Tíminn - 31.10.1976, Blaðsíða 7

Tíminn - 31.10.1976, Blaðsíða 7
Sunnudagur 31. október 1976 TÍMINN 7 Jón Helgason, alþingismaður: VERNDUN LYÐRÆÐIS 1 lok siðasta mánaðar var haldin i Kristianssand i Noregi ráöstefna á vegum Noröur- landaráðs um lýöræði. A þessa ráðstefnu komu m.a. stjórn- málamenn, fulltrúar fjölmiðla og aðilar vinnumarkaðarins. 1 umræðunum skýröu menn frá reynslu sinni og viöhorfum. Kom þar fram i ræðum manna að þeir telja ýmsar hættur steðja að lýðræðisskipulaginu enda eru aðstæður á þjóðfélög- um okkar sifellt að breytast og þvi nauðsynlegt að taka tillit til þess, ef það á að uppfylla þær kröfur, sem til þess eru gerðar. Og styrkur lýðræöisins fer eft- ir getu þess til að leysa þau vandamál þjóðfélagsins, sem á hverjum tima er við að glima. Bent var á vaxandi áhrif fjöl- miðla á stjórnmálin. Að ein- hverju leyti stafi þaö af auknum skrifum atvinnublaöamanna um þau. Skrif þeirra mótast að nokkru leyti af því, að þeir eru fastráðnir starfsmenn, sem fyrst og fremst hugsa um sölu- möguleika blaðanna. Og þá get- ur hörð gagnrýni um menn og málefni, jafnvel sleggjudómar og vafasamar fullyrðingar þjónað vel þeim tilgangi. Þetta á ef til vill þátt i þeirri tortryggni og misskilningi, sem sumir ræðumenn ráðstefnunnar ‘öldu vaxandi milli stjórnmála- manna og kjósenda, en þeir bentu á margt fleira, sem kem- ur til greina. Og i þvi sambandi voru t.d. nefnd áhrif hinna svo- kölluðu þrýstihópa, sem ekki væri gerður nægilegur greinar- munur milli framtiöaráætlana og Urræöum til lausnar dagleg- um vandamálum, sifellt væri aö vaxa bilið milli þess, sem er tæknilega framkvæmanlegt, og þess, sem er þjóðfélaginu fjár- hagslega kleift. Og aö lokum má nefna örari þróun i visindunum og tækni, sem leiðir af sér þörf fyrir tiðari lagabreytingar. I þvi sambandi er athyglis- verð spurning, sem Guðlaugur Þorvaldsson, háskólarektor, varpaði fram, hvort við gæfum okkur þann tima, sem lýðræðis- skipulaginu er nauðsynlegur, þar sem það krefst umræðna og athugana, áður en ákvarðanir eru teknar. En eins og viö vitum eru þær kröfur gerðar til stjórnmála- manna, að þeir leysi allan vanda tafarlaustog helztaö þeir sjái alla hluti fyrir, svo aö eng- inn verði var við neina erfiö- leika. Glöggt dæmi um þetta fyrir okkur íslendinga er landhelgis- málið. Ef við litum á þann ótrú- lega árangur, sem þar hefur náðst á s.l. 4 árum, þrátt fyrir það þótt ekkert alþjóöasam- komulag hafi enn tekizt á þvi sviði, og rifjum svo upp hin stóru orð stjdrnarandstöðunnar frá þessum Úrha, bæði i ræöu og riti, þar sem rikisstjórninni var annað hvort borið á brýn algjört athafnaleysi i þvi máli eöa tóm axarsköft, ef eitthvaö var að- hafzt, þá hlytur okkur að finnast nú, að litil rök hafi veriö fyrir þeim stóryrðum. Þetta leiðir óhjákvæmilega hugann að þvi, hvort stjórn- málamennirnir eigi ekki sjálfir mikinn þátt i þvi aö skapa þaö vantraust til þeirra, sem sumir télja vaxandi. Þar á ég við þann sið margra stjórnarandstæðing- anna að ætla i málflutningi sin- um þeim, sem að rikisstjórn standa hverju sinni, hinar verstu hvatir. Að minnsta kosti algjört viljaleysi til að gera nokkurt gagn og þeir kjósi jafn- vel helzt að nota aðstöðu sina til þess að ná sér niðri á náung- anum, sérstaklega á þeim sem verst eru settir. Slikur málflutningur byggist vafalaust á þeirri gömlu hugs- un, að gott ráð til að upphefja sjálfan sig sé að niðurlægja Jón Helgason. aðra. Er þá ekki afleiðingin einnig gamalkunn? Að þeir verði að einhverju leyti einnig niðurlægðir með vantrausti fólks á þeim sjálfum. Mér hefur gengiö illa að skilja, að það sé sennilegt, að stjórnmálamenn sem koma úr ýmsum stéttum þjóðfélagsins og kjörnir eru til starfs sins af samferðamönnunum, séu öðr- um mönnum lakari. En vitan- lega er það eðlilegt og nauðsyn legt að gera strangar kröfur til þeirra, sem slik trúnaðarstörf eru falin. Og athyglisverð fund- ust mér eftirfarandi ummæli Trygve Bratteli, fyrrv. forsætis- ráðherra og formanns verka- mannaflokksins norska, á fyrr- nefndri ráöstefnu um ábyrgð stjórnmálamannsins: „Frámámenn i stjórnmálum verða aö vera við þvi búnir, aö taka afstöðu til mála að við- lagðri verulegri eigin ábyrgð. Þeir, sem hafa tekið viö kosn- ingu, komast við það i þá að- stöðu að kanna að staðaldri þau verkefni þjóðfélagsins sem eru ofarlega á baugi. Þeim ber skylda til að gera skýra grein fyrir þeim niöurstöðum sem þeir komast að i þeim efnum. Vindhanar eru ekki góðir stjórnmálamenn, ef ætlunin er að efla stjórnmálalegt lýöræði. Skoðanakannanaæði nútimans getur ekki heldur losaö neinn stjórnmálamann undan eigin á- byrgð. Hitt er annaö mál, að stjórnmálamaður verður að sanna þær niðurstöður, sem hann kemstað, meöal þess fólks sem hann á aö vinna fyrir. Oft getur verið erfitt og seinlegt að afla frumvarpi nægilegs fylgis. En þaö eflir ekki traust á stjórn- málalegu lýðræði að flýja frá þvi. Þjóðaratkvæðagreiðslur hafa ekki heldur nokkru sinni bjarg- að lýöræöinu. 1 sögu siðustu tima hafa fáir notaö sér eihs margar „þjóðaratkvæða- greiðslur” og Hitler á sinum tima. Og lýðræðigötunnar er litt fallið til að vera siöasta oröiö i lýðræðislegri ákvöröun. Abyrgt þjóðþing og ' stjórnmálamenn, sem vita um ábyrgð sina, eru forsenda, sem úrslitum ræður um stjórnmálalegt lýðræði, sem verður i meginatriðum aö grundvallast á fyrirkomulagi fulltrúakjörs.” Þannig er niðurstaða hins . reynda stjórnmálamanns. En hversu vel sem stjórnmála- mennirnir standa i stöðu sinni geta þeir ekki einir haldið lýð- ræðisþjóöfélagi uppi. Þar þurf- um við þegnar þess, að gera okkur ljósa ábyrgð okkar allra. Við höfum valið okkur misroun- andiverkefni að vinna, er. hvert og eitt erum við meö starfi okk- ar að byggja upp þjóðfélagiö og berum ábyrgð á að leysa starfiö sem bezt af hendi. Sá, sem að framleiðslu vinnur, þarf að leit- ast við að gera hana sem hag- kvæmasta, og sá sem valiö hef- ur þjónustustarf verður aö leggja sig fram viö aö rækja þaö vel. Þá fyrst þegar við höfum gert strangar kröfur til okkar sjálfra, getum við farið að gera það sama til þjóðfélagsins og náungans. Og ef til vill er það mikilvægasta hlutverk stjórn- málamannsins, að reyna að glæöa þann skilning, þar sem fátt mun treysta lýðræðið betur, auk þess sem það er hverjum manni nauðsynlegt að hafa eitt- hvað við að glima. Ekki virðist það sizt eiga við um unga fólkið, þegar það er að veröa illviöráöanlegt vandamál að finna leiðir til að það geti drepiö timann, það verðmæt- asta sem við eigum, ef hanr. er notaöur rétt, þar sem enginn getur heimt hann aftur. En a.m.k. um hverja helgi flýr það — og reyndar miklu fleiri — i stórum hópum frá raunveruleikanum með þvi að gera sig andlega örvita og likamlega ósjálfbjarga með neyzluáfengis. Og i stað þess að treysta á sjálft sig og eigið land og þjóð, leitast sumir við að gera sér ímyndaðar myndir af fjarlægum hálfguðum og telja þá eina hjálpræöiö. Þannig má nefna mörg dæmi um flóttann frá staðreyndum. Við heyrum sagt frá hugsjón- um aldamótakynslóðarinnar, sem lyfti miklu Grettistaki. Vit- anlega getum við ekki á neinn hátt horfið aftur til fortiðarinn- ar, þar sem nýir timar skapa nýjar aðstæður. En við veröum öll að hafa eitt- hvert markmið að stefna að, og við berum öll ábyrgö á þvi sam- félagi sem viö búum i, og þá m.a. að vernda þaö lýöræöi, sem ört vaxandi hluti þjóðar- innar hefur hlotið i arf frá for- feðrunum, þar sem þeim fækkar óöum, sem tóku þátt I sókn þjóð- arinnar til fulls sjálfstæðis. Vængir forráðamanna félagsins, þegar hann reynir að blanda saman flugrekstrarleyfi og viöhaldsmál- um. Þessi óvild flugmálastjóra gerir hann óhæfan meö öllu sem umsagnaraðila um flug- rekstrarbeiðni Vængja. Við munum innan skamms fá sérfræöing i viðgeröarþjónustu, fullgildan flugvirkja til starfa er- lendis frá og nú standa yfir við- ræður við Flugleiðir um viðhalds- starf og eru þær viðræður allar jákvæðar, sagði Guðjón. Aðalatriði málsins er það, að Vængir hf. hafa misst þá menn, sem þarf til að reka starfsemi flugfélagsins af öryggi, sagöi Agnar Kofoed Hansen, flugmála- stjóri, i viðtali við Timann i gær, en flugráð hefur nú sent sam- gönguráðuneytinu umsagnir um framlengingarbeiðnir þriggja flugfélaga, en flugrekstrarleyfi þeirra renna út á sunnudags- kvöld. Umsagnir ráðsins voru já- kvæðar gagnvart Flugfélagi Austurlands og Flugstöðinni, en beiðni Vængja fékk neikvæöa um- sögn. Flugmálastjóri kvaðst vilja taka fram, að sú þjónusta sem Vængir veittu væri mjög þýðingarmikil. — Enda hefur ekki verið minnsta fyrirstaða á þvi að veita félaginu öll hugsan- leg leyfi, sem forsendur hafa ver- ið fyrir að veita. Þannig er þetta einnig nú og mun verða, en fram að þeim tima sem Vængir hafa fengið starfs- krafta til að tryggja öryggi starf- semi sinnar, er vonlaust að tala við nokkurn mann um flug- rekstrarleyfi. Ég undirstrika þaö, að eigandi loftfars ber einn ábyrgð á þvi, aö loltlarið sé lofthæft, sagöi flug- málastjóri að lokum. Framkvæmdir að hefjast við smíði Borgarleikhúss Fyrsta skóflustunga Borgar- leikshússins, sem reist veröur I Kringlubæ, veröur stungin I dag. Mun Birgir ísleifur Gunnarsson, borgarstjóri, annast þessa fyrstu verklegu framkvæmd við byggingu hússins. RÉTTARRÍKI — GRÓUSÖGUR Umræðufundur ó Hótel Sögu í dag 31. október kl. 14 Þátttakendur: Guðmundur G. Þórarinsson, Jón Sigurðsson, Sighvatur Björgvinsson, Vilmundur Gylfason. Umræðustjóri: Magnús Bjarnfreðsson. Allir velkomnir. Fundargestum heimilt að bera fram skriflegar fyrirspurnir. FÉLAG UNGRA FRAMSÓKNARMANNA.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.