Fréttablaðið - 28.10.2005, Side 59
28. október 2005 FÖSTUDAGUR30
timamot@frettabladid.is
Þökkum innilega fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför
Sigrúnar Gunnarsdóttur
Austurgötu 24, Keflavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Fríhafnarinnar, Holta-
skóla og Félags leiðsögumanna á Suðurnesjum.
Fyrir hönd sona, foreldra, systra og annarra
vandamanna,
Þórarinn Þórarinsson.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Þegar andlát ber að
Síðastliðin 15 ár höfum við feðgar
aðstoðað við undirbúning útfara.
Alhliða útfararþjónusta
Símar: 567 9110,
893 8638 og 897 3020
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
www.steinsmidjan.is
ANDLÁT
Ragnheiður Böðvarsdóttir, frá
Saurbæ, Kjalarnesi, til heimilis
í Ástúni 12, Kópavogi, andaðist
miðvikudaginn 12. október. Útför-
in hefur farið fram í kyrrþey.
Gunnar Sigurgeirsson, Austurvegi
5, Grindavík, andaðist á hjúkrun-
arheimilinu Víðihlíð, Grindavík,
þriðjudaginn 25. október.
Valgerður Kristólína Árnadóttir,
frá Látrum í Aðalvík, lést á dvalar-
heimilinu Grund þriðjudaginn 25.
október.
Þuríður Jónsdóttir, frá Grafardal,
til heimilis á Kársnesbraut 135,
Kópavogi, lést á Landspítalanum
í Reykjavík miðvikudaginn 26.
október.
JARÐARFARIR
13.00 Grettir Björnsson harmon-
ikkuleikari, Urðarbakka 30,
Reykjavík, verður jarðsung-
inn frá Fossvogskirkju.
13.00 Minningarathöfn um
Konkordíu Sigurbjörgu
Þorgrímsdóttur, frá Tanna-
stöðum, verður haldin í
Langholtskirkju.
13.30 Anton Sigurgeir Gunn-
laugsson, skipstjóri,
Reynihólum 10, Dalvík,
verður jarðsunginn frá
Dalvíkurkirkju.
14.00 Páll Sigurður Stefánsson,
Hnappavöllum, Öræfum,
verður jarðsunginn frá
Hofskirkju, Öræfum.
14.00 Sigurður Karlsson, bóndi,
Laufási, verður jarðsunginn
frá Egilsstaðakirkju.
15.00 Bjarni Leifsson, frá Patreks-
firði, verður jarðsunginn frá
Digraneskirkju.
15.00 Einar Pétursson, rafvirkja-
meistari, Laufbrekku 14,
Kópavogi, verður jarðsung-
inn frá Kópavogskirkju.
15.30 Esther Á. Laxdal, frá Tungu,
Svalbarðsströnd, verður
jarðsungin frá Svalbarðs-
strandarkirkju.
AFMÆLI
Innilegustu þakkir til allra þeirra
sem minntust mín með árnaðar-
óskum og á annan hátt á 90 ára
afmæli mínu þann 23. september.
Með vinar kveðju, Hákon Fr.
Jóhannsson
Guðmundur
Steingrímsson
sjónvarpsmaður er
33 ára.
Julia Roberts leik-
kona er 38 ára.
Steinn Ármann
Magnússon
leikari er 41 árs.
Bill Gates, stofn-
andi Microsoft, er
50 ára.
Egill Eðvarðsson
framleiðslustjóri er
58 ára.
MERKISATBURÐIR
1492 Kólumbus finnur Kúbu og
slær eign sinni á hana fyrir
hönd Spánar.
1636 Harvard-háskólinn í Banda-
ríkjunum er stofnaður.
1848 Dómkirkjan í Reykjavík er
vígð.
1922 Benito Mussolini tekur við
völdum á Ítalíu.
1943 Einar Ólafur Sveinsson
hefur lestur á Njálu en
það er í fyrsta sinn sem
Íslendingasaga í fullri lengd
er flutt í útvarpinu.
1987 Þátturinn á Tali hjá Hemma
Gunn er í fyrsta sinn á
dagskrá Sjónvarpsins.
Einstakur tónlistarmaður.
Snillingur. Harmonikku-
séní. Þetta eru orðin sem
samferðamenn Grettis
Björnssonar í tónlistinni
velja félaga sínum.
Grettir fæddist 2. maí
1931 að Bjargi í Miðfirði.
Tæpum þúsund árum áður
hafði fæðst drengur á sama
bæ er nefndur var Grettir
og hlaut sá snemma við-
urnefnið sterki. Grettir
Ásmundarson var alræmd-
ur á sinni tíð og vó fyrst
mann aðeins fjórtán vetra.
Afrek Grettis Björnsson-
ar á lífsleiðinni voru af
öðrum toga, hann var lengi
í fremstu röð harmonikku-
leikara og vakti meðal
annars mikla hrifningu í
Kanada þar sem hann bjó í
tæpan áratug.
Grettir hóf ungur tón-
listarnám og lærði á selló
og klarinett auk harmon-
ikkunnar og þótti afskap-
lega snjall listamaður.
„Hann var snillingur og
það var einstaklega gott að
vinna með honum,“ segir
Hjördís Geirsdóttir söng-
kona sem spilaði talsvert
með Gretti í seinni tíð.
Hún getur þess einnig hve
skemmtilegur hann var og
undir það taka aðrir við-
mælendur.
Þegar Grettir var rúm-
lega tvítugur fluttu hann
og Erna S. Geirsdóttir, eig-
inkona hans, til Vancouver
í Kanada ásamt ungum syni
þeirra, foreldrum Ernu,
sex systkinum hennar og
hundi. „Ævintýramaðurinn
pabbi var aldeilis til í að
fljóta með,“ segir Geir Jón
Grettisson um utanförina.
Fjölskyldan bjó í Kanada til
1960 og á þeim árum fædd-
ust hjónunum þrjú börn til
viðbótar; Margrét, Regína
og Grettir.
Í Kanada vann Grettir
við húsamálun og hélt þeirri
iðn áfram eftir að heim var
komið, samhliða tónlistinni.
Ragnar Bjarnason fékk
Gretti í hljómsveit sína sem
hóf að leika á Hótel Sögu
árið 1965. „Það var gríð-
arlegur fengur að fá hann
með alla þessa reynslu og
snilligáfu,“ segir Ragnar.
„Svo var hann svo yndis-
lega góður drengur, heil-
steyptur og góður í sam-
starfi.“
Gretti var annt um
rætur sínar í Miðfirðinum
og var mikill Húnvetningur
í sér. Hann smitaðist af
hestabakteríunni af Mar-
gréti dóttur sinni og átti
nokkra hesta um ævina.
Samferðamönnum Grett-
is verður öllum tíðrætt um
dugnað hans. „Hann var
þrælduglegur og málaði
alltaf með tónlistinni auk
þess að sinna hestunum,“
segir Árni Scheving tón-
listarmaður en þeir spil-
uðu meðal annars saman
í hljómsveit Árna sem lék
í Klúbbnum árið 1963 en
Klúbburinn var þá flott-
asti skemmtistaðurinn í
bænum.
Lengstum lék Grett-
ir í danshljómsveitum og
flutti lög annarra en hann
samdi einnig eigin lög og
gaf út hljómplötur. Lagið
Austfjarðaþokan er hans
þekktasta lag og á sinn stað
í hjörtum fjölmargra.
Grettir greindist með
bráðahvítblæði í apríl en
átti góða daga í sumar og
sinnti þá meðal annars
hestunum sínum. Hann lést
fimmtudaginn 20. október
á blóðlækningadeild Land-
spítalans.
Útför Grettis Björns-
sonar verður gerð frá Foss-
vogskirkju klukkan 13 í
dag.
GRETTIR BJÖRNSSON Var nefndur eftir Gretti sterka Ásmundarsyni en báðir fæddust þeir á bænum Bjargi í Miðfirði
í Vestur-Húnavatnssýslu. Myndin er tekin á heimili Grettis árið 1982.
GRETTIR BJÖRNSSON HARMONIKKULEIKARI: VERÐUR JARÐSUNGINN Í DAG
Snillingur með nikkuna
FÆDDUST ÞENNAN DAG
1914 Jonas Salk
læknir, fann upp
bóluefni gegn
lömunarveiki.
1896 Howard Hanson
tónskáld.
1846
Georges Escoffier
meistarakokkur.
1842 Anna
Dickinson kven-
réttindakona.
JOHN LOCKE (1632-1704) LÉST
ÞENNAN DAG.
„Eina vörnin gegn heiminum er gagn-
ger þekking á honum.“
JOHN LOCKE VAR HEIMSPEKINGUR
OG EINN AF BRESKU RAUNHYGGJ-
UMÖNNUNUM LÍKT OG GEORGE
BERKELEY OG DAVID HUME.
Á þessum degi árið 1886 vígði Grover Cleve-
land, forseti Bandaríkjanna, frelsisstyttuna í
höfninni í New York. Styttan, sem er 46 metra
há, var gjöf frá Frökkum til Bandaríkjamanna.
Hugmyndin að styttunni kom frá franska
sagnfræðingnum Edouard de Laboulaye til að
minnast samstarfs Frakka og Bandaríkjamanna
í uppreisninni gegn Bretum.
Styttan var hönnuð af Frederic-Auguste Bart-
holdi í líki konu sem lyftir kyndli til himins. Hið
geysistóra stálvirki styttunnar var hannað meðal
annars af Alexandre-Gustave Eiffel sem hannaði
Eiffelturninn í París.
Í maí árið 1884 lauk gerð styttunnar í Frakk-
landi og þremur mánuðum síðar var lagður
hornsteinn að undirstöðum hennar á Bedloe-
eyju við New York. Í júní 1885 kom styttan í
bútum til Nýja heimsins. Uppsetningu styttunn-
ar lauk þann 28. október
1886 í vígslu sem forset-
inn leiddi.
Á stalli styttunnar er
ljóð eftir Emmu Lazarus
sem býður innflytjendur
velkomna til Bandaríkj-
anna en árið 1892 varð
Ellis-eyja í New York-
höfn, skráningarmiðstöð
fyrir innflytjendur.
Árið 1924 var styttan
gerð að minnismerki og
árið 1956 fékk Bedloe-
eyja nafnið Liberty-eyja.
Miklar endurbætur voru
gerðar á styttunni á
níunda áratugnum.
ÞETTA GERÐIST > 28. OKTÓBER 1886
Frelsisstyttan vígð í New York-höfn
Fréttablaðið fjallaði í sumar
um heimsókn Huldu Parrish
til Íslands. Hulda flutti fimm
ára gömul til Ástralíu ásamt
foreldrum sínum og bræðr-
um. Fyrir rúmu ári greind-
ist hún með krabbamein og
sex mánuðum síðar varð
ljóst að krabbameinið hafði
breiðst út og að hún myndi
lúta í lægra haldi fyrir sjúk-
dómnum. Hún ákvað þá að
láta hinstu ósk sína rætast,
sem var að koma til Íslands
og hitta ömmu sína. Hulda
sem aðeins var 41 árs kom
hingað með dóttur sinni og
dóttursyni sem hún vildi
kynna fyrir fæðingarlandi
sínu og ættingjum.
Þegar Hulda sneri aftur
til Ástralíu hrakaði henni
fljótt og kom í ljós að hún var
mun veikari en margir höfðu
talið. Hún lést í síðustu viku
eftir hetjulega baráttu. ■
Á GÓÐRI STUND Hulda lagði leið sína til Íslands í sumar til að hitta ömmu
sína og nöfnu í síðasta sinn.
Hulda Parrish er látin
Ingunn María Þorbergsdóttir og
Arnar Hjartarson voru gefin saman
á Akranesi hinn 10. september, af
sýslumanni. SVIPMYNDIR
BRÚÐHJÓN
FIMUR MEÐ NIKKUNA Grettir
Björnsson var lengi í fremstu röð
harmonikkuleikara.