Fréttablaðið - 28.10.2005, Side 69
28. október 2005 FÖSTUDAGUR40
Októberbíófest hófst á
miðvikudaginn með frum-
sýningu dönsku kvik-
myndarinnar Drabet. Per
Fly, leikstjóri hennar, og
Ib Tardini, framleiðandi
myndarinnar, voru rifnir út
úr matarboði og fengnir til
að kynna afurðina. Fékk hún
mjög góðar viðtökur áhorf-
enda en hún hafði fyrr um
daginn hlotið kvikmynda-
verðlaun Norðurlandaráðs.
Í KVÖLD BJÓÐUM VIÐ UPP
Á 12 NÝJAR KVIKMYNDIR
FRÁ 8 LÖNDUM.
Á MORGUN: SPURT OG SVARAÐ MEÐ TOMMY THE CLOWN.
Í Háskólabíói og Regnboga 26. október - 14. nóvember
„Hey, ég fór nú einu sinni á 8 bíómyndir í 12 löndum.“
- jökull ii
REYNIR LYNGDAL, JONATAN DEEVANY OG GUNNAR PÁLSSON Reynir Lyngdal er að leggja
lokahöndina á handrit sem hann og Jón Atli Jónasson skrifa. Hann kíkti í bíó með þeim
Jónatan Deevany og Gunnari Pálssyni.
LEIKSTJÓRINN OG FRAMLEIÐANDINN Leikstjórinn Per Fly var staddur hér á landi til að veita
kvikmyndaverðlaunum Norðurlandaráðs viðtöku. Hér er hann með Ísleifi B. Þórhallssyni,
framkvæmdarstjóra Októberbíófest, og Ib Tardini, framleiðanda myndarinnar.
Kvikmyndaveislan
hafin í Reykjavík
MÁLIN RÆDD Þau Tolli, Gunný Magnús-
dóttir, Martin Schluter og Ásdís Thoroddsen
ræddu málin fyrir sýningu
MÆTT Á SVÆÐIÐ Arna Sigurðardóttir og
Fjalar Sigurðsson létu sig ekki vanta á
opnun Októberbíófest.
ÁNÆGJA MEÐ OKTÓBERBÍÓFEST Ragnhildur
Magnúsdóttir útvarpskona og Bjargey
Ólafsdóttir kvikmyndagerðarkona komu til
að sjá Drabet.
STUND MILLI STRÍÐA Ari Alexander gaf sér
smá tíma frá ferðalögum vegna Gargandi
snilldar og mætti í Háskólabíó ásamt
Sigurði Guðmundssyni.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Leikarinn geðþekki
Alec Baldwin
líkir forræð-
isdeilu sinni
við Kim
Basinger við
að kljást við
krabba-
mein. Hann
segist smám
saman vera
að læra
að höndla
tilfinningar
sínar, en
á tímabili
óttaðist hann að deilan gæti ýtt undir
ofbeldishneigð í skapi hans. „Þetta er
eins og að greinast með krabbamein,“
segir leikarinn í viðtali við Washington
Post. „Ég verð að átta mig á að við
þetta ástand bý ég en jafnframt að setja
hlutina í samhengi.“ Baldwin segist hafa
áttað sig á þessu eitt kvöld þegar hann
var á heimleið og grýtti símanum sínum
í ljósastaur í reiðikasti. Kona sem gekk
fram á hann þekkti hann og sagði að
hann yrði að læra að halda aftur af sér.
„Og það hef ég gert.“