Tíminn - 31.10.1976, Blaðsíða 17

Tíminn - 31.10.1976, Blaðsíða 17
Sunnudagur 31. október 1976 TÍMINN 17 AAyndir og texti Magnús Ólafsson — Hér voru miklar fram- kvæmdir við frystihúsiö á árun- um 1972-3. Þá var 600 ferm að- staða fyrir starfsfólk byggð upp, og var það til mikilla bóta. Nú i ár var keypt hús fyrir saltfisk- verkunina og einnig hafa verið fengin tæki fyrir frystihúsið á þessu ári. í þessu er mikil fjár- festing, og árlega er reynt að byggja eitthvað upp og endur- bæta. Það, sem mest er aðkallandi i framtiðinni að gera hér, er að byggja vöruskemmu fyrir r ætíð verzlunina, en hvenær úr fram- kvæmdum við það hús getur orð- ið, fer eftir fjárhagsstöðunni á hverjum tima. Fólkið krefst alltaf meira og við reynum að verða við óskum þess Þegar umsvif kaupfélagsins eru jafn mikil og þú hefur lýst hér, hlýtur oft að vera talað um einokunaraðstöðu kaupfélagsins, a.m.k. af ákveðnum hópi fólks. Hefur kaupfélagið einokunarað- stöðu? — Nei, það er alls engin einokun hjá kaupfélaginu. Við erum til i að fá samkeppni, og okkur þykir ekki verra, ef einhver vill veita okkur hana, enda erum við alls óhræddir við samkeppni. En fólkið krefst alltaf meira og meira af kaupfélaginu og vill, að það veiti sem mesta og bezta þjónustu, enda er það kaupfélag- ið, sem ætið getur veitt bezta þjónustu og er alltaf leitað til þess um að hafa forgöngu um ýmis mál. En hvaða áhrif getur fólkið þá haft á rekstur kaupfélagsins? — Eins og i öðrum kaupfélög- um, eru hér haldnir deildafundir, og eru þeir mjög vel sóttir. Þar eru málefni samvinnufélagar.na rædd af miklum áhuga. Siðan kjósa deildarfundirnir hér i Dalvikurdeild og Svarfaðar- dalsdeild sér þriggja manna deildarstjórn. Þessar deildar- stjórnir halda siöan fund reglu- lega einu sinni i mánuði, þar sem ég mæti og skýri frá þvi, sem er að gerast, og þeir koma þvi á framfæri, sem þeir telja, aö betur mætti fara i rekstri félagsins og þeirri þjónustu, sem það veitir sinum viðskiptavinum. Sem dæmi um mál, sem nýlega kom upp, get ég nefnt, að fisksali, sem hér var, hætti, og þá komu eindregnar óskir um, að kaup- félagið tæki að sér fisksölu. Við þessum óskum var orðið. Þessar deildarstjórnir fara þvi með óbeina stjórn á málefnum kaupfélagsins hér á staðnum, þótt ákvörðun um öll stærri mál veröi að sjálfsögðu að fara fyrir aðal- stjórn KEA. Ég held, að slikt deildastjórnarfyrirkomulag sé fátitt, eða jafnvel einsdæmi á landinu, en hér hefur það gefið mjög góöa raun. Mennirnir, sem sæti eiga I deildastjórnunum, eru mjög áhugasamir og yfirleitt er 100% mæting á fundi. AAeð ungu fólki á Dalvík Þar sem fjölmennið er mest vilja einstaklingarnir týnast — segir Rögnvaldur Friðbjörnsson, skrifstofustjóri ó Dalvík Rögnvaldur Friöbjörnsson skrifstofustjóri útibús KEA á Dalvik er ungur maður, sem á sér mörg áhugamál. Hann er fé- lagi i mörgum félögum á Dalvlk og auk þess sinnir hann ýmsu öðru i tómstundum sinum, eins og t.d. Ijósmyndun o.fl. Rögn- valdur er fæddur í Svarfaðar- dal, stundaði nám I gagnfræða- skóla á Ólafsfirði og siöan í Samvinnuskólanum f Bifröst. Að loknu námi i Samvinnu- skólanum flutti Rögnvaidur til Dalvikur og hóf störf hjá útibúi KEA. Um sama leyti hófst hann handa um að byggja sér hús og býr nú ásamt konu sinni, Guð- riði ólafsdóttur, og dóttur sinni, Lilju Bergiind, á Daivik A ferð um Dalvik nýlega tók- um við Rögnvald tali og spurð- um hann fyrst, hvort ekki hafi verið erfitt að þurfa að byggja yfir sig strax og hann lauk námi og hóf störf. Hér er fólkið hjólpsamt — Nei, það var ekki svo mjög erfitt, og ég tel, að það sé miklu auðveldara fyrir ungt fólk að koma sér upp heimili á litlum stöðum úti á landi en i Reykja- vik. Hér þekkja allir alla, og fólk er mjög hjálpsamt. T.d. voru smiðirnir, sem unnu hjá mér við bygginguna, mjög sanngjarnir og unnu gott verk. Þá er það mikill kostur að geta unnið mik- ið að sinni byggingu sjálfur, þvi þannig verður hún miklu ódýr- ari, en ella. Hefur það aldrei hvarflaö að þér að setjast að I Reykjavik? — Nei ég var alltaf ákveðinn i að búa úti á landi og ef ég þarf einhverra hluta vegna að fara til Reykjavikur, reyni ég ætiö að komast þaðan sem fyrst aftur. Dalvik er mjög góður staður, ognálægðin við Akureyri veldur þvi, að hér er betri þjónusta en viða annars staðar.T.d. er miöe stutt I fullkomna heilbrigöis- þjónustu og auðvelt er meö all aðdrætti. Ef fólkinu fjölgar mikið, tapast ýmsir kostir Nú hefur mikil fólksfjölgun verið hér undanfarin ár. Hvernig likar þér sú þróun? — Það leggja allir áherzlu á að stækka sinn stað og kapp- hlaupið við að fá fleira og fleira fólk til að flytja hingað er gifur- legt. Hér hefur lika fólksfjölgun verið meiri en annars staöar á landinu. Þetta hefur bæði kosti og galla, en ég er alls ekki viss um, að þetta sé skynsamlegt. Ég óttast, að verði hér allt of mikil fólksfjölgun, töpum við ýmsum þeim kostum, sem okk: ar ungi, en litli bær hefur upp á að bjóða, og þvi eigum við að gjalda nokkurs varhuga viö að stuðla að allt of mikilli fólks- fjölgun. Þú nefndir, að nálægöin við Akureyri skapaði mikiö öryggi á ýmsum sviðum. En er ekki slæmt vegasamband hér á milli? — Vissulega þarf mikið að bæta veginn hér á milli, þótt ótrúlega mikið hafi verið gert siðan 1971. Hins vegar tel ég það hæpið að leggja bundiö slitlag á veginn næst Akureyri áöur en búið er að byggja allan veginn upp. *• Það eru snjóalögin á vetrum, sem allar samgöngur hefta og eina ráðið til að losna við þau, er að hækka veginn, og að þvi verki á að snúa sér fyrst, en sið- an getum við farið aö hugsa til þess að leggja bundið slitlag. Mörg félög, sem starfa með blóma Hvernig er félagslif hér á Dalvík? — Hér er mikið félagslif, og mörg félög starfa meö miklum blóma. Má þar til nefna leikfé- lag, tónlistarfélag, ungmenna- félag, kvenfélag, slysavarnar- félag og sitthvað fleira. Þá eru hér starfandi klúbbar eins og Lions og Kiwanis, og einnig er karlakór starfandi á staðnum. Það eru þvi engin vandræði fyrir þá, sem áhuga hafa á fé- lagsstörfum, að finna eitthvað við sitt hæfi, og hér er leitað eft- ir þvi að fá fólk i öll félögin. Ég hef oft haldið þvi fram, að mest hætta sé á aö fólk verði einmana,þar sem fjölmennið er mest. Þar vilja einstaklingarnir týnast. Hér þekkja hins vegar allir alla, og ef fólk hefur áhuga á getur það verið að starfi i ein- hverju félagi hvert kvöld og all- ar helgar. Hins vegar veldur það sumum félögunum erfiðleikum, i hve mörgum félögum sumir eru og starfsemin rekst á. Þannig verður stundum að draga úr starfi sumra félaganna, vegna þess að allir félagarnir, eða hluti þeirra, er á kafi I að sinna öðrum meira aðkallandi félags- störfum. Ahugi á að stofna byggðasafn 1 hvaða félagi starfar þú mest? — Ég hef einna mest gaman af að starfa i Lionsklúbbnum. Starf i honum er stundað af mikilli samvizkusemi, og þar er mikill áhugihjá félagsmönnum. Við hittumst tvisvar i mánuði og yfirleitt er 100% mæting hjá klúbbfélögum. Eins og ðarir Li- onsklúbbar látum við liknarmál mikið til okkar taka og reynum að hlaupa undirbagga hjá þeim, sem i erfiöleikum eiga. Af öðrum málum, sem viö höfum beitt okkur fyrir, má nefna, að við höfum komið upp minnisvarða á Arnarsholti. Þar fannst 12 manna dys úr heiðinni tið fyrir nokkru og höfðum við samráð við forseta íslands, Kristján Eldjárn, um uppsetn- ingu minnisvarðans. Þá hefur klúbburinn mikinn áhuga á, aö hér risi byggðasafn, en þar til af þvi getur oröiö, vinnum við að þvi að safna Lilju Berglind. gömlum munum og skrásetja þá og varðveita. Okkur hefur þegar orðið nokkuð ágengt á þessu sviði, en þessi mál komast þó ekki i gott lag fyrr en við fá- um byggðasafn. Þá hefur klúbburinn komið upp útsýnisskifu fyrir ferða- menn og sitthvað annað hefur hann látið til sin taka. Vaxandi tónlistaróhugi Nú er nýstofnab tónlistarfélag hér á Dalvik. Hvað getur þú sagt okkur um starfsemi þess? — Forgöngu um stofnun þessa tónlistarfélags hafði Kári Gestsson skólastjóri tónlistar- skólans..Kári kom hingað til Dalvikur i fyrra, þegar hann hafði lokið námi við pianóleik við skóla i Englandi. Kári er sonur Gests Hjörleifssonar sem um f jölda ára hefur haldið uppi þvi tónlistarlifi, sem hér hefur verið. M.a. hefur hann verið stjórnandi karlakórsins og org- anleikariikirkjunni, og um ára- raðir var hann skólastjóri tón- listarskólans. Siðan tónlistarfélagið var stofnað hefur það látið mörg mál til sin taka til að efla hér tónlistarlif. M .a. hefur þaö gengist fyrir að fá hingað góða gesti i heimsókn og halda hér tónleika. Við getum nefnt að hingað kom Tónskóli Garðars Cortes og hélt tónleika ásamt mörgum einsöngvurum og var sú koma á vegum tónlistarfélagsins og Norræna félagsins. Þá komu hingað i fyrra Philip Jenkings og Einar Jóhannesson og ekki má gleyma að tónlistarfélagið gekkst fyrir þvi að fá hingað 20 manna strengjahljómsveit frá Þýzkalandi sem lék hér viö mjög mikla hrifningu áheyr- enda. Eru tónleikar vei sóttir? — Nei þvi miður eru allt of fá- ir, sem fást til að sækja tón- leika. En hins vegar fer þeim fjölgandi . Oft er þaö svo, aö ef fölk kemur eitt sinn á góða tónleika, verður það fastir gest- ir eftir það. Hins vegar er þaö slæmt, hve sjaldan við getum boðið upp á mjög góða tónleika, og þarf með einhverjum ráðum að reyna að fjölga slikum menn- ingarviðburðum. Verðugt íhugunarefni Annars er það verðugt íhug- unarefni að þegar hægt er að bjóða upp á mjög góða 20 manna hljómsveit frá Þýzkalandi fyrir aðeins 70 þúsund krónur, skuli áhugi fólks ekki vera meiri en svo, að tap er á komu þeirra hingað. Hins vegar geta komið hér ýmsar skranhljómsveitir, fengið húsfylli og farið burt með hagnað af öllu saman Hvað er helzt á döfinni til að auka tónlistaráhuga hér á staðnum? — Við höfum margir mjög mikinn áhuga á að fá hingað flygil og nú hillir undir, aö sá draumur rætist. Tónlistarfélag- ið hefur pantað vandaðan flygil, og er þess vænzt, að hann komi hingað i desember nk. Slikt tæki kostar mikið fé, og verður kostnaður við kaupin vart undir 2 millj. kr. En við teljum von- laust annað en að fá slikt tæki, þvi ef hér á að halda uppi góðu tónlistarlifi, er ekki hægt að vera með eitthvert hálfkák. Enn er þó óljóst á hvern hátt hægt verður að komast yfir þessi kaup fjárhagslega, en við treystum á, að fólk leggi eitt- hvað á sig til þess að hægt verði að fá þennan veglega grip. Nýjar hugmyndir Hvað getur þú sagt okkur af starfi leikfélagsins? — Leikfélagið stendur sig mjög vel og vinnur mikið starf. Það hefur oft tekið stór verk til sýninga, og áformað er, að stórt verk verði sett upp í vetur. Mik- ill áhugi er á að fá leikstjóra aö sunnan til að stjórna upp- setningunni og vonandi rætist það. Ég tel þaðmikið atriði fyrir leiklistarlif úti á landi að fá öðru hvoru aökomuleikstjóra til að setja verk á svið, þvi slikir menn flytja alltaf einhverjar nýjarhugmyndirmeð sér, og af þeim lærir fólkið mikið. Annars má segja, að aðal- hjálparhella leikfélagsins við uppsetningu á verkum hafi á liðnum árum verið Jóhann ög- mundsson á Akureyri, og hefur hann veitt ómetanlega aðstoð. Og þar með urðum viö Rögn- valdur að slita tali okkar, þvi æfing karlakórsins var að hefj- ast i félagsheimilinu, og á æf- ingu karlakórsins lata áhuga- samir kórfélagar, eins og Rögn- valdur, sig ekki vanta. — MÓ Rögnvaldur FriObjörnsson skrifstofustjóri og kona hans Guðriður ólafsdóttir með dótturina

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.