Fréttablaðið - 20.10.2005, Blaðsíða 44
6 ■■■ { Hafnarfjörður } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Fjölmiðlaflóra Hafnarfjarðar
Í Hafnarfirði eru gefin út tvö bæjarblöð í hverri einustu viku. Fjarðarpósturinn hefur verið gefinn út síðan 1983 og fyrir nokkrum árum hófu Víkur-
fréttir að gefa út blað í bænum. Við ræddum við drifkrafta blaðanna tveggja.
Kærkomin viðbót
Hallgrímur Indriðason er fréttastjóri
Víkurfrétta sem borið er út í öll hús í
Hafnarfirðinum vikulega og hefur
komið út þar í bæ síðan í lok árs
2002. „Í þessu blaði erum við einnig
með fréttir úr Garðabæ og Álftanesi
og það er borið út á þessum þremur
stöðum. Við erum með þrjá starfs-
menn í Hafnarfirði, ég sé um skrif og
myndatökur. Svo erum við með aug-
lýsingastjóra og einn sölumann með
honum,“ sagði Hallgrímur, en hann
segir viðtökurnar við blaðinu hafa
verið ótrúlega góðar.
„Íbúum Hafnarfjarðar hefur
fundist þetta vera kærkomin viðbót
við fjölmiðlaflóruna þar. Gallup
gerði lesendakönnun fyrir okkur og
síðast vorum við með um 70% lest-
ur í Hafnarfirði sem við getum ver-
ið alveg gríðarlega ánægðir með.
Ég hef lagt áherslu á að taka fyrir
mál sem eru mikilvæg fyrir íbúa
sveitarfélagsins en eru þó ekki það
stór að þau komist í stóru fjölmiðl-
ana,“ sagði Hallgrímur, en Víkur-
fréttir eru einnig með stöðuga
fréttauppfærslu á netinu undir
www.vikurfrettir.is.
Bæjarblað í meira en 20 ár
Guðni Gíslason er ritstjóri Fjarðar-
póstsins sem hefur komið út í Hafn-
arfirði síðan 1983. „Blaðið hefur
einskorðað sig algjörlega við Hafn-
arfjörð og er því eina bæjarblaðið
og reynir að taka púlsinn á því sem
er að gerast og vera óháð en gagn-
rýnið varðandi pólitíkina og mál-
efni bæjarins. Annars reyni ég að
hafa efnistökin sem fjölbreyttust og
áhersla er lögð á stuttar en margar
umfjallanir,“ sagði Guðni, en hann
tók við blaðinu fyrir fjórum árum.
Fyrirrennari blaðsins er Fjarð-
arfréttir sem fjórir kennarar í
Hafnarfirði gáfu út. Það var síðan
í lok september 1983 sem Fjarðar-
pósturinn kom fyrst út. Í dag vinn-
ur Guðni blaðið að mestu einn,
skrifar í það, tekur myndir, brýtur
það um og selur auglýsingar. „Það
eru ýmsir sem senda inn greinar
og ábendingar um fréttir. Blaðið er
opið fyrir öllu og ef menn skrifa
undir nafni er ekkert sem hamlar
því að þeirra greinar birtist í blað-
inu. Stundum hafa menn fengið að
prófa sig áfram í blaðamennsku
með því að skrifa í blaðið og er
það mjög ánægjulegt. Blaðinu er
dreift frítt í öll hús í Hafnarfirði, á
heimili og í fyrirtæki og er einnig
lesið mikið af Hafnfirðingum er-
lendis í gegnum netið. Eitt af
markmiðum blaðsins er að stuðla
að umræðu í bæjarfélaginu og
gera Hafnarfjörð enn betri en hann
er,“ sagði Guðni.
Guðni Gíslason er ritstjóri Fjarðarpóstsins sem hefur komið út í Hafnarfirði síðan 1983. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
Hallgrímur Indriðason er fréttastjóri Víkurfrétta.