Fréttablaðið - 28.10.2005, Page 72

Fréttablaðið - 28.10.2005, Page 72
Kynning á n‡ju vetrartískunni frá OROBLU í dag í Lyf og heilsu, Austurstræti og á morgun laugardag í Lyf og heilsu, Austurveri kl. 13-17 bá›a dagana. Kaupauki fylgir hverri OROBLU vöru FRÉTTIR AF FÓLKI Keira Knightley segist hafa gaman af því að strippa fyrir framan mynda- vélina. „Ég hef gaman af því að vera kynþokkafull í kvikmyndunum sem ég leik í og hef ekkert á móti því að strippa. Einu sinni þurfti ég hins vegar að dansa yfir kjöltu karlmanns og þá þurfti ég að fara það mikið í sundur með fótleggina að ég gat ekki klárað senuna og þurfti að fá aukamanneskju til þess að leika fyrir mig, ég er svo stirð,“ segir hún. Fyrirsætan Jordan segist aldrei munu líta út fyrir að vera gömul. „Ég myndi aldrei vilja eldast eðlilega. Ég vil alltaf líta út fyrir að vera á þrítugsald- rinum. Ég er viss um að þegar ég verð gömul verði komnar nýjar uppfinningar til þess að hjálpa manni að líta vel út. Þið munuð aldrei sjá mig með grátt hár,“ sagði Jordan og viðurkenndi einnig að þau Peter André hefðu fengið sér botox fyrir brúðkaupið. Kirsten Dunst segist vera skotin í Patriciu Arquette og segir hana vera kynþokkafulla vegna þess að hún lítur ekki alltaf fullkomlega út. „Ég er stelpu-skotin í henni. Hún er alvöru kona og er hvorki með anorexíu né fullkomlega brún. Hún er ekki að reyna að fela hver hún er og það finnst mér kynþokkafullt,“ sagði Kirsten. „Mamma er alltaf að segja mér að láta rétta í mér tennurnar en þær eru eitt af því sem ég er ánægð með. Skakkar tennur eru svo kynþokka- fullar.“ Uma Thurman neyddist til þess að klæðast sínum eigin fötum í nýjustu mynd sinni, Prime, vegna þess að peningar til fram- leiðslu myndarinnar voru af skornum skammti. Hún var því fegin að heyra það að fólk sem hafði séð myndina þótti fatnaður hennar smekklegur.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.