Fréttablaðið - 28.10.2005, Blaðsíða 39
6 ■■■■ { tækniblaðið } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
minningunum
• Upplausn: 5,1 MP
• Í pixlum: 2608 x 1952
• Útprentun, Kodak gæði: 50 x 75 cm
• ISO stillingar: 50 - 800
• Linsa: 12X (36-432 mm)
• Optískur aðdráttur: 12X (36-432 mm)
• Stafrænn aðdráttur: 3,3X
• Ljósop: f/2,8-8 (wide), f/3,7-8 (tele)
• Lokunarhraði: 1/2-1/1000 & 16-1/1000 sek
• Fókus: Auto, multi-zone, center-spot og 25 punktar
EasyShare P850
• Stillingar á innb. flassi: auto, on, off og rauð augu
• Stillingar við myndatöku: 24
• Sjálfvirk myndataka: 2 eða 10 sek bið
• Myndformat, þjöppun: JPEG/EXIF v 2,21 RAW, TIFF
• Videogæði, lengd skv minniskorti:
• Quicktime JPEG/PCM
• VGA 640x480 pixlar á 30 fps
• QVGA 320x240 pixlar á 30 fps
• Viewfinder: Já
• Skjár: 2,5" / 6,4 cm
• Festing fyrir þrífót: Já
• Innra minni: 32 MB
• Gerð minniskorts: SD/MMC
• Rafhlöðugerð: Lithium-Ion hleðsl. 1800 mAh
• Hleðslutæki fylgir: Já
• Tengingar: USB 2,0 / Video (A/V)
• Myndvinnsla í vél: Klipping, stækkun o.fl.
• Stærð: (b)108 x (h)84 x (d)72 mm / Þyngd: 403g
• Verð: 49.900 kr
Danirnir Peter Bang og
Svend Olufsen voru
danskir verkfræðingar
á fyrri hluta síðustu
aldar sem höfðu brenn-
andi áhuga á útvarpi.
Þeir þróuðu fyrsta út-
varpstæki sitt árið 1925
uppi á háalofti hjá
Olufsen-fjölskyldunni
og var fyrirtækið Bang
& Olufsen stofnað í
nóvember það sama ár.
Þeir félagar þóttu fara
óhefðbundnar leiðir í
framleiðslu sinni þar
sem þeir létu útlit hlut-
anna sig varða en al-
menna viðhorfið var að
öllu skipti að tækin
virkuðu en ekki hvern-
ig þau litu út.
Bang & Olufsen hefur
alltaf verið þekkt fyrir
góða hönnun en það er
trú fyrirtækisins að
hönnun sé einskis nýt
nema að hún sameini
form og virkni og þess
vegna er allt sem Bang
& Olufsen framleiða
ekki bara einstaklega
fallegt heldur virkar
það vel og er einfalt í
notkun. Gífurlegar
rannsóknir liggja að
baki hverri vöru en há-
talarakerfið er til að
mynda prófað í sérstök-
um hljóðherbergjum í verksmiðju
Bang & Olufsen í Struer í Dan-
mörku, en þetta er ein háþróasta
verksmiðja heims auk þess sem hún
er öll umhverfisvæn og má meðal
annars geta þess að kindur eru not-
aðar til að bíta grasið í stað þess að
nota sláttuvélra sem menga um-
hverfið.
Vörur Bang & Olufsen eru svokall-
aðar lífsstílsvörur. Þær eru mark-
aðssettar fyrir menntað fólk í milli-
stétt og efri stétt sem hefur góða af-
komu, er menningarsinnað í áhuga-
málum, sjálfstætt og drífandi. Bang
& Olufsen segja gjarnan að
Mercedes Benz sé þeirra helsti
keppinautur, sem
segir nokkuð til
um hvernig við-
skiptavinum fyrir-
tækið sækist eftir.
Hönnun fyrirtæk-
isins höfðar bæði
til karla og
kvenna en hún er
blanda af nýjustu
tækni og einstakri
og nútímalegri
hönnun.
Sameining hátækni og fegurðar
Einstök hönnun Bang & Olufsen.
MP3-spilari frá Bang & Olufsen.
Hönnun Bang & Olufsen á sjónvarpstækjum er engu lík
og hægt að horfa á tækið án þess að kveikja á því.
Hljómflutningstækin
eru sérstaklega
stílhrein.
06-07 tækni lesið 27.10.2005 15:46 Page 2