Fréttablaðið - 28.10.2005, Qupperneq 56
FÖSTUDAGUR 28. október 2005 27
Þjóðarbókhlaðan, eða Lands-
bókasafn Íslands - Háskólabóka-
safn er gríðarlega mikilvæg
stofnun. Stúdentar og fræðimenn
eiga þar greiðan aðgang að hels-
tu fræðibókum og -tímaritum og
almenningur getur komið að vild
og grúskað eða lesið sér til ynd-
isauka. Safnið þarf því að þjóna
bæði stúdentum og almenningi
og gerir það rekstur þess öllu
flóknari.
Fjárveitingar til safnsins hafa
minnkað jafnt og þétt síðustu ár
af ýmsum ástæðum. Sá þáttur
sem ætlað er að standa straum
af öllum almennum bókakaupum
safnsins hefur verið óbreytt upp-
hæð í fjárlögum síðustu átta ár
og hefur því sú tala lækkað mikið
að raunvirði, miðað við almennar
verðlagshækkanir. Fjármagn til
kaupa á fræðibókum hefur ein-
nig verið skert mikið og kemur
það til vegna þess að fjárhags-
staða deilda og skora Háskólans
hefur verið gríðarlega slæm í
nokkurn tíma og margar þeirra
eru reknar með miklum halla.
Þær hafa því þurft að hagræða
mikið og hefur það bitnað einna
mest á því fjármagni sem þær
veita til bókakaupa safnsins.
Þetta tvennt hefur leitt til þess
að bókakostur safnsins er í dag
ekki eins og best væri á kosið og
kemur það hart niður á nemend-
um Háskólans.
En safnið þarf ekki bara
aukið fjármagn til bókakaupa.
Áður fyrr fékk Háskólinn allt-
af ákveðna upphæð á hverju ári
til að geta haldið safninu opnu
utan skrifstofutíma, þ.e. á kvöld-
in og um helgar. Þessu hefur nú
verið breytt og Háskólinn fær
bara greitt fyrir hvern nemanda
sem stundar fullt nám og segja
ráðamenn að sú upphæð eigi að
nægja bókasafninu líka. Þetta
hefur leitt til þess að stjórnendur
Þjóðarbókhlöðunnar hafa þurft
að hagræða gríðarlega í rekstri
safnsins og nú er sú staða komin
upp að boginn er fullspenntur og
ef ekki fæst aukið fjármagn nú
þegar hættir safnið að vera opið
á kvöldin og um helgar þann 1.
desember næstkomandi.
Það þarf ekki að fjölyrða
um hversu slæmt þetta er, en á
Bókhlöðunni er besta lesaðstaða
landsins og aðgangur að bókum
er hvergi betri. Þetta mun því
bitna á öllum landsmönnum,
en stúdentar munu sennilega
fá hvað harðastan skell. Þessi
fjárhagsvandi bókasafnsins er
algjörlega óþolandi og þegar
stjórnvöld eru innt eftir svörum
er lítið um þau. Einna helst benda
ráðamenn þó á Háskólann og
segja vandann liggja hjá stjórn-
sýslu hans. Að sama skapi vísa
stjórnendur Háskólans á ríkið
og segja að fjármagnið þurfi að
koma úr ríkissjóði.
Höfuðvandinn virðist þó ligg-
ja í því að lögin og reglurnar um
Landsbókasafn Íslands - Háskóla-
bókasafn eru afar flóknar. Hlut-
verk safnsins er gríðarstórt en
að sama skapi illa skilgreint.
Hagsmunir okkar allra krefj-
ast þess að þetta mál verði leyst
til frambúðar og það tekst ekki
nema með samstilltu átaki Þjóð-
arbókhlöðunnar, Háskólans og
stúdenta.
AF NETINU
UMRÆÐAN
ÞJÓÐAR-
BÓKHLAÐAN
DAGNÝ ÓSKARSDÓTTIR
LAGANEMI OG FÉLAGI Í RÖSKVU
Sami rassinn undir þeim öllum
Einhver þrálátasta og kannski með vara-
samari grillum samtímans er að sami
rassinn sé undir öllum stjórnmálamönn-
um – þeir séu allir siðlausir og sjálfsdýrk-
andi eiginhagsmunaseggir. Í samræmi
við þetta er talað um stjórnmálamenn af
djúpri fyrirlitningu; það er sífellt verið að
klifa á að völdin séu að færast frá þeim
yfir í viðskiptalífið. Stjórnmálamenn eru
hæddir og spottaðir, en það komast
helst ekki nógu margir að til að sleikja
rassinn á viðskiptajöfrunum.
Egill Helgason á visir.is
Á valdi stjórnmálamanna
[N]ýlega varð ritstjóri Morgunblaðsins
uppvís að því að ganga erinda sama
stjórnmálaflokks og hann marseraði fyrir
í Íraksmálinu. ... Fréttaflutningur Morgun-
blaðsins af þessari merku þátttöku rit-
stjóra blaðsins fólst síðan í miklum lang-
lokuhundum þar sem hann gerði grein
fyrir sjónarmiðum sínum. Þetta sýnir
enn og aftur að allt tal ritstjóra blaðsins
um að á milli skrifstofu hans og frétta-
manna ríki skýr aðskilnaður er úr lausu
lofti gripið. Morgunblaðið sleppti því að
grafast fyrir um frétt er varðar valdaskip-
an í íslensku samfélagi vegna þess að rit-
stjóri þess var viðriðinn málið. Því höfum
við enn eitt dæmið þar sem hagsmunir
Morgunblaðsins og Sjálfstæðisflokksins
eiga undarlega vel saman. Staðreynd
sem ætti að vekja athygli þeirra er hafa
áhuga á fjölmiðlum á valdi stjórnmála-
manna.
Huginn F. Þorsteinsson á murinn.is
Stöndum vörð um Þjóðarbókhlöðuna
Í blaði sunnudagsins féll niður niðurlag
lokamálsgreinar í viðtali við Eirík Finn
Greipsson og Guðjón Guðmundsson
og er beðist velvirðingar á mistökunum.
Viðtalið var í tilefni af því að tíu ár er
liðin frá því að mannskætt snjóflóð féll
á Flateyri. Í heild sinni var síðasta máls-
greinin eftirfarandi:
Guðjóni er líka ofarlega í huga að menn
læri nú af reynslunni og láti af þeim sið
að loka augunum fyrir aðsteðjandi vá.
„Það þarf að tala um hlutina og gera
ráð fyrir þeim. Þetta er svipað og með
umræðuna um að flytja Reykjavíkur-
flugvöll, að alls ekki virðist mega nefna
hættuna á jarðhræringum á Suðurnesj-
um í því samhengi. Ef menn eru ekki
viðbúnir því versta þá eru þeir bara í
vondum málum.“
LEIÐRÉTTING
Það er nauðsynlegt fyrir börnin að borða vel á morgnana.
Þess vegna viljum við gefa þeim morgunkorn sem þeim
finnst gott á bragðið.
Weetos eru vítamín- og járnbættir heilhveitihringir með
góðu súkkulaðibragði. Þeir eru jafnframt sykurminnsta
súkkulaðimorgunkornið sem völ er á.
* samkvæmt innihaldslýsingu á Cocoa Puffs pökkum
48% minni sykur en í Cocoa Puffs*
Heilhveitihringir
Gott súkkula›ibrag›
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
18
9
4
7