Fréttablaðið - 28.10.2005, Qupperneq 45
12 ■■■■ { tækniblaðið } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Vökvakristals- og rafgasskjáir,
hvað er það eiginlega?
Gífurleg aukning hefur orðið á sölu risavaxinna flatskjáa á undanförnum misserum.
Það er svo sem ekki skrítið, þeir eru örþunnir, taka lítið sem ekkert pláss og gefa yfir-
leitt mun betri myndgæði en gamla góða kassasjónvarpið.
Það sem fólk hefur hins vegar rek-
ið sig á þegar það hefur ætlað að fá
sér flatskjái er að þeir koma á
tveimur mismunandi formum, LVD
og Plasma. Hver er þá munurinn á
þessum tveimur gerðum flatskjáa?
Því er reyndar ekki auðsvarað, því
síður hvor gerðin sé betri. Eftir að
hafa talað við nokkra starfsmenn
verslana og reynda eigendur er ekki
hægt að fá haldbærur niðurstöður
um það hvor gerðin sé betri, þetta
veltur allt á upplifun hvers og eins.
Munurinn á LCD og plasma felst
í uppbyggingu þeirra. LCD skjár er
svipaður þeim og er í fartölvum.
Skjárinn er byggður upp á vökva-
kristöllum sem halda lausn vökva-
kennds kristals milli tveggja þunnra
laga af skautuðu gleri. LCD-skjáir
virka sem ein heild á meðan
Plasma-skjáir byggast upp á fjölda
smærri hólfa sem eru fyllt af gas-
blöndu. Þegar rafstraumi er hleypt í
gegnum hana fer í gang flókið
efnahvarf en við það byrjar þessi
efnablanda að geisla sýnilegu ljósi.
Plasma byggist því á mörgum
smærri einingum á meðan LCD
sjónvörp eru samhæfð heild.
Fyrir ekki svo löngu síðan buðu
plasma-sjónvörpin upp á mun betri
myndgæði. LCD-sjónvörpin hafa
hins vegar verið að sækja mjög á og
gefa þau nú svipuð myndgæði og
plasma-sjónvörpin, í sumum tilfell-
um betri. Ástæðan fyrir að LCD-
sjónvörpin eru mun dýrari en
plasma er sú að þau kosta meira í
framleiðslu en aftur móti eru þau
endingarmeiri en plasma-sjónvörp-
in. Hér verður ekki gert upp á milli
LCD og plasma því eins og áður
segir fer það eftir upplifun hvers og
eins hvor skjárinn þeim finnst betri.
Því er best að skoða málin vel áður
en flatskjáir eru keyptir og reyna að
finna það út sjálfur hvort LCD eða
plasma verði fyrir valinu.
Háupplausnar-sjónvarp
Undanfarin ár hefur verið leiðinni á
markað svokallað hágæða sjónvarp
eða HDTV (High-Definition Tele-
vision). Slík sjónvörp sem styðja
HDTV eru nú þegar komin til lands-
ins en þau bjóða upp á byltingu í
myndgæðum. Myndgæðin eru slík
að þau eru margföld á við það sem
til dæmis gerist hjá DVD-diskum og
þau bjóða upp á fimm sinnum meiri
skerpu en hefðbundin sjónvörp.
Myndgæðin felast í mun betri upp-
lausn en áður hafa þekkst og hafa
sumir lýst því að gæðin séu svipuð
og á góðri ljósmynd. Enn hafa ís-
lenskar sjónvarpsstöðvar ekki byrj-
að að senda út sínar útsendingar á
þessu formi en brátt mun breyting
verða þar á. Þá munu aðeins sjón-
vörp sem styðja þetta HDTV-form
geta tekið við þeim sendingum en
auðvitað geta venjuleg sjónvörp
náð útsendingum, bara ekki í sömu
gæðunum.
Hraði og erill í nútíma viðskiptalífi
kallar sífellt á nýjungar í sam-
skipta- og tölvulausnum. Nokia
Business Center er ein slík nýjung.
Fljótlega mun Nokia bjóða við-
skiptavinum nýja lausn í tölvu-
póstsamskiptum. Þessi lausn er
sniðin að þörfum þeirra sem
treysta mikið á tölvupóst í sínum
samskiptum.
Hátækni ehf. er þjónustuaðili
fyrir Nokia á Íslandi, Magnús Viðar
Skúlason er þjónustu- og fræðslu-
fulltrúi þar. ,,Við bindum miklar
vonir við þessa þjónustulausn enda
kemur hún til með að bjóða upp á
þægilegar samskiptalausnir sem
við teljum einfaldari en margar
þær sem eru á markaðnum í dag,“
segir Magnús, en einn helsti kost-
urinn við þetta nýja kerfi er að ekki
er nauðsynlegt að sá sem fyrirtæk-
ið skiptir við í símþjónustu hafi
þessa þjónustuviðbót, heldur er
nóg að hún sé sett inn í tölvukerfi
viðkomandi fyrirtækis.
,,Þetta mun vera mikill kostur
fyrir alla þá sem þurfa að treysta
mikið á tölvupóstinn við sín störf,
en þessi lausn býður notendum
ódýra og örugga leið til þess að
vera ávallt með tölvupóstinn við
höndina, en um leið og tölvupóst-
urinn er aðgengilegur í tölvunni
verður hann aðgengilegur í síman-
um.“
Í tengslum við kynningu þjón-
ustunnar mun Nokia kynna þrjá
nýja síma í svokallaðri E-línu,
hannaða með þarfir viðskiptalífs-
ins í huga. Búnaðurinn kemur til
með að virka í þeim símum en
einnig í öðrum Nokia-símum sem
keyra á Symbian-stýrikerfi. Notkun
á núverandi tækjabúnaði er því
möguleiki, ef vilji er fyrir því að
nýta sér þjónustuna. Tæknin er í
þróun hjá Nokia og mun líklega
verða kynnt um miðjan nóvember.
Nýjung í samskiptalausnum
,,Við bindum miklar vonir við þessa þjón-
ustulausn enda kemur hún til með að
bjóða upp á þægilegar samskiptalausnir
sem við teljum einfaldari en margar þær
sem eru á markaðnum í dag,“ segir
Magnús Viðar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Eye Toy hefur nú sent frá sér
nýjan „fitness“-leik fyrir
Playstation, þar sem fólk gerir
æfingar í gegnum myndavél og
sjónvarpið heima í stofu. Leik-
menn geta valið úr fjölda leikja
eða tekið þátt í æfingar-
prógrammi sem er sérsniðið að
þörfum hvers og eins. Leikmenn
geta valið milli tveggja einka-
þjálfara, sem hvor fyrir sig hefur
sína styrk- og persónuleika og
leiðbeina þeir leikmönnum í
gegnum þriggja mánaða æfinga-
prógramm. Æfingarnar í leiknum
eru hannaðar í samvinnu við Nike
„fitness“-sérfræðinga. Leikurinn
er hugsaður fyrir konur á aldrin-
um 18-25 ára, en þó er leikurinn
hannaður fyrir bæði kyn. Grafík-
in í leiknum er mjög skýr og nú-
tímaleg og færir nýja vídd í Eye
Toy leikina.
Hreyfðu þig heima í stofunni með
Eye Toy Kinetic.
Tónlistarspurningaleikur
BUZZ!: THE MUSIC QUIZ
Nú er kominn á markaðinn glæ-
nýr spurningaleikur, aðeins fyrir
Playstation 2 tölvur. Hann er
settur upp eins og hinn frægi
spurningaleikur Jeopardy og um
5.000 spurningar eru í leiknum
auk þess sem hægt er að bæta
við eigin spurningum. Með
leiknum fylgir sérstakur Buzz-
hnappur sem notaður er til að
ýta á þegar maður vill svara. Val
er um mismunandi spurninga-
keppnisform og mismunandi
keppendur. Sérstaklega hefur
verið gælt við tónlistarhlið leiks-
ins en lögin koma frá seinustu
sex áratugum. Spurningarnördar
landsins ættu því að gleðjast yfir
þessari viðbót við það sem oft
hefur verið kallað þjóðaríþrótt Ís-
lendinga. Einnig er stefnt að því
að gefa út Buzz spurningaleikinn
í öðrum útgáfum með bæði sér-
hæfðum og almennum spurn-
ingum.
Hægt er að velja á milli fjölda skraut-
legra þátttakenda í leiknum.
Æfingar í gegnum
myndavél og sjónvarpið
EYETOY: KINETIC
Nýjir tölvuleikir:
Fjöldi tegunda og gerða má finna af bæði LCD og Plasma-skjám.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM GUNNARSSON
Nokia Business Center sér um að að þú fáir tölvupóstinn
þinn örugglega þegar þú ert á ferðinni. Þegar tölvu-
pósturinn er kominn í pósthólfið þitt, hvort sem það er í
vinnunni eða heima þá er honum einnig ýtt áfram í
símann þinn.
12-13 tækni lesið 27.10.2005 15:43 Page 2