Fréttablaðið - 28.10.2005, Síða 50
FÖSTUDAGUR 28. október 2005 7
Nú er vinnsla á lífrænu lamba-
kjöti hafin að nýju eftir tveggja
ára hlé.
Sláturhús og kjötvinnsla Kaupfélags
Vestur-Húnvetninga á Hvammstanga
hefur fengið alþjóðlega vottun á líf-
rænum afurðum. Það þýðir að þar er
nú tekið við lífrænu sauðfé til slátr-
unar, unnar úr því ýmsar kjötvörur
og sérmerktar fyrir lífræna matvöru-
markaðinn. Með því er rofið meira en
tveggja ára tímabil frá því að bændur
í lífrænni sauðfjárrækt gátu síðast selt
afurðir sínar sem lífrænar.
Lífræn sauðfjárrækt er stunduð á
fimm stöðum á landinu: Á Brekkulæk
í Miðfirði, á Mælifellsá í Skagafirði, í
Árdal í Kelduhverfi, í Þórisholti í Mýr-
dal og í Skaftholti í Gnúpverjahreppi.
Bændur á þessum vottuðu bæjum ala
sauðfé sitt eingöngu á lífrænu fóðri og
beita því á vottað graslendi eða villta
fjallhaga. Lyfjanotkun er innan þröngra
marka og hugað er sérstaklega að vel-
ferð sauðfjárins á fóðrunar- og fengi-
tíma.
Lífrænt lambakjöt aftur á markað
1. Drekktu vatn í staðinn fyrir dýra
gosdrykki.
2. Stundaðu gönguferðir og sund í
staðinn fyrir að eiga kort í rækt-
inni. Enn betra er að fara ferða
sinna á hjóli því þá sparast bæði
líkamsræktarkostnaður og bensín.
3. Gerðu innkaupin helst snemma
dags, til dæmis í hádeginu. Þú ert í
betra formi og skarpari, ert fljótari að
gera innkaupin og eyðir minna.
4. Farðu ein/n. Allir fjölskyldumeð-
limir hafa skoðanir á því hvað á að
vera til í eldhúsinu og litlir aðstoðar-
menn geta verið dýrir í rekstri.
5. Haltu dagbók yfir það sem þú
kaupir reglulega og taktu eftir því
hvar nauðsynjar þinnar fjölskyldu eru
ódýrastar. Skráðu hjá þér verðið og
verslaðu þar.
6. Flestar matvöruverslanir eru með
tilboð á einhverju á hverjum degi. Ef
þú sérð eitthvað sem er á borðum
hjá þér nánast daglega á tilboði ein-
hvers staðar skaltu birgja þig upp.
7. Passaðu þig á stöðumælasekt-
unum. Þær geta orðið fokdýrar ef
þær eru ekki borgaðar upp strax og
hundraðkall í bílnum er fimmtán
sinnum meira virði þegar hann er
kominn í stöðumælinn.
8. Ákveddu í hvað þú ætlar að
eyða peningunum sem þú sparar
og gerðu fjölskyldunni dagamun.
Þá verður þetta allt saman miklu
skemmtilegra.
Sparnaðarráð }
Drekktu vatn og
borgaðu í stöðu-
mælinn!
NOKKUR AFAR AUÐVELD RÁÐ SEM
ÞYNGJA BUDDUNA.
Tískusýning og útsala
Í tilefni afmælis Anas verður
afsláttur veittur af öllum
fatnaði og tískusýning haldin í
kvöld.
Afmælishátíð stendur yfir í versl-
uninni Anas, Fjarðargötu 13-15 í
Hafnarfirði, þessa dagana. Af því
tilefni er 20 prósenta afsláttur
veittur af öllum fatnaði í búðinni.
Einnig verður haldin tískusýning
kl. 20.00 í kvöld. Þar verður sýnd
vetrarlínan 2005 og vorlínan 2006
frá Créton og hönnuðurinn Lis-
beth Skov verður sjálf á staðnum.
Hátíðinni lýkur á morgun.
Tilboðið stendur til morguns.
Feminin Fashion, Bæjarlind 12
í Kópavogi, er með fjörutíu pró-
senta afslátt af samkvæmiskjól-
um frá Dynasty í dag og á morgun.
Kjólarnir eru til í stærðum 10-32
og fást á allt niður í 6.900 krónur
með afslætti. Verslunin er opin á
virkum dögum frá klukkan 11 til
18 og á laugardögum frá klukkan
10 til 16.
Afsláttur af
kjólum