Fréttablaðið - 20.10.2005, Side 50
12 ■■■ { Hafnarfjörður } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Á Völlum er nú risin 1.200 manna byggð en reiknað er með að endanleg-
ur íbúafjöldi verði um tólf þúsund manns þegar svæðið verður fullbyggt
innan áratugar. Skipulag svæðisins gerir ráð fyrir blandaðri byggð íbúða og
þjónustu. Nú er hafin bygging á grunnskóla og leikskóla sem verða á miðju
Vallasvæðinu. Á miðsvæði Valla er gert ráð fyrir blandaðri byggð skrif-
stofu-, verslunar og þjónustubygginga.
Áslandið var byggt upp á árunum 1999–2001 og er þar nú um tvö
þúsund manna byggð. Svæðið er nýbyggingarsvæði. Efst í hlíðinni verða
einbýlishús og í miðri hlíðinni verða rað- og parhús og neðst í brekkunni
verða lítil fjölbýlishús. Í Áslandinu er einn grunnskóli og tveir leikskólar.
Á Selhrauni er gert ráð fyrir atvinnustarfsemi. Miðað verður við starf-
semi þar sem lítil hætta er á mengun; léttur iðnaður, vörugeymslur, hrein-
leg verkstæði og umboðs- og heildverslanir.
Skipulagsuppdrættir, skipulags- og byggingarskilmálar ásamt um-
sóknareyðublöðum og úthlutunarreglum fást afhent í þjónustuveri Hafnar-
fjarðarbæjar eða nálgast á heimasíðu Hafnarfjarðar www.hafnarfjordur.is.
Hvergi betra að búa
Hafnarfjarðarbær auglýsir lausar til umsóknar lóðir á Völlum og Áslandi. Atvinnulóðir eru lausar til umsóknar í Hellna-
hrauni, Selhrauni og á miðsvæði Valla. Lóðirnar eru staðsettar í fjölbreyttu útivistarsvæði og fjölskylduvænu samfélagi.
Braggi í
byggðasafninu
SÍÐAN Í SUMAR HEFUR
VERIÐ TIL SÝNIS STÓR-
GLÆSILEG SÝNING Í
BYGGÐASAFNI HAFNAR-
FJARÐAR UM HERNÁM
BRETA ÞAR SEM INNI Í
SJÁLFU BYGGÐASAFNINU
VAR SMÍÐAÐUR BRAGGI.
,,Inni í bragganum reynum við að
sýna aðbúnað bresku herliðanna
og síðan eru spjöld á veggjunum
sem rekja aðdraganda hernámsins
og sögu þess,“ segir Björn Péturs-
son, bæjarminjavörður Hafnar-
fjarðar. Björn segir að einn bresk-
ur hermaður komi mikið við sögu
á sýningunni og því megi kalla
hann ,,aðalsöguhetjuna“. ,,Í hans
fórum voru töluvert af ljósmynd-
um sem við höfum stækkað og
sett á vegg. Við erum einnig með
fleira frá honum eins og medalíur,
úr, myndavél, byssuna hans og
sitthvað fleira.“ Björn segir að ekki
sé sérstaklega fjallað um veru
Bandaríkjamanna hér heldur sé
þetta meira um hernámið sjálft og
aðdraganda þess, til dæmis her-
nám Danmerkur og aukna spennu
í Evrópu. Hann segir að sýningin
hafi verið geysilega vel sótt og
hún hafi fengið góða umfjöllun.
Sýningin mun standa til áramóta.
Innan í bragganum sem staðsettur er
inni í byggðasafninu.