Fréttablaðið - 20.10.2005, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 20.10.2005, Blaðsíða 50
12 ■■■ { Hafnarfjörður } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Á Völlum er nú risin 1.200 manna byggð en reiknað er með að endanleg- ur íbúafjöldi verði um tólf þúsund manns þegar svæðið verður fullbyggt innan áratugar. Skipulag svæðisins gerir ráð fyrir blandaðri byggð íbúða og þjónustu. Nú er hafin bygging á grunnskóla og leikskóla sem verða á miðju Vallasvæðinu. Á miðsvæði Valla er gert ráð fyrir blandaðri byggð skrif- stofu-, verslunar og þjónustubygginga. Áslandið var byggt upp á árunum 1999–2001 og er þar nú um tvö þúsund manna byggð. Svæðið er nýbyggingarsvæði. Efst í hlíðinni verða einbýlishús og í miðri hlíðinni verða rað- og parhús og neðst í brekkunni verða lítil fjölbýlishús. Í Áslandinu er einn grunnskóli og tveir leikskólar. Á Selhrauni er gert ráð fyrir atvinnustarfsemi. Miðað verður við starf- semi þar sem lítil hætta er á mengun; léttur iðnaður, vörugeymslur, hrein- leg verkstæði og umboðs- og heildverslanir. Skipulagsuppdrættir, skipulags- og byggingarskilmálar ásamt um- sóknareyðublöðum og úthlutunarreglum fást afhent í þjónustuveri Hafnar- fjarðarbæjar eða nálgast á heimasíðu Hafnarfjarðar www.hafnarfjordur.is. Hvergi betra að búa Hafnarfjarðarbær auglýsir lausar til umsóknar lóðir á Völlum og Áslandi. Atvinnulóðir eru lausar til umsóknar í Hellna- hrauni, Selhrauni og á miðsvæði Valla. Lóðirnar eru staðsettar í fjölbreyttu útivistarsvæði og fjölskylduvænu samfélagi. Braggi í byggðasafninu SÍÐAN Í SUMAR HEFUR VERIÐ TIL SÝNIS STÓR- GLÆSILEG SÝNING Í BYGGÐASAFNI HAFNAR- FJARÐAR UM HERNÁM BRETA ÞAR SEM INNI Í SJÁLFU BYGGÐASAFNINU VAR SMÍÐAÐUR BRAGGI. ,,Inni í bragganum reynum við að sýna aðbúnað bresku herliðanna og síðan eru spjöld á veggjunum sem rekja aðdraganda hernámsins og sögu þess,“ segir Björn Péturs- son, bæjarminjavörður Hafnar- fjarðar. Björn segir að einn bresk- ur hermaður komi mikið við sögu á sýningunni og því megi kalla hann ,,aðalsöguhetjuna“. ,,Í hans fórum voru töluvert af ljósmynd- um sem við höfum stækkað og sett á vegg. Við erum einnig með fleira frá honum eins og medalíur, úr, myndavél, byssuna hans og sitthvað fleira.“ Björn segir að ekki sé sérstaklega fjallað um veru Bandaríkjamanna hér heldur sé þetta meira um hernámið sjálft og aðdraganda þess, til dæmis her- nám Danmerkur og aukna spennu í Evrópu. Hann segir að sýningin hafi verið geysilega vel sótt og hún hafi fengið góða umfjöllun. Sýningin mun standa til áramóta. Innan í bragganum sem staðsettur er inni í byggðasafninu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.