Fréttablaðið - 28.10.2005, Side 73
44 28. október 2005 FÖSTUDAGUR
sport@frettabladid.is
... einfaldlega betri!
Skeifunni 5 og Viðarhöfða 6 í Reykjavík • Smiðjuvegi 6 í Kópavogi • Melabraut 24 í Hafnarfirði • Iðavöllum 8 í Keflavík • Njarðarnesi 1 á Akureyri • Miðási 23 á Egilsstöðum • Víkurbraut 4 á Höfn og Gagnheiði 13 á Selfossi
DVD
Topp 250
IMDB (Internet Movie Database)
Bryggjubúllan
Lyngás 17 • 210 Garðabær
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
25 26 27 28 29 30 31
Föstudagur
OKTÓBER
� � SJÓNVARP
� 07.00 Olíssport á Sýn. Þátturinn er
sýndur til kl 9 og svo aftur kl. 18.
� 18.00 Upphitun á Skjá einum.
� 19.00 Mótorsport á Sýn. Hestöfl
og hasar.
� 19.30 NFL-tilþrif á Sýn. Flottustu
tilþrif síðustu helgar í NFL-boltanum.
� 20.30 Meistaradeildin á Sýn.
Fréttaþáttur.
� 21.00 Sloppið naumlega á Sýn.
Ótrúlegur þáttur um ofurhuga sem
sluppu með skrekkinn.
� 22.20 Bestu NBA-leikirnir á Sýn.
Leikur Chicago og Utah frá árinu
1997.
� 23.50 K-1 á Sýn. Bardagaíþrótt fyrir
alvöru karlmenn.
FÓTBOLTI Landsliðskonurnar Mar-
grét Lára Viðarsdóttir og Laufey
Ólafsdóttir ætla að spila með Vals-
stúlkum í Landsbankadeildinni
næsta sumar og kveðast ákveðnar
í að neita forráðamönnum Breiða-
bliks ef kallið komi þaðan. Blikar
eru stórhuga fyrir næsta tímabil
og hafa verið að sanka að sér nok-
krum af fremstu knattspyrnukon-
um landsins en öruggt er að Mar-
grét Lára og Laufey munu ekki
vera í þeim hópi.
„Það gengur náttúrulega ekki
að eitt lið fái til sín alla leikmenn-
ina. Það verður að vera einhver
spenna í deildinni,“ sagði Mar-
grét Lára kímin við Fréttablaðið
í gær og bætti því að Breiðablik
hefði ekki haft samband enn sem
komið er. „Ég mun segja nei við
Breiðablik. Ég ætla að spila með
besta liði landsins næsta sumar,
sem er Valur,“ bætti hún við
en verið er að ganga frá nýjum
samningi milli Margrétar Láru
og Vals þar sem upphaflegi samn-
ingurinn rann út eftir tímabilið í
ár.
Laufey, sem valin hefur verið
besti leikmaður Íslandsmótsins
síðustu tvö ár, hefur enn ekki
ákveðið hvað hún gerir næsta
sumar og svo gæti farið að hún
legði skóna á hilluna. „Ég á eitt
ár eftir að samningi mínum við
Val en hann er uppsegjanlegur.
Það er ýmislegt sem spilar inn
í en ég er ekki enn búin að taka
ákvörðun,“ sagði hún við Frétta-
blaðið en staðfesti þó að hún færi
ekki til Breiðabliks. „Það er ekki
sniðugt þegar allir leikmenn
ákveða að fara til eins liðs.“
Óvíst er hvað tekur við hjá
Margréti Láru eftir næsta sumar
en þó má telja fullvíst að hún haldi
í atvinnumennsku. Þýska stórliðið
Potsdam, sem fór illa með Vals-
stúlkur í Evrópukeppninni fyrir
skemmstu, vildi fá Margréti Láru
til liðs við sig strax um áramótin
en það tilboð féllst hún ekki á og
sendi þess í stað gagntilboð.
„Ég hef óskað eftir því við full-
trúa Potsdam að fara til þeirra
þegar næsta leiktíð hefst og von-
ast til að þeir séu opnir fyrir því.
Ég er í skóla hér heima sem ég
hef hug á að klára og ég vil spila
eitt sumar í viðbót hér heima til
að vera tilbúnari fyrir atvinnu-
mennskuna. Mig langar mikið til
Potsdam, þetta er eitt af stærstu
félögum heims og það er hrein-
lega ekki hægt að segja nei,“ segir
Margrét Lára, sem er þó með
önnur járn í eldinum ef Potsdam
missir áhugann.
„Það er áhugi frá sænskum
liðum en ég er ekkert að flýta mér
í þessum málum. Nú er ég að ein-
beita mér að því að klára skólann
og ætla svo að klára næsta sumar
með Val. Svo sjáum við til.“
vignir@frettabladid.is
Munu segja nei við Blika
Tvær af sterkustu leikmönnum kvennaboltans, Margrét Lára Viðarsdóttir og
Laufey Ólafsdóttir, eru ekki á leið til Breiðabliks. Margrét Lára verður áfram í
herbúðum Vals en Laufey er enn að hugsa sinn gang.
LAUFEY OG MARGRÉT LÁRA Fóru ekki tómhentar heim frá lokahófi KSÍ sem haldið var fyrir
skemmstu. Laufey var valin leikmaður ársins en Margrét Lára hlaut gullskóinn.
FÓTBOLTI Framtíð Húsvíkingsins
Pálma Rafns Pálmasonar mun
skýrast um helgina eða í upphafi
næstu viku en þá mun hann, sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins,
semja við bikarmeistara Vals.
Pálmi hafnaði samningstilboði KR
fyrr í vikunni og val hans stóð því
á milli Vals og FH.
Samkvæmt mjög áreiðanleg-
um heimildum Fréttablaðsins
eru engar líkur á því að Pálmi
fari til FH og heimildir blaðsins
herma enn fremur að aðeins sé
formsatriði hjá Pálma að ganga
frá samningi við Val, sem er eina
félagið sem hann er í viðræðum
við sem stendur. Pálmi var þögull
þegar Fréttablaðið spurði hann út
í málið og hann vildi hvorki játa
því né neita að hann væri á leið í
Val.
„Þetta er ekki alveg komið hjá
mér en ég mun semja við eitthvert
lið um helgina eða strax eftir
helgi. Það eina sem ég get sagt er
að það lið er fyrir sunnan,“ sagði
Pálmi Rafn. - hbg
Framtíð Pálma Rafns Pálmasonar að skýrast:
Á leið á Hlíðarenda
PÁLMI RAFN Aðeins í viðræðum við Val og
semur við félagið á næstu dögum sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins.
Borðar Mæja í stofunni?
Athyglisverð auglýsing er inni á heima-
síðu FH, fh.is, þar sem handboltagoð-
sögnin Geir Hallsteinsson, sem situr í
stjórn handknattleiksdeildar FH, óskar
eftir eldhúsborði og sjónvarpi á lítinn
eða engan pening. Hlutirnir munu fara
í íbúð dönsku stórkyttunnar Mæju Grön-
bæk sem hefur, samkvæmt þessu, mátt
búa við þröngan kost.
> Þórarinn á leið úr bænum
Framherjinn Þórarinn
Kristjánsson staðfesti við
Fréttablaðið að hann
myndi ekki leika með
liði í Reykjavík næsta
sumar. Þórarinn er á leið
undir hnífinn vegna
hnémeiðsla en hann
verður kominn á ról
aftur eftir 2-3 vikur.
Til stendur að hann
fari til reynslu hjá
sænsku félagi í
kringum áramótin
en verði ekkert úr
þeirri ferð mun
hann leika á
Íslandi. Þar stend-
ur valið á milli
tveggja félaga
- Grindavíkur og
Keflavíkur - en Þórarinn
er alinn upp hjá Keflavík.
Íslenska landsliðið í hand-
knattleik vann eins marks
sigur gegn Pólverjum,
38-37, í fyrsta leik sínum
í fjögurra liða móti sem
fram fer í Póllandi. Íslenska
liðið leiddi allan leikinn og
hafði eins marks forystu í
leikhléi, 18-17. Ólafur Stef-
ánsson var atkvæðamestur
í íslenska liðinu með tíu
mörk en margir leikmenn
íslenska liðsins áttu
góðan leik og þá sér-
staklega í sókninni þar
sem nýting leikmanna
var til mikillar fyrir-
myndar.
„Þetta var mjög
fínt. Við tókum forystuna strax í byrj-
un og leiddum allan leikinn,“ sagði
Einar Þorvarðarson, framkvæmda-
stjóri HSÍ og fyrrverandi aðstoð-
arlandsliðsþjálfari, sem er með
íslenska liðinu í Póllandi.
„Við vorum með 4-5 marka
forystu þegar 10 mínútur voru
eftir en dómarar leiksins voru
ansi duglegir að henda okkur af
velli síðustu tíu mínútur leiksins
og það gerði okkur erfitt fyrir.
Sem betur fer lánaðist okkur
að klára dæmið. Við vorum
klárlega betra liðið í dag og
áttum sigurinn skil-
inn.“
Eins og tölurnar gefa til kynna var
sóknarleikur Íslands fínn en vörn og mark-
varsla var eins og venjulega langt frá því
að vera ásættanleg. „Það var mikill hraði
í leiknum og svo sátum við utan vallar í
24 mínútur á meðan Pólverjarnir þurftu
aðeins að hvíla sig í 8 mínútur. Liðið var
mjög massíft og mér fannst liðsheildin
mjög góð og það eru allir vel yfir 50%
nýtingu. Þetta var bara fínn leikur,“ sagði
Einar.
Viggó Sigurðsson neitaði að ræða
við Fréttablaðið, sem fyrr, eftir leikinn
og skellti á blaðamann. Næsti leikur
íslenska liðsins er klukkan þrjú í dag
gegn Dönum.
ÍSLENSKA HANDBOLTALANDSLIÐIÐ: LÉK VEL Í FYRSTA LEIK Á FJÖGURRA LIÐA MÓTI Í PÓLLANDI
Ólafur með stórleik í eins marks sigri