Fréttablaðið - 28.10.2005, Blaðsíða 41
8 ■■■■ { tækniblaðið } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
SongBook ferðaútvarpstækið er búið afar næmum FM/AM-móttakara.
Stöðvarnar má stilla handvirkt eða með 10 forrituðum eftirlætishnöpp-
um. SongBook-tækin geta einnig leitað eftir sendingum útvarps-
stöðva. Vekjaraklukka er í tækinu með tuttugu mínútna
lúrutakka. LCD-skjár sýnir stöðvaval ásamt klukku. Song-
Book er með tengi fyrir aukatæki, auk tengis fyrir heyrn-
artæki en hvort tveggja er með gúmmíhlífum.
Ferðaútvarpið notar hefðbundnar AA alkaline
rafhlöður eða hleðslurafhlöður (NiMH/NiCad).
Hleðslutæki er innbyggt í útvarpið. Þá má
tengja útvarpið við straum með 12V
straumbreyti eða beint í 12V straum-
gjafa. SongBook-útvarpstækin fást í
sex litum. Þau eru nett og traust-
byggð og komast til dæmis
auðveldlega fyrir í skjala-
töskum. SongBook út-
varpstækin fást í Epal,
Kokku, Duka, CM-
búðinni og Mirale.
Aðgangur að tölvupósti
hvar og hvenær sem er
Mikill áhugi er á BlackBerry samskiptatækinu frá Vodafone hér á landi. Gísli Þorsteins-
son, upplýsingafulltrúi Og Vodafone, segir að fjölmörg fyrirtæki hafi nú þegar ákveðið
að velja BlackBerry enda tryggi það örugg GSM- og tölvupóstsamskipti.
tækið mitt }
Ennþá að reyna að læra
almennilega á hana
Elva Dögg Melsteð blaðamaður segir nýju fínu tölvuna
hennar vera uppáhaldstækið sitt.
Elva Dögg, tölvan hennar og sonur hennar, Gylfi Þór Magnússon.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR SIGURÐSSON
„BlackBerry er fremsta þráðlausa
samskiptatækið í dag en það gerir
notendum mögulegt að vera í stöð-
ugum tengslum við viðskiptavini,
samstarfsmenn eða vini um GSM
eða með tölvupósti,“ segir Gísli.
Hann segir að tækið hafi slegið í
gegn víða um heim enda sé það
einfalt í notkun og einstaklega vel
hannað fyrir tölvupóstsamskipti.
Auk þess að vera farsími og tæki
til þess að sýsla með tölvupóst býr
yfir BlackBerry fjölmörgum viðbót-
areiginleikum. Tækið býr yfir vafra,
SMS/MMS, lista yfir tengiliði og
dagbók sem er samstillt tölvupósti í
tölvu notanda. „Hins vegar eru
fjölmargir notendur
sammála um að
einn megin-
kostur tækis-
ins sé hversu
mikinn tíma
það sparar
þeim í vinnu
því þeir geti
tekið á móti,
svarað og skoð-
að tölvupóst og
viðhengi óháð
stað og stund,“
segir Gísli.
Tvenns konar
lausnir fyrir Black-
Berry eru í boði. Ann-
ars vegar svokölluð
BlackBerry Enterprise
Solution og hins vegar
BlackBerry Internet
Service. „Og Vodafone
getur með BlackBerry Enterprise
Solution boðið viðskiptavinum sín-
um upp á aðgang að tölvupósti um
póstþjón sem er samtengdur póst-
þjóni fyrirtækja. Með þessum hætti
geta notendur meðal annars skoðað
viðhengi og samþætt þjónustu fyrir
síma, vafra, dagbók og aðrar upp-
lýsingar.“
Gísli segir að BlackBerry Enter-
prise Solution flétti hins vegar sam-
an Microsoft Exchange, IBM Lotus
Domino og Novell GroupWise og
vinnur með þeim kerfum fyrirtækja
sem fyrir eru. „Slík leið skapar ör-
uggan og þráðlausan aðgang að
tölvupósti og öðrum gögnum fyrir-
tækisins um einn snertiflöt.“
Elva segir að valið hafi staðið á milli tölvunnar og sjónvarpsins og varð
tölvan fyrir valinu. ,,Þetta er glæný fartölva með öllu saman. Hún samein-
ar margt sem mér finnst svo skemmtilegt. Ég get horft á sjónvarpið í henni,
ég get talað við vini mína í útlöndum, bloggað, lesið fréttir og bara allt.
Svo er hún með risa stórum skjá og gott að horfa á hana.“ Elva segist hafa
fengið hana fyrir um mánuði síðan og sé ekki einu sinni búin að læra al-
mennilega á hana. Hún segist nota hana mest heima en einnig í vinnunni.
,,Það er kveikt á henni mestallan daginn, en meðan maður sinnir börnun-
um þá fær hún smá pásu,“ segir Elva en vill samt ekki meina það að tölv-
an fái meiri tíma en börnin. ,,Hún er samt sem áður mjög vinsæl,“ segir
Elva að lokum.
Gísli Þorsteinsson upplýsingafulltrúi Og
Vodafone.
SongBook frá
Tivoli Audio
Tivoli Audio, framleiðendur hinna rómuðu Tivoli út-
varpstækja, hafa sett á markað stafrænt ferðaútvarps-
tæki með vekjaraklukku sem nefnist SongBook.
Blackberry-tækið hefur notið
mikilla vinsælda.
08-09 tækni lesið 27.10.2005 16:09 Page 2