði Hallgrímur, en hann segir viðtökurnar við blaðinu hafa verið ótrúlega góðar. „Íbúum Hafnarfjarðar hefur fundist þetta vera kærkomin viðbót við fjölmiðlaflóruna þar. Gallup gerði lesendakönnun fyrir okkur og síðast vorum við með um 70% lest- ur í Hafnarfirði sem við getum ver- ið alveg gríðarlega ánægðir með. Ég hef lagt áherslu á að taka fyrir mál sem eru mikilvæg fyrir íbúa sveitarfélagsins en eru þó ekki það stór að þau komist í stóru fjölmiðl- ana,“ sagði Hallgrímur, en Víkur- fréttir eru einnig með stöðuga fréttauppfærslu á netinu undir www.vikurfrettir.is. Bæjarblað í meira en 20 ár Guðni Gíslason er ritstjóri Fjarðar- póstsins sem hefur komið út í Hafn- arfirði síðan 1983. „Blaðið hefur einskorðað sig algjörlega við Hafn- arfjörð og er því eina bæjarblaðið og reynir að taka púlsinn á því sem er að gerast og vera óháð en gagn- rýnið varðandi pólitíkina og mál- efni bæjarins. Annars reyni ég að hafa efnistökin sem fjölbreyttust og áhersla er lögð á stuttar en margar umfjallanir,“ sagði Guðni, en hann tók við blaðinu fyrir fjórum árum. Fyrirrennari blaðsins er Fjarð- arfréttir sem fjórir kennarar í Hafnarfirði gáfu út. Það var síðan í lok september 1983 sem Fjarðar- pósturinn kom fyrst út. Í dag vinn- ur Guðni blaðið að mestu einn, skrifar í það, tekur myndir, brýtur það um og selur auglýsingar. „Það eru ýmsir sem senda inn greinar og ábendingar um fréttir. Blaðið er opið fyrir öllu og ef menn skrifa undir nafni er ekkert sem hamlar því að þeirra greinar birtist í blað- inu. Stundum hafa menn fengið að prófa sig áfram í blaðamennsku með því að skrifa í blaðið og er það mjög ánægjulegt. Blaðinu er dreift frítt í öll hús í Hafnarfirði, á heimili og í fyrirtæki og er einnig lesið mikið af Hafnfirðingum er- lendis í gegnum netið. Eitt af markmiðum blaðsins er að stuðla að umræðu í bæjarfélaginu og gera Hafnarfjörð enn betri en hann er,“ sagði Guðni. Guðni Gíslason er ritstjóri Fjarðarpóstsins sem hefur komið út í Hafnarfirði síðan 1983. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL. Hallgrímur Indriðason er fréttastjóri Víkurfrétta.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.