Fréttablaðið - 28.10.2005, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Ótrúleg
opnunartilboð
TÆKNIBLAÐIÐ
NÝ TEGUND AF FARTÖLVU
Teiknað beint
á skjáinn
SÉRBLAÐ FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Slefandi aðdáendur
Nýjungar frá Apple BLS. 2
Setur á pásu
Ragnar Santos BLS. 4
Stafrænt ferðaútvarp
Tivoli Audio BLS. 8
Hljómtæki fyrir iPod
i-deck BLS. 10
Linsan með hristivörn
Stafræn myndavél frá Kodak
BLS. 11
Vökvakristals- og raf-
gasskjáir
Hvað er það? BLS. 12
Tekur karatespörk og
ropar Nýjasta leikfangið
BLS. 14
EFNISYFIRLIT
tækniblaðið
[ SÉRBLAÐ UM NÝJUSTU TÆKNI – FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2005 ]
STRÍÐIÐ ER HAFIÐ
Ný kynslóð leikjatölva SJÁ BLS. 4
HVAR OG HVENÆR SEM ER
Tölvupósturinn í Blackberry SJÁ BLS. 8
01 tækni 27.10.2005 16:10 Page 3
GÍSLI PÉTUR HINRIKSSON
Leikur til að skilja
*rómantík *hátíska *súpur
BIRTA FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
bækur heilsa tíðarandi börn m meðganga matur tónlist tíska
SJÓ
NV
AR
PS
DA
GS
KR
ÁI
N
28
. o
kt
ób
er
– 3
. n
óv
em
be
r
br
os
ir
g
eg
nu
m
tá
ri
n
RÓMANTÍK
» matur, myndir og margt fleira
ELTUR UPPI
FEGURÐAR-
DROTTNINGAR
» þróun ímyndarinnar
» Gísli Pétur Hinriksson
01 birta-forsíða 25.10.2005 16.53 Page 1
28. október 2005 – 291. tölublað – 5. árgangur Sími: 550 5000
FÖSTUDAGUR
VÍÐA VONSKUVEÐUR SUNNAN
og vestan til í fyrstu en víða í kvöld og
nótt, síst austan til. Slydda nyrðra en
rigning sunnan og austan til. Rigning, sl-
ydda eða snjókoma vestan til síðdegis.
Hiti 0-9 stig, hlýjast suðaustan til.
VEÐUR 4
VEÐRIÐ Í DAG
Draumur rithöfundar rætist
Allir vilja skrifa bók sem
kemur einhverju góðu til
leiðar. Það hefur Gerði
Kristnýju tekist með
Myndinni af pabba.
FÓLK 50
ÍSILAGT RAUÐAVATN Frosthörkur eru fullorðna fólkinu oft til trafala. Skafa þarf af bílnum áður en lagt er af stað í vinnuna, skipta yfir á
vetrardekkin og gefa sér lengri tíma til að komast á milli staða. Á sama tíma skemmta börnin sér oft best í frostinu. Hér berjast tveir ungir
Árbæingar um pökkinn á Rauðavatni. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
KVIKMYNDAGERÐ „Ríkisútvarpið
veldur ekki hlutverki sínu. Það
borgar fyrir íslenskt efni af með-
aumkun og okrar á kvikmynda-
gerðarmönnum þegar þeir vilja
nota efni úr safni þess,“ segir Ólaf-
ur Jóhannesson kvikmyndagerðar-
maður. Ólafur gerði meðal annars
heimildarmyndina Blindsker sem
fjallar um ævi og störf Bubba Mort-
hens og sýnd var á síðasta ári.
Ríkisútvarpið greiddi Ólafi 1,5
milljónir króna fyrir sýningarrétt
myndarinnar í sjónvarpi en hann
þurfti að greiða stofnuninni 1,4
milljónir fyrir not á efni úr safni
Sjónvarpsins. Alls notaði Ólaf-
ur átján mínútur af safnaefni en
myndin er 100 mínútur að lengd.
Ólafi var að vissu leyti nauð-
ugur einn kostur að selja Ríkis-
útvarpinu sýningarréttinn því
ellegar hefði hann þurft að greiða
meira fyrir safnaefnið. „Ég fékk
að nota þetta efni gegn því að ég
myndi selja RÚV myndina. Mér
var sagt að ég yrði að greiða miklu
meira fyrir safnaefnið ef ég seldi
hana til Stöðvar tvö.“
Blindsker hlaut góðar viðtökur,
sló aðsóknarmet heimildarmynda
í kvikmyndahúsum og hlaut Eddu-
verðlaun sem besta heimildar-
myndin 2004. Gerð hennar kostaði
14,5 milljónir króna en innkoman
nemur 11,3 milljónum. Mismun-
urinn er 3,2 milljónir.
Ólafur segir mikilvægt fyrir
heimildarmyndagerð í landinu að
kvikmyndagerðarmenn geti notað
safnaefni Sjónvarpsins gegn eðli-
legu umsýslugjaldi. „Safnaefnið
er ekki einkaeign Ríkisútvarpsins
heldur almenningseign. RÚV á að
safna samtímaefni og kvikmynda-
gerðarmenn eiga að spegla það
framan í þjóðina. Þetta má ekki
vera tekjustofn fyrir RÚV enda
ekki í djúpa vasa að seilast.“
Ólafur segir örðugt að vinna
að heimildarmyndagerð við þær
aðstæður sem hér ríkja. „Það er ansi
hart ef við þurfum að flytja í burtu.
Það er ekki nóg að Kvikmyndamið-
stöðin standi sig vel, þetta er ekki
hægt nema Ríkissjónvarpið spili
með,“ segir Ólafur og hvetur nýjan
útvarpsstjóra til að gera breytingar
enda beri Ríkisútvarpinu að styðja
við bakið á menningunni.
„Mér fannst Ólafur vera sátt-
ur þegar hann samdi við Ríkis-
útvarpið um sýningarrétt á
Blindskeri og verð á efni úr safni
Sjónvarpsins. Þetta var sú niður-
staða sem varð ofaná og undirrit-
aður var samningur um eftir að
fleiri kostir höfðu verið skoðaðir.
Athugasemdir hans nú koma mér
algjörlega á óvart,“ segir Bjarni
Guðmundsson, framkvæmdastjóri
Sjónvarps. bjorn@frettabladid.is
Sjónvarpið rukkar
sama og það borgar
Ólafur Jóhannesson kvikmyndagerðarmaður gagnrýnir RÚV fyrir að okra á
starfsstétt hans. RÚV greiddi Ólafi 1,5 milljónir fyrir sýningu á Blindskeri en
rukkaði hann um 1,4 milljónir fyrir not á efni úr myndasafni Sjónvarps.Fer á glæpaþing
Árna Þórarinssyni
hefur verið boðið
á ráðstefnu um
glæpasögur í
Litháen.
FÓLK 50
PAUL VOLCKER Stýrði rannsókninni.
SÞ, AP Um 2.200 fyrirtæki sem komu
að viðskiptum við Írak í gegnum
svonefnda „olía-fyrir-mat“-áætlun
Sameinuðu þjóðanna greiddu sam-
tals um 1,8 milljarða Bandaríkja-
dollara, andvirði um 111 milljarða
króna, í mútur og leynilegar auka-
greiðslur til ríkisstjórnar Saddams
Husseins. Þetta er niðurstaða óháðr-
ar rannsóknarnefndar.
Þetta er nærri helmingur allra
fyrirtækja sem þátt tóku í áætlun-
inni 1997-2003. Flest eru fyrirtæk-
in sem um ræðir bandarísk, frönsk,
rússnesk eða þýsk, en á hinum
langa lista er einnig að finna fyrir-
tæki á Norðurlöndum. Volvo er þar
á meðal. Alls eru fyrirtæki og ein-
staklingar frá 66 löndum ásökuð
um mútugreiðslur. - aa
„Olía-fyrir-mat“-hneyksli:
Milljarðamút-
ur til Saddams
28%
42%
Matgæðingar
velja Fréttablaðið*
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
b
l.
M
b
l.
*Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í september 2005.
Tímarit Mbl.
á sunnudegi
Matur ofl.
á föstudegi
Lestur meðal 20–40 ára.
UPPSAGNIR Gunnari Val Gunnars-
syni var sagt upp störfum hjá fyr-
irtækinu Medcare flögu fyrir að
leka upplýsingum til starfsmanna
um yfirvofandi flutninga rekstr-
arins og uppsagnir á starfsfólki.
Gunnar vann við hugbúnaðarsmíð
hjá fyrirtækinu. Uppgefið upp-
sagnarefni var alvarlegt trúnað-
arbrot.
Gunnar heyrði á tal stjórnenda
í fyrirtækinu þar sem áform um
flutning starfseminnar bar á góma.
Gunnar hringdi í félaga sinn og bað
hann að leita staðfestingar á því
sem hann hefði heyrt því hugsan-
lega væri um að ræða staðfestingu
á orðrómi sem lengi hefði heyrst
meðal starfsmanna. Staðfesting
á fyrirætlunum félagsins fékkst
sama kvöld frá millistjórnanda í
fyrirtækinu.
Á vinnustaðnum er þannig um
hnúta búið að kaffivél er við hlið
fundarherbergis og er það alkunna
meðal starfsfólks að heyra megi
mælt mál úr fundarherbergi fram
að kaffivél. Gunnar fékk sér kaffi
og heyrði þá á tal stjórnenda. Fund-
armenn vissu af veru starfsmanna
í húsinu.
Fjörutíu manns hefur verið sagt
upp hjá fyrirtækinu. Tuttugu af
þeim störfum verða flutt til Banda-
ríkjanna, Evrópu og Kanada en
tuttugu störf leggjast af. - saj
Medcare flaga rak Gunnar Val Gunnarsson fyrir að leka upplýsingum:
Fékk sér kaffi og var rekinn
STJÓRNMÁL Rússar vilja nánara
samstarf við Norðurlandaráð og
hafa lagt fram tillögu um það í
forsætisnefnd ráðsins.
Gennadij Khripel, sem fór
fyrir sendinefnd Rússa á þingi
Norðurlandaráðs
í Reykjavík, telur
að þetta megi
gera með gagn-
kvæmum sam-
starfssamningi.
R a n n v e i g
Guðmundsdóttir,
forseti Norður-
landaráðs, lofaði
engu en margir
fulltrúar í ráðinu eru fylgjandi því
að efla samstarfið.
Samstarfsfundur norrænna og
rússneskra þingmanna verður í
Osló í byrjun næsta árs. - jh
Norðurlandaráð:
Rússar vilja
auka samstarf
GENNADIJ KHRIPEL
Breiðablik, nei takk!
Valsstúlkurnar Margrét
Lára Viðarsdóttir og
Laufey Ólafsdóttir hafa
ekki áhuga á því að
spila með kvenna-
liði Breiðabliks
sem safnar
gríðarlegu liði
þessa dagana.
ÍÞRÓTTIR 44
Vill aðskilnað ríkis og kirkju
„Menn leita nú sem fyrr tilgangs
í lífinu, athvarfs í hörðum heimi,
siðferðilegra leiðbeininga. .... Þessari
djúpu og miklu þörf getur kirkjan best
fullnægt, ef hún er óháð, laus undan
kæfandi faðmlögum ríkisins,“ segir
Hannes Hólmsteinn Gissurarson.
UMRÆÐAN 24
DÓMSMÁL Hæstiréttur staðfesti í
gær dóm Héraðsdóms Vestfjarða
frá því í febrúar um að Hraðfrysti-
húsið Gunnvör greiði sjómanni veik-
indalaun. Frystihúsið þarf að greiða
manninum rúmlega 1,9 milljónir
króna með vöxtum.
Sjómaðurinn mætti ekki til vinnu
eftir frítúr 5. júní 2002, en hann
hafði misst son sinn sem lést eftir
hrottalega líkamsárás í Hafnar-
stræti í Reykjavík. Hann mætti ekki
til vinnu fyrr en í nóvember sama
ár. Frystihúsið taldi manninn hafa
verið í launalausu leyfi, en fyrir lá
veikindavottorð. Mat dómsins var
að frystihúsinu hefði verið kunnugt
um aðstæður mannsins. - óká
Héraðsdómur staðfestur:
Sjómaður fær
veikindalaun