Fréttablaðið - 28.10.2005, Síða 68
28. október 2005 FÖSTUDAGUR
góða skemmtun
Rás 2 hljóðritaði fjörutíu tónlist-
aratriði á Iceland Airwaves sem
lauk um síðustu helgi. Verður öllum
tónleikum útvarpað á næstu vikum
og mánuðum, auk þess sem hluta
þeirra verður útvarpað á fjölda
útvarpsstöðva í Evrópu.
Upptökurnar munu fyrst og fre-
mst heyrast í þætti Andreu Jóns-
dóttur, Konsert, sem er frá 21.00 til
22.00 fjögur kvöld í viku.
Alls voru 29 tónleikar með íslensk-
um nöfnum hljóðritaðir, fjórir frá
Danmörku, þrír frá Englandi og þrír
frá Bandaríkjunum. Á meðal hljóm-
sveita og tónlistarmanna sem voru
hljóðritaðir voru Ghostigital, The
Fiery Furnaces, Forgotten Lores,
Singapore Sling, Juliette & the Licks,
The Viking Giant Show, Daníel Ágúst,
The Zutons og Junior Senior. ■
Fjörutíu
tónleikar
hljóðritaðir
Miðasala er hafin á tónleika sæn-
sku þungarokksveitarinnar Amon
Amarth sem verða haldnir 5. og 6.
nóvember á Grandrokki og í Hell-
inum.
Amon Amarth hefur á að skipa
fimm meðlimum sem gefa allt í
tónleika sína. Tónlistin er kraft-
mikið þungarokk með áherslur
á melódíur, sterka gítarfrasa og
kröftugan söng. Sveitin spilaði síð-
ast hér á landi í mars á síðasta ári
við góðar undirtektir. Miðasala á
tónleikana fer fram í Geisladiska-
búð Valda og á Grandrokki. Miða-
verð er 1.200 krónur. ■
Miðasala hafin
á Amarth
AMON AMARTH Sænska þungarokksveitin
er á leiðinni til Íslands í næsta mánuði.
THE ZUTONS Enska hljómsveitin The Zutons
stóð sig vel á Iceland Airwaves.
prófkjör sjálfstæðismanna í reykjavík fer fram dagana 4. og 5. nóvember www.gislimarteinn.is
Fram er komin ný kynslóð sem hugsar stórt og hefur
kjark til að framkvæma. Til að ná árangri í borginni þarf
Sjálfstæðisflokkurinn að veita þessari kynslóð brautargengi.
Gísli Marteinn er framúrskarandi fulltrúi nýrra tíma - hann er
mikill leiðtogi, heiðarlegur og vinnusamur. Ég treysti honum
vel til góðra verka, Reykvíkingum til heilla.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir
bæjarstjóri