Tíminn - 06.04.1978, Side 6
6
Fimmtudagur 6. april 1978.
Halldór E. Sigurdsson:
Landbúnadarvörur hvar-
vetna greiddar niður
— fyrirspurn um markaðsmál landbúnaöarins
Sigurlaug Bjarnadóttir
mælti á fundi sameinaðs
þings á þriðjudag fyrir
fyrirspurn um markaðs-
mál landbúnaðarins er
þannig hljóðar: //1.
Hvernig er í meginatriðum
háttað ákvörðunum ís-
lenzkra söluaðila um nýtt
átak i markaðsleit fyrir ís-
lenzkt dilkakjöt? 2. Hvaða
réttir úr islenzku dilkakjöti
voru kynntir á Grænu vik-
unni i Berlin? 3. Hverjir
eiga sæti í markaðsnefnd
landbúnaðarins/ er stofnað
vartilá Búnaðarþingi á s.l.
ári?"
Svar Halldórs E. Sigurðssonar
landbúnaöarráðherra fer hér á
eftir: „Herra forseti. Ég býst við
þvi að verða að taka svar mitt i
einhverri annarri röð heldur en
fyrirspurnirnar eru, en fyrst er,
hvernig er i meginatriðum háttað
áformum islenzkra söluaðila um
nýtt átak i markaðsleit fyrir is-
lenzkt dilkakjöt? Og vil ég i þvi
sambandi lesa hér greinargerö
sem formaður markaðsnefndar
hefur samið um störf hennar.”
Viðleitní markaðsnefndar
t greinargerð sem ráðherra las
segir m.a.: „Segja má, að við-
leitni nefndarinnar hafi til þessa
aðallega beinzt að fjórum atrið-
um hvaö varðar sölu á dilkakjöti.
1. Aukning á sölu dilkakjöts
innanlands og hagkvæmari skipt-
ing einstakra hluta skrokksins.
Hagstæðara verði á núverandi út-
flutningsmörkuðum, markaðsleit
með þátttöku i sýningum og á
annan hátt. 4. Framleiðsla nýrra
vörutegunda úr dilkakjöti með út-
flutning i huga.
Markaðsnefndin beitti sér fyrir
þvi að gera tillögur til sex manna
nefndar um breytingu verðhlut-
falla milli hinna ýmsu hluta dilk-
skrokksins. En verðmunur var
orðinn mjög óverulegur milli t.d.
læra og hryggja annars vegar og
framparta hins vegar og olli sölu-
erfiöleikum á framhlutum. I sið-
ustu verðlagningu kom sex
manna nefnd nokkuð til móts við
tillögu markaðsnefndar og mun
verða haldið áfram að vinna að
breytingu verðhlutfallanna fyrir
næstu verðlagningu búvara.
Markaðsnefndin beitir sér nú
fyrir tilraunum með að pakka
niðursneidda framparta i smekk-
legar umbúðir og væntir þess, að
þær ráðstafanir stuðli að aukinni
sölu á dilkakjöti innanlands. Þeg-
ar breyting á verðhlutföllum hef-
ur náðst að fullu, opnast mögu-
leikar til að flytja dýrari hlutana
út sér, en vinna ýmsa sérrétti úr
frampörtunum.
2. Formaður markaðsnefndar,
Sveinn Tryggvason, ferðaðist til
Noregs og Sviþjóðar á s.l hausti og
átti m.a. viðræður við land-
búnaðarráðherra beggja land-
anna og aðra ráðamenn á sviði
markaðsmála. Var þar m.a. rætt
um þann aðstöðumun, sem er á
milli þarlendra og islenzkra
framleiðenda dilkakjöts, sem
fólgin er i miklum niðurgreiðslum
á sænsku og norsku dilkakjöti.
Var þessu erindi Sveins tekið til
skilnings hjá ráðamönnum, en
niðurstaða liggur ekki enn þá fyr-
ir.
Þá ferðaðist starfsmaður
markaðsnefndar, Jón Ragnar
Björnsson, til Danmerkur og Svi-
þjóðar á siðasta hausti til þess að
kynna sér verðmyndun og
markaðshleðslu á dilkakjöti og
pörtum og pökkun á kjöti.”
Bætti ráðherra þvi við að hann
hefði sjálfur átt viðræður við alla
landbúnaðarráðherra Norður-
landanna um einmitt þessi
markaðsmál og að auki við aðal-
forstjóra FAO. „Þau erindi sem
við höfum sent þeim i sambandi
við þessi mál,” sagði ráðherra,
„eru til athugunar hjá ráðherrum
i hverju landinu fyrir sig, en á þvi
eru ýmis vandkvæði eins og fram
kom i erindinu hér að framan,
vegna þess hvað niðurgreiðslur á
þeirra kjöti eru miklar heima fyr-
ir.”
Græna vikan i Berlín
„3. Markaðsnefndin var með i
ráðum varðandi undirbúning að
þátttöku Islendinga að grænu vik-
unni i Berlin. Þátttakan i sýning-
unni var undanfari markaðs-
fræðslu á dilkakjöti i Vestur-
Berlin, en ástæða þykir til að
kanna sölumöguleika þar, þvi að
Vestur-Berlin er talinn álitlegur
markaður hjá Vestur-Þýzkalandi
fyrir dilkakjöt. Frekari kynning-
ar munu verða á kjötinu á
ákveðnum hótelum og sér-
verzlunum i Vestur-Berlin nú i
vor, og munu þær að likindum
hefjast i þessum mánuði.
t annan stað hefur markaðs-
nefndin unnið allmikið að þvi að
koma dilkakjötinu til vinnslu hjá
bandariska varnarliðinu á Kefla-
vikurflugvelli. Það mál er enn á
umræðustigi. Markaðsnefndin
hefur óskað þess, að gerðar verði
alþingi
Halldór E. Sigurösson
tilraunir i sumar, til að kynna is-
lenzkar búvörur i frihöfninni,
m.a. með þvi að gefa flugfarþeg-
um kost á að bragða á islenzkum
réttum og sérmeti, þar með talið
reykt kjöt. Ætlunin er að reyna að
gera jafnframt markaðskannanir
um leið, en um flugvöllinn fara
hundruð þúsunda farþega á ári af
fjölmörgum þjóðernum og þvi
kjörið tækifæri að færa sér I nyt
þá aðstöðu, sem viö höfum hér
hjá okkur, sem gæti sparað veru-
legar fjárhæðir i markaðs-
kannanir. Um þennan lið heyra
annars vegar pökkun og hins veg-
ar framleiösla sérmetis.
Markaðsnefndin hefur unnið
nokkuð að undirbúningi á pörtum
og pökkun dilkakjöts i neytenda-
umbúðir. Þessu starfi er hvergi
nærri lokið, en unnið verður
áfram að frágangi málsins.
Flestir sem til þekkja telja, að i
framtiðinni muni útflutningur
dilkakjöts byggjast á pökkun á
kjöti allt frá pörtuðum stykkjum
til fullgerðra sérrétta, sem til-
búnireru á borð neytenda. Flutn-
ingskostnaður er verulegt atriði i
þessu sambandi, þvi að telja má,
að unnt sé að spara allt að
helmingi rýmis, sé kjötið flutt út
partað og pakkað i stað heil-
skrokka. Markaðsnefndin hefur
leitað til ýmissa aðila i kjöt-
vinnslu og matargerð til þess að
huga að framleiðslu sérmetis,
sem orðið gæti útflutningsvara.
Of snemmt er að segja nokkuð um
þetta atriði, en nokkrar athyglis-
verðar hugmyndir hafa komið
fram, sem verið er að skoða. Auk
þeirra verkefna, sem hér eru
fram talin, hefur markaðsnefnd
unnið að framgangi ýmissa ann-
arra mála, t.d. möguleika til hey-
flutnings o.fl.”
Þá svaraði ráðherra 2. lið fyrir-
spurnarinnar og sagði að islenzki
matseðillinn á grænu vikunni i
Berlin hefði verið eftirfarandi:
Kaviar, reyktur lax, hangið læri,
hanginn hryggur, London lamb,
lambahryggur, lambakótelettur,
lambageiri, lambalæri, lamba-
smásteik með sveppum og aö lok-
um ostar. Ellefu réttir hefðu verið
fram bornir og neytendur tekið
þeim mjög vel.
Sem svar við þriðja lið kom
fram að i markaðsneínd land-
búnaðarins eiga sæti: „Fram-
leiðsluráð landbúnaðarins. Full-
trúi þess er Sveinn Tryggvason
framkvæmdastjóri, sem er for-
maður nefndar.
2. Landbúnaðarráðuneytið.
Fulltrúi þess er Sveinbjörn Dag-
finnsson ráðuneytisstjóri.
3. Stéttarsamband bænda, full-
trúi þess er Jón Helgason alþm.
4. Búnaðarfélag Islands. Full-
trúi þess er Sveinn Hallgrimsson
sauðfjárræktarráðunautur.
5. Samband isl. samvinnu-
félaga. Fulltrúi þess er Ragnar
Tryggvason framkvæmdastjóri.
Starfsmaður nefndarinnar er
Jón Ragnar Björnsson. Alls hefur
nefndin haldið 18 fundi og rætt
ýmsa þætti varðandi markaðs-
mál.”
Verðbreyting milli land-
búnaðar- og sjávarútvegs-
vara
Ég vil svo áður en ég lýk máli
minu segja það að það hafa verið
miklar umræður um sölu á land-
búnaðarvörum, sérstaklega á
þessu og jafnvel siðasta ári. Á ár-
unum frá 1971-1973 og reyndar
áöur, þá þurfti aldrei að halda á
þeim 10% framlagi til útflutn-
ingsuppbóta sem lög mæltu fyrir
um. Hins vegar hefur það verið
svo siðan 1974, þá stóð þetta i
járnum og reyndar hefur það gert
það nú einnig árin 1975, 1976 og
1977, en um árið 1975 er það að
segja að þar náðist ekki fullt
grundvallarverð en hin árin öll
hefur það náðst. Nú er hins vegar
gert ráð fyrir þvi að framleiðslan
á s.l. ári — vegna þess hvað tiðar-
far var þá hagstætt og hvað land-
búnaður er orðinn vel vél væddur
— þá verði það meira heldur en
hægt sé að neyta hér innanlands
og selja innan þessara marka.
Hins vegar er rétt að benda á það
að frá árinu 1971 hefur orðið sú
verðbreyting á milli land-
búnaðarvara og sjávarútvegs-
vara að 1971 var verðið á fisk-
blokkinni i Bandarikjunum 21
cent en núna er það komið i einn
dollar og yfir 30 cent. A þessum
fáu árum hefur þessi breyting
orðið svo giurleg sem raun ber
vitni um. Samt er það svo að þeir
sem selja á þennan markað telja
sig ekki of haldna. Hins vegarhef
ur það verið þannig með land-
búnaðinn að vegna þess að verð-
bólgan i okkar landi hefur verið
svo mikil sem vitað er og svo hitt
að bezti markaðurinn sem var og
er enn þá hefur breyst okkur i
óhag vegna þess að Norðmenn
hafa tekið upp niðurgreiðslur á
sinum vörum á heimamarkaði.
Þetta hefur gert það að verkum
að við gátum þar áður selt fyrir
vona 70-80% af framleiðsluverði
hér heima en nú erum við svona
öðru hvoru megin við 50%. Þetta
sýnir þá miklu breytingu sem
hefur orðið i óhag fyrir land-
búnaðarvörurnar. Hins vegar -
hefur á siðustu árum gæru-
markaðurinn verið sæmilegur
sérstaklega vegna þess að vinnsla
á gærum hér heima fyrir hefur
farið svo vaxandi og sama er að
segja um ullarmarkaðinn. Þó er
það svo að okkar verðbólga segir
þar til sin eins og á öðrum sviðum
þar sem útflutningurinn á sér
stað Ég vil þvi segjaþað' að mér er
það fullkomlega ljóst að unnið er
að þvi að skipuleggja betur land-
búnaðarframleiðsluna heldur en
áður hefur verið gert. M.a. tók
Búnaðarþing undir það sem fram
kom i ræðu bæði formanns
Búnaðarfélagsins og land-
búnaðarráðherra við setningu
Búnaðarþings 1977 sem var
ábending um markaðsnefndina
sem stofnuð hefur verið og um
heildarskipulagning þessara
mála með þeim hætti að óska eftir
að skipuð yrði nefnd til þess að
fjalla um þessi mál i heild. Hún
verður skipuð fulltrúum frá
Búnaðarfélagi Islands og Stéttar-
Framhald á bls. 19.
407 bændur óska
ef tir lánum til að
ljúka lausaskuldum
Á fundi sameinaðs Alþingis á
þriðjudag svaraði Halldór E.
Sigurösson fyrirspurn frá Jón-
asi Árnasyni (Abl) um lausa-
skuidir bænda en fyrirspurnin
er svohljóðandi: „Hvað liður
framkvæmd þingsályktunartil-
lögufrá 29.april 1977 um athug-
un á nauðsyn þes$ að útvega
veðdeild Búnaðarbankans
aukafjármagn handa bændum
til að breyta lausaskuldum f föst
lán?”
Flutningsmaður þessarar til-
lögu var Páll Pétursson og
hljóðaði hún þannig i heild: ,,A1-
þingi ályktar að fela rikisstjórn
aðláta fara fram athugun á þvi
hvort nauðsynlegt sé að Utvega
veðdeild Búnaðarbanka Islands
aukafjármagn þannig að veö-
deildinni verði gert kleift að
veita þeim bændum sem verst
eru settir tækifæri til þess að
breyta lausaskuldum i föst lán.
Leiði könnunin i ljós, að hagur
einhverra sé það bágur að það
komi ekki að fullum notum, þá
verði kannað hvort unnt sé að
gera stofnlánadeild og veðdeild
kleift að veita þeim bændum
sem eru i mestum erfiðleikum
frest á afborgunarlánum til
deildarinnar.”
Fer svar Halldórs E.
Sigurðssonar landbúnaðar-
ráðherra hér á eftir: „Herra
forseti. Út af fyrirspurn hæst-
virts 5. þingmanns Vesturlands
vii ég taka eftirandi fram. Af
þessu máli hefur verið unnið
fyrst og fremst af Árna Jónas-
syni erindreka Stéttarsam-
bands bænda sem tók það að sér
fyrir mig i fyrra að vinna að
þessu máli en með honum hafa
einnig unnið Sveinbjörn Dag-
finnsson ráðuneytisstjóri i land-
búnaðarráðuneytinu og
Sigurður Li'ndal bóndi á Lækja r-
móti. Þessir menn unnu áður að
sama verki á árunum 1942, hygg
ég að hafi verið og gafst sú
vinna vel og hefur mér verið
tjáð aö yfirleitt hafi það staðizt
sem varð þeirra niðurstaða. 1
þessum athugunum,sem gerðar
hafa verið hefur það komið
fram, að 407 bændur hafa óskað
eftiraðþeirramál yrðuathúguð
og reynt að útvega þeim lán til
þessaðgreiða úr lausaskuldum.
Alls skulda þessir bændur fóst
lán sem eru 1951 millj. kr., en
lausaskuldirnar eru 1 mill-
jarður 84 millj. kr. Þetta er mis-
munandi eftir sýslum bæði hvað
fjárhæð snertir og f jölda bænda.
Það fer allt niður i einn mann i
Kjósarsýslu 9 menn i Mýrasýslu
16 i Borgarfjarðarsýslu, 30 i
Snæfellsnessýslu 20 i Dalasýslu
7 i Austur-Barðastrandarsýslu,
5 i Vestur-Barðastrandarsyslu,
enginn i Vestur-tsafjarðarsýslu
3 i Norður-tsafjarðarsýslu 9 i
Strandasýslu, 11 i Vestur-Húna-
vatnssýlu, 24 i Austur-Húna-
vatnssýslu 26 i Skagafirði 41 i
Eyjafjarðarsýslu, 38 i
Suður-Þingeyjarsýslu, 10 i
Norður-Þingeyjarsýslu, 27 i
Norður-Múlasýslu og 28 i
Suður-Múlasýslu, 5 i
Austur-Skaftafellssýslu 10 i
Vestur-Skaftafellssýslu 50 i
Rangárvallasýslu og 43 i Árnes-
sýslu. Þetta er mjög misjaínt
hvað menn skulda i hinum ein-
stöku héruðum og hvað sú fjár-
hæð er mikil sem þeir skulda. A
bilinu 1-2 millj. eru 124 bændurá
öllu landinu. 2-3 eru 90, 3-4 eru
48,4-5eru21, 5-6 eru 16 og 6-7 eru
lika 16, 7-8 eru 7 og eftir það eru
þetta 1, 10-15 eru 2 og svo er
þetta allt upp i 45 millj., sem
einn bóndi skuldar.
t framhaldi af þessu vinna
þeir nú Ární Jónasson og Svein-
björn ráðuneytisstjóri frekar að
athugun málsins.
M.a. kom það i ljós hjá Árna
Jónassyni sem mesthefur unnið
að þessu að á þessu varð nokkur
breyting á milli áranna
1975-1976, en þessar tölur sem
hér hafa verið gefnar upp eru i
árslok 1976. Hins vegar hefur
Árni gert athugun eða vinnur
núna að athugun á því hvaða
breyting hefur á þessu orðið á
árinu 1977 og verður reynt að
hraða þvi eins og föng eru til og
enn fremurer þá jafnhliða verið
að vinna að hugsanlegum
leiðum til úrbóta i sambandi við
málin. Ég hygg að á þessu hafi
nú orðið allmikil breyting á ár-
inu 1977, en þó kemur það i ljós
þegar þessiathugun hefur verið
gerð og á það að verða tiltölu-
lega auðvelt eftir þeim gögnum,
sem þeir hafa nú i höndum þar
um. Þetta eru þær upplýsingar
sem ég get gefið að þessu sinni,
en ég get að sjálfsögðu ekki sagt
um fjárútvegunina fyrr en
heildarmáliö liggur fyrir. Vafa-
laust tekur það sinn tima að út-
vega þetta fé og ráða þeim
ráðum til þess að mæta þessuog
hygg ég að þar komi fram eins
og gert var siðast, að það var
farin fleiri en ein leið til þess að
bæta úr þvi sem þá þurfti til
þess að greiða úr þeim málum.
Þetta vona ég að nægi hv. fyrir-
spyrjanda i sambandi við fyrir-
spurn hans.”