Tíminn - 31.10.1976, Blaðsíða 39

Tíminn - 31.10.1976, Blaðsíða 39
Sunnudagur 31. oktdber 1976 TÍMINN 39 flokksstarfið Rangæingar Aöalfundur Framsóknarfélags Rangárvallasýslu veröur hald- inn í Gagnfræöaskólanupi Hvolsvelli sunnudaginn 31. október kl. 3 sd. Dagskrá: Venjuleg aöalfundastörf, kosning fulltrúa á kjör- dæmisþing. Þórarinn Sigurjónsson alþingismaöur mætir á fund- inum og skýrir frá störfum Alþingis og þeim málum, sem þar eru efst á baugi. Stjórnin. F.U.F. Keflavík Fundur veröur haldinn i Framsóknarhúsinu mánudaginn 15. nóv. og hefst kl. 8.30. Fundarefni: 1. Sparsemi F.U.F. I vetur. 2. Kosning fulltrúa á kjördæmisþing. 3.útgáfa Jökuls. Félagsmenn eru sérstaklega beönir um aö ihuga fyrsta liö og koma meö tillögur. Sýnum félagsþroska og fjölmennum stund- víslega. Stjórnin. Hádegisverðafundur S.U.F. Stjórn SUF heldur opna fundi á Hótel Hofi Reykjavik I hádeginu á mánudögum. Allir félagar i FUF félögum velkomnir. Stjórn SUF Húsvíkingar Frá 1. október aö telja veröur skrifstofa Framsóknarflokksins á Húsavik opin á miðvikudögum og fimmtudögum milli kl. 18 og 19ogálaugardögum millikl. 17og 19. Bæjarfulltrúar flokksins veröa til viðtals á skrifstofunni á mið- vikudögum kl. 18 til 19, og eru bæjarbúar hvattir til að notfæra sér þá þjónustu. Kanaríeyjar Munum geta boðið upp á Kanarieyjaferðir i vetur. Hafið samband við skrifstofuna Rauðar- árstig 18. Reykjavik simi 24480. Snæfellsnes Almennir fundir i Ólafsvik mánudaginn 1. nóv. kl. 9. Hellissandi þriðjudag 2. nóv.- kl. 9. Vegamótum miðvikudag 3. nóv. kl. 9. Halldór E. Sigurðsson. Reykjaneskjördæmi Kjördæmisþing Framsóknarmanna I Reykjaneskjördæmi verður haldið i Hlégaröi sunnudaginn 21. nóvember og hefst kl. lOf.h. Formenn flokksfélaganna eru beðnir að huga aö kjöri full- trúa á þingiö. Stjórn K.F.R. Framsóknarvist ó Hótel Sögu Fimmtudaginn 11. nóv. 1976 veröur spiluö framsóknarvist aö Hótel Sögu í súlnasal. Húsiö opnaö kl. 20,byrjaö aö spila kl. 20.30, dans á eftir. Góö kvöldverölaun. Allir velkomnir. Framsóknar- félag Reykjavikur. Félag ungra framsóknarmanna, Reykjavík boöar til almenns umræöufundar aö Hótel Sögu súlnasal, sunnu- daginn 31. október kl. 2. Fundarefni: Réttarriki — Gróusögur. Þátttakendur I umræöum Guömundur G. Þórarinsson, Jón Sig- urösson, Sighvatur Björgvinsson og Vilmundur Gylfason, um- ræðustjóri Magnús Bjarnfreösson. Fundargestir fá aö leggja fram skriflegar spurningar. Allir velkomnir. — Stjórnin. Norðurlandskjördæmi eystra Akureyri Skrifstofa Framsóknarflokksins aö Hafnarstræti 90 veröur op- in sem hér segir: Mánudaga kl. 13.00-15.00. Þriðjudaga og miðvikudaga kl. 17.00-19.00. Fimmtudaga kl. 14.00-17.00. Föstudaga kl. 15.00-19.00. Laugardaga kl. 14.00-17.00. Simi skrifstofunnar er 21180. Kjördæmissambandiö. Fundur um kjördæmamól Almennur fundur um kjördæmamálin aö Hótel Esju fimmtudag- inn 4. nóvember kl. 8.30. Frummælendur: Gunnlaugur FinnSson alþingismaöur og Jón Sigurðsson skrifstofustjóri. Framsóknarfélag Reykjavikur. Keflavík — Nógrenni Fulltrúaráö framsóknarfélagana i Keflavik og nágrenni heldur fund i Framsóknarhúsinu i Keflavik fimmtudaginn 4. nóv. n.k. og hefst hann kl. 20.30. Fundarefni: Vetrarstarfiö. Stjórnin. London? Kanarí? Kjalarnes, Kjós, AAosfellssveit Kjósarsýslubúar! Framsóknarfélag Kjósarsýslu býöur velunnurum slnum upp á sérstök afsláttarkjör meö Samvinnu- feröum til Kanarieyja i vetur. Þessi vildarkjör gilda fyrir allar Kanariferöir meö Samvinnuferðum, utan jóla- og páskaferöir. Einnig stendur til boöa vikuferö til London 4. desember n .k. Upplýsingar gefur Kristján B. Þórarinsson, Arnartanga 42 simi 66406. Hafnarfjörður * Skrifstofa Framsóknarfélaganna er flutt aö Lækjargötu 32. Viðtalstimi bæjarfulltrúa og nefndarmanna er alla mánudaga kl. 18-19. Framsóknarvist ó Flateyri Framsóknarfélag Onundarfjarðar veröur meö spilakeppni i samkomuhúsinu Flateyri föstudaginn 5. nóv. Byrjaö verður aö spila kl. 21.00. Verðlaun fyrir hvert kvöld. — Allir velkomnir. O Á slóðum... löndum fengum við að sjá i svip dýrð vorsins, en uröum strax að skilja við hana aftur. Ferðin átti fyrstað fara eftirmiöjan april, en henni var flýtt um viku. Fyrir bragðiö fengum við miklu verra veður, og ég var svo timabundin, af þvi að ég varð aö vera komin heimfyrir 15. april. Þá var hundr- að ára afmæli fööur mins, og við systurnar ætluöum aö halda upp á það á gamla heimilinu okkar að Þingholtsstr. 14. Ég varö aö fara heim degi á undan Einari, og feröaöist 13. april frá hótelinu i ljö;a;koðun LÝKUR 31. OKTÓDER UMFERÐARRÁÐ Köln, þar sem við gistum, upp Rinardalinn og Moseldalinn, til Luxemburg, og svo þaðan til Keflavikur og Reykjavikur. Loks raunverulegt fri — Fékk séra Einar aldrei fri frá störfum, til dæmis ársleyfi, eins og ekki er ótitt um embættis- menn? — Jú. Arið 1960 fengum viö bæði frí, hann frá prestsstörfum, og ég frá kennslunni. Þá ferðuö- umst viö til Englands, Parisar, Þýzkalands og Danmerkur. Ferö- in byrjaði ekki vel, þvi þegar viö höfðum flogið tæpan klukkutima frá Reykjavik, sá ég að flugfreyj- umar gengu um glaðlegar á svip og sögöu eitthvaö, sem mér heyrðist vera: „við veröum að snúa við vegna vélarbilunar”. Þetta reyndist vera rétt, og viö lentum heilu og höldnu á Kefla- vikurflugvelli, en lendingin var ægileg. Báöir hreyflarnir öörum megin á vélinni voru bilaöir. Viö gistum á flugvallarhótelinu og næsta morgun urðum viö aö fara aftur til Reykjavikur og fara þaö- an meö vél frá Flugfélaginu. Viö höfðum verið meö Loftleiöavél, sem hét Leifur heppni, og var þetta fyrsta ferö hennar milli Ameriku og Englands. Við dvöldumstnokkurn tima I Englandi, en þar var fremur kalt. Svo vorum við vikutima i Paris I mjög góöu yfirlæti meö vinum okkar, Óttari Þorgilssyni, og vin- um hans i Islenzka sendiráöinu, þar á meöal sendiherranum, Agnari Kl. Jónssyni. 1 Þýzkalandi komum viö til Köln og Hamborg- ar og dvöldumst svo i nokkra mánuði i Kaupmannahöfn. Dóttir okkar Steinunn, sem var við nám iLondon um þetta leyti, ferðaðist með okkur i páskafrii sinu, og dvölin i Danmörku var mjög ánægjuleg. — Þú sagðir áðan, að það hefði veriðheldur kalt i Englandi, þeg- ar þið voruð þar. Var feröin farin að vetrarlagi? — Við fórum til Englands i marzmánuði, en i Danmörku vor- um við i april, mai og dálitiö fram i júni. En þá þurfti Einar aö flýta sér heim til þess að ferma. — Nú hefur þú lagt hönd aö ýmsu um dagana, en hvað af þvi heldur þú að hafi höfðað sterkast til þin? Dýrmætast alls — Þvi er fljótsvarað. Það er heimilið og uppeldi barna minna, — samvistirnar við mann minn, börn og annað heimilisfólk. Embættisframi minn gekk i öfuga átt viö þaö sem algengast er. Ég byrjaöi á þvi aö kenna i háskóla, svo komst ég aö mennta- skóla, þar næst gagnfræðaskóla og seinast héraðsskóla. En það segi ég i fullri hreinskilni, að mér þótti eins gott aö kenna viö hér- aðsskólann eins og nokkurn af hinum skólunum. Þar rikti svo góöur andi milli kennara og nem- enda.Nemendurnir skoöuöu kennarana sem vini sina og hjálparmenn, en ekki sem dóm- ara, eins og oft bar til i hinum skólunum. Hvar sem við hjónin ferðuðumst um landiö, hittum við jafnan gamla nemendur. Það voru alltaf fagnaöarfundir. Þeir buðu okkur á heimili sin, ef þvi varð við komið, og voru ætið boðnir og búnir til þess að greiða götúokkar. Kynni min af nemend- um minum, fyrr og siðar, er mér dýrmæt reynsla, sem ég heföi ekki viljað fara á mis við. —VS. © Nú — tíminn gitarinn á plötunni, en að sögn erlendra blaða, er þetta þó ekk- ert á við það, sem hann sýnir á hljómleikum, en þar nær hann vist hinum ótrulegustu hljómum úr gitarnum, svo að helzt minnir á Hendrik heitinn, þ.e. hljóðin, en ekki stillinn. Ekki er gott um það aö segja, hvort Nugent sé eins konar halastjarna, sem skýzt upp á stjörnuhimininn um stundar- sakir og hverfur siðan, en full- yrða má, að erfitt veröur fyrir hann að fylgja þessari frábæru plötu eftir. Beztu lög: I Love You So I Told You A Lie Writing On The Wall Together Hammerdown sþs

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.