Fréttablaðið - 28.10.2005, Page 67
28. október 2005 FÖSTUDAGUR38
tonlist@frettabladid.is
Kynjaborgin
Reykjavík
Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhúsinu 29. október 2005.
Málþing haldið í samvinnu Reykjavíkurborgar og Rannsóknastofu í kvenna- og
kynjafræðum við Háskóla Íslands í tilefni af 30 ára afmæli kvennafrídagsins 24. okt.
Kl. 11.00 - 11.10 Setning: Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri.
Kl. 11.10 - 11.25 Gerður Róbertsdóttir sagnfræðingur Árbæjarsafni: Frá peysufötum til
pinnahæla. Brot úr sögu kvenna.
Kl. 11.25 - 11.40 Katrín Jakobsdóttir bókmenntafræðingur: Símaulandi og símalandi
Um reykvískar konur í íslenskum glæpasögum.
Kl. 11.40 - 11.50 Ingibjörg Haraldsdóttir les ljóð.
Kl. 11.50 - 12.05 Salvör Jónsdóttir skipulagssviði Reykjavíkurborgar:
Skipulagsmál og feminismi.
Kl. 12.05 - 12.20 Heiða Jóhannsdóttir kvikmyndfræðingur:
Í sjónmáli ferðamannsins: Reykjavík sem heita borgin í norðri.
Kl. 12.20 - 12.40 Kaffihlé
Kl. 12.40 - 13.00 Magga Stína og hljómsveit
Kl. 13.00 - 13.15 Guðbjörg Linda Rafnsdóttir félagsfræðingur og lektor við H.Í.:
Kynlegar tölur um stöðu reykvískra kvenna.
Kl. 13.15 - 13.25 Sigurbjörg Þrastardóttir les ljóð.
Kl. 13.25 - 13.40 Harpa Björnsdóttir myndlistarkona:
Konur í reykvískri myndlist.
Kl. 13.40 – 14.00 Umræður.
Málþingsstjórar verða Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
formaður jafnréttisnefndar Reykjavíkurborgar og Kristín
Ástgeirsdóttir sagnfræðingur og starfandi forstöðumaður
Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum.
RANNSÓKNARSTOFA
Í KVENNA- OG KYNJAFRÆÐUM
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
13
5
7
0
Hljómsveitin Depeche Mode
hefur gefið út sína tólftu
hljóðversplötu sem nefnist
Playing the Angel. Freyr
Bjarnason renndi yfir feril
þessarar merku sveitar.
Hljómsveitin Depeche Mode á
rætur sína að rekja til sveitarinn-
ar No Romance in China sem var
stofnuð árið 1976 af þeim Vince
Clarke og Andrew Fletcher. Sú
sveit hætti fljótlega og árið 1979
stofnaði Clarke French hljóm-
sveitina Look ásamt Martin Gore.
Fletcher gekk fljótlega til liðs
við þá félaga og gengu þeir undir
nafninu Composition of Sound.
Þegar David Gahan kom inn í
sveitina 1980 var nafninu breytt í
Depeche Mode og liðsuppstilling-
in var orðin fullmótuð, allt þar til
Clarke, aðallagahöfundur sveitar-
innar, hætti árið 1981 til að stofna
sveitina Yazoo með söngkonunni
Alison Moyet. Gore fór að semja
lögin þess í stað og hefur gert það
að mestu allar götur síðan með
góðum árangri.
Depeche Mode varð ein vin-
sælasta tölvupopphljómsveit níunda
áratugarins og ein sú fyrsta til að
byggja hljóm sinn í kringum hljóm-
borðstóna sína. Hún byrjaði sem
hressileg danspoppsveit en þróaði
smám saman myrkari og dramat-
ískari hljóm sem átti eftir að gera
hana að risa í tónlistarheiminum.
Sveitin náði almennri athygli eftir
útgáfu plötunnar Violator árið 1990.
Þar var meðal annars að finna lögin
Enjoy the Silence, Policy of Truth og
Personal Jesus sem öll slógu ræki-
lega í gegn. Eftir aðra vinsæla plötu,
Songs of Faith & Devotion, sem kom
út 1993 með lögum á borð við Barrel
of a Gun og It´s No Good, fór hún að
liðast í sundur, meðal annars vegna
heróínnotkunar söngvarans Gahans
og misheppnaðrar sjálfsvígstilraun-
ar hans.
Eftir fjögurra ára pásu mætti
sveitin sterk til leiks á ný með plöt-
unni Ultra og enn þann dag í dag
virkar sveitin í toppformi. Þykir
nýjasta plata hennar, Playing the
Angel, til að mynda töluvert sterk-
ari en sú síðasta, Exciter. Meiri
áhersla er lögð á þann hljóm sem
gerði Depeche Mode fræga í upp-
hafi, þar sem blandað er saman
sérstæðum hljómborðsleik Gore,
teknóáhrifum og fallegum melód-
íum. Gott dæmi um það er fyrsta
smáskífulag plötunnar, Precious.
Upptökustjóri Playing the
Angel er Ben Hillier, sem hefur
áður unnið með sveitum á borð við
Blur, Elbow og Clinic. Í heimildar-
mynd um gerð plötunnar, sem er
að finna á viðhafnarútgáfu hennar,
lýsa liðsmenn Depeche Mode yfir
ánægju sinni með Hillier og þá
breytingu sem hefur orðið á sveit-
inni frá síðustu plötu. Hillier var
enginn sérstakur aðdáandi sveit-
arinnar áður en hann byrjaði á
plötunni, en var fljótur að finna út
hvernig hljómurinn ætti að vera.
Lagði hann áherslu á að vinna hana
hratt og markvisst því það hentaði
hljómsveitinni mun betur.
Depeche Mode hefur alla tíð
verið öflug tónleikasveit og er hún
byrjuð á umfangsmikilli tónleika-
ferð um heiminn til að fylgja plöt-
unni eftir. The Bravery, sem spil-
aði á Iceland Airwaves í fyrra, og
The Raveonettes frá Danmörku
munu hita upp á tónleikaferð
hennar um Bandaríkin. Á næsta
ári er síðan fyrirhuguð tónleika-
ferð um Evrópu og er Ísland því
miður hvergi á þeim lista.
Dramatískir
tölvupopparar
DEPECHE MODE Tólfta hljóðversplata Depeche Mode, Playing the Angel, er komin út.
Á TÓNLEIKUM David Gahan, söngvari
Depeche Mode, er þekktur fyrir öfluga
sviðsframkomu.
> Plata vikunnar...
SLEATER-KINNEY:
The Woods
„Stelpurnar í
Sleater-Kinney
eru búnar að
vera svo lengi
að gefa út plötur
að þeim er loksins orðið skítsama
hvað öðrum finnst um sköpunar-
verk sín. Þær hafa aldrei verið
betri.“ BÖS
> Popptextinn...
Situations have ended sad,
relationships have all been bad.
Mine‘ve been like Verlaine‘s and
Rimbaud.
Bob Dylan samdi lagið You‘re Gonna Make
Me Lonesome When You Go um það leyti sem
hann var að skilja við konuna sína. Lagið er á
plötunni Blood on the Tracks.
Í SPILARANUM HJÁ RITSTJÓRNINNI
Hjálmar: Hjálmar, KampKnox: A tad 65, Worm
is Green: Push Play, Cynic Guru: Iceland, Ramm-
stein: Rosenrot, Stevie Wonder: A Time 2 Love
og The White Stripes: Get Behind Me Satan.
Dúettinn The White Stripes segist eiga Bretlandi
margt að þakka. Jack og Meg White eru nú á túr í
Evrópu og munu spila í Bretlandi hinn
5. nóvember. Þá halda þau tónleika
í Alexandra Palace í London 8.-9.
nóvember. Þau segja það að spila
í Bretlandi hafa haft mikil áhrif á
það hvernig þau haga sér á tón-
leikum. „Við vorum örlítið áhyggju-
full yfir tónleikunum í Alexandra
Palace þegar við spiluðum þar
síðast. Við héldum að staðurinn
yrði tómur en tónleikarnir urðu
svo mjög áhugaverðir og sér-
staklega áhorfendurnir. London
er staður sem við höfum notað
mikið í að læra inn á það hvað
við komumst upp með og hvers
konar andrúmsloft þarf að vera
til staðar svo okkur líði vel þegar við
komum fram,“ sagði Jack White. Hann
bætti því við að hinir ýmsu tónleikar í
Bretlandi hefðu náð ólíkum hlutum
út úr honum og Meg. „Það er mis-
munandi andrúmsloft á hverjum
stað. Sem skemmtikraftur þarf
maður að díla við við þetta allt,
sama hvernig manni líður.“
The White Stripes er þekkt
fyrir að halda tryllta tónleika
og mun sýna okkur mátt sinn
og megin þann 20. nóvember
þegar dúettinn heldur tónleika
hér á Íslandi. Þá er óskandi að
íslenskir tónleikagestir nái að
skapa þetta rétta andrúmsloft
fyrir þau systkin svo tónleikarn-
ir verði sem bestir.
Andrúmsloftið skiptir máli
WHITE STRIPES Þau halda tónleika hér á
landi þann 20. nóvember.