Fréttablaðið - 24.05.2006, Blaðsíða 96
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
www.toyota.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
32
86
8
05
/2
00
6
Toyota
Nýbýlavegi 4
Kópavogur
Sími: 570-5070
Toyota Akureyri
Baldursnesi 1
Akureyri
Sími: 460-4300
Toyota Reykjanesbæ
Njarðarbraut 19
Reykjanesbær
Sími: 421-4888
Toyota Selfossi
Fossnesi 14
Selfoss
Sími: 480-8000
Fagnaðu nýrri Corollu
með grillveislu
Góður bíll - og grillið fylgir.
Sumarið er góður tími til að gleðja vini og fjölskyldu. Þess
vegna fylgir nú öllum seldum Corolla einstaklega veglegur
grillpakki að verðmæti 130 þús. krónur: Gæða Permasteel
grill frá Byko, grillábreiða, 10 kg gaskútur, hágæða grill-
tangasett og 10 manna grillveisla frá Nóatúni. Allt þetta
færðu samansett og sent heim til þín. Það gerist varla betra.
Fagnaðu nýrri Corollu með grillveislu.
Corolla er einn vinsælasti bíll síðustu tveggja áratuga.
Aksturseiginleikar, öryggi, sparneytni og lág bilanatíðni hafa
skipað honum sérstakan sess í hugum Íslendinga.
Á endanum velur þú Corolla.
Verð frá 1.859.000 kr.
Grillpakki að verðmæti
130 þús. krónur:
Gæða Permasteel grill frá Byko, grillábreiða,
10 kg gaskútur, hágæða grilltangasett og
10 manna grillveisla frá Nóatúni.
����������
����������������������
Ég var að lesa Draumalandið eftir Andra Snæ. Ég veit ekki
við hverju ég bjóst, kannske ein-
hverju líku Draumalandinu hans
Davíðs. En lesning þessa Drauma-
lands er á góðri leið með að ræna
mig sálarró. Það verður að gera
eitthvað öskrar bókin. Þið getið
ekki látið þetta álæði viðgangast
lengur.
HJÚKK! Litla friðsæla náttborðið
mitt er orðið eins og eldspúandi
eldfjall, En hvað get ég gert? Og
það er eins og hver nýr dagur boði
nýjar hremmingar. Ég opna
Fréttablaðið illa sofin, draumfarir
næturinnar í ætt við Drauma-
landið á náttborðinu, farin að sjá
barnabörnin fyrir mér með bjána-
lega álhatta eins og liðið á Húsa-
vík var með þegar verið var að
fagna því að Alcoa hafði útvalið
þau til næsta Álvers. Og nýjustu
kannanir sýna mér að 50 prósent
Hafnfirðinga vilja ólmir stækkun
álversins í Straumsvík.
EN smá ljósglæta er samt sam-
fara því að sjá að það höfðu aðal-
lega verið kallarnir í Hafnarfirði
sem voru svona hræddir við hót-
anir Álvesrekanda um að ef þeir
fengju ekki að stækka þá myndu
þeir bara hætta við heila gillið
eftir 15 ár. Og hvað þá? – atvinnu-
leysi – hrun? – Eitthvað ægilegt!
En konurnar í Hafnarfirði voru
flestar á móti stækkun.
KONUR hafa líka alltaf verið
hugrakkari en karlmenn. Ég var
að lesa bók eftir einhvern Þjóð-
verja um rannsóknir á Kötlugos-
um langt aftur í aldir. Hann segir
sögu af hjónum í Mýrdalnum árið
1918 þegar náttúruhamfarirnar
stóðu sem hæst og einn stórbónd-
inn sat nötrandi af ótta við glugg-
ann og horfði á kirkju staðarins
fljóta í heilu lagi á haf út í einni
holskeflunni. Hann kallaði þá yfir
til eiginkonu sinnar sem var hátt-
uð upp í rúm og farin að hrjóta:
„Guðný mín, finnst þér viðeigandi
að sofa meðan heimurinn er að
farast?“ Kella reis þá upp í rúm-
inu og spurði: „Væri þér þökk á
því gæskur að ég kæmi til þín og
horfði með þér á eyðilegginguna?“
Þegar bóndi svaraði því játandi,
sveiflaði hún sér fram úr og sagði:
„Þá verður þú líka að gefa mér í
nefið.“
EN enginn gefur mér í nefið og
strákarnir í Hafnarfirði hafa svo
sem ekkert verið að spyrja mig
ráða. En svona er lífið.
Álver og eldgos
AUGL†SINGASÍMI
550 5000