Tíminn - 13.05.1978, Blaðsíða 7

Tíminn - 13.05.1978, Blaðsíða 7
Laugardagur 13. mal 1978. wmm 7 Útgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm), og Jón Helgason. Ritstjórn- arfulltrúi: Jón Sigurösson, Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason, Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og auglýsingar Slöimúla 15. Slmi 86300. Kvöldslmar bláöamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: ' 36387. Verö ilausasölu kr. 100.00. Askriftargjald kr. 2.000 á mánuöi- Blaöaprent h.f. I Þeir hneggja við stall Um þessar mundir má lita i Morgunblaðinu næstum þvi daglega langhunda þar sem öllu er til tjaldað til af afsaka stjórnarháttu Sjálf- stæðismanna i Reykjavikurborg i augum al- mennings. Reyndar er það sizt að undra að borgar- stjórnarihaldið skuli telja sér nauðsyn á sibylju i fjölmiðlum um imyndað ágæti sitt, þvi að af- sökunin á stjórnarháttum forráðamanna borgarmálefna verður ekki fengin með þvi að litast um i borginni sjálfri. & í stjórnun borgarmálefna koma fram ýmsir verstu eiginleikar hægristefnunnar. í höfuð- borginni er að vonum við ýmis brýn félagsleg vandamál að etja sem tilheyra fjölmennu þétt- býlissamfélagi og kalla á samfélagslegar að- gerðir og úrbætur. Sleifarlag hægristefnunnar og frumkvæðisleysi andspænis félagslegum vandamálum verður að skipbroti þegar reynt er að takast á við stjórnun nútima borgarsam- félags, eins og vaxið hefur upp i Reykjavik á siðustu áratugum. Það gildir einu hvort litið er til félagslegra málefna, stjórnunarhátta eða atvinnumála- stefnu. Gott dæmi um háttalag borgarstjórnar- ihaldsins er ,,græna byltingin” sem básúnuð var út um allar jarðir fyrir nokkrum árum. Nú stendur hof Sjálfstæðisflokksins þar sem búið var að gera ráð fyrir opnu svæði fólki til yndis- auka. í stað gefinna fyrirheita um bjartara yfirbragð borgarinnar hneggja nú gæðingar Sjálfstæðisflokksins við stall með öllum tygj- um i musteri Alberts Guðmundssonar og Ár- mannsfells. Og Sjálfstæðisflokkurinn er reyndar orðinn yfirkominn af þreytu við að stýra málefnum Reykvikinga. Slikt er ekki að undra.Veðrunina og slitið má hvarvetna lita i störfum borgar- stjórnarihaldsins, og er löngu mál að þeir fái hvild en félagshyggjumenn komi við þeim um- bótum og framförum sem kalla að. Sjálfstæðismenn i Reykjavik halda þvi fram að þeir séu samstæðir og samhentir um stjórn borgarinnar. Þá lönguvitleysu er endemi á að hlýða, og mun nægja að benda á þá miklu óánægju sem fram hefur komið i röðum Sjálf- stæðisflokksins innbyrðis á siðustu árum og Al- bert Guðmundsson borgarfulltrúi með meiru hefur gerzt talsmaður fyrir. Sannleikurinn er sá, að þeir eru þreyttir og svo sem verða vill i sliku ástandi kenna þeir hver öðrum um það sem miður hefur farið. Hvernig sem á málin er litið er það ljóst, að það þarf nýja og óþreytta menn til ötulla starfa að málefnum höfuðborgarinnar. Það þarf ferskan andblæ inn á skrifstofurnar. Og um fram allt þarf félagshyggjumenn til að takast af alvöru á við vandamál og verkefni i nútima- þjóðfélagi. JS Indiánar i Bandarikjunum eiga i vök að verjast: Auðlindir á verndarsvæðunum freista hvítra manna Indiánarnir vilja sjálfir nýta þessar auðlindir Frá Indiánaráöstefnu, POWOW i Kansas sumariö 1975. — Timamynd: JB. Enginn af kynþáttum jarö- arinnar hefur verið jafngrátt leikinn á siðustu öldum og Indiánar. Þjóðfélögum þeirra var gersamlega sundrað, er hvitir menn komu til Vest- urheims, löndum þeirra rænt purkunarlaust og menning þeirra lögð i rústir. Þeir voru ýmist brytjaðir niður með vopnum eða sjúkdómar og lestir sem aðkomumennirnir fluttu með sér, komu þeim á kaldan klaka. Þegar þeir snerust til örvæntingarfullrar baráttu gegn þeim, sem ásældust lönd þeirra, voru þeir gerðir að táknmynd grimmdar og slægðar í sögum og sögnum um langan aldur. Nú er svo komið fyrir löngu, að þær leifar Indianaþjóð- flokka, sem eftir hjara, eru ekki nema svipur hjá sjón. 1 Suður- og Mið-Ameríku eru þeir örfátækir bændur, sem landeigendurnir ráðskast með að vild sinni eða reköld i borgum og bæjum, og sumir flúnir langt inn i frumskóga, þar sem þeir eru þó ekki leng- ur óhultir. I Norður-Ameriku eru þeir innikróaðir á svo- nefndum verndarsvæðum þar sem sjálfsmorð eru mörgum sinnum tiðarien nokkurs stað- ar annars staðar, eða hirast i fátækrahverfum stórborg- anna. Atvinnuieysi meðal þeirra er gifurlegt og eðlileg viðkoma heft með þvi að gera Indiának' nur ófrjóar i stór- hópum. Hin yngri kynslóð i Norður-Ameriku hefur þó i seinni tið nokkuð verið að vakna til meðvitundar um for- tið sina og þa menningu, sem einu sinni var, og kröfur um réttlátari samskipti og sæmi- legri aðbúð hafa hvað eftir annað valdið hörðum árekstr- um. Nú hafa Indiánar i Bandarikjunum gert enn eina tilraun til þess að vekja sam- vizku bandarisku þjóðarinnar. Um miðbik nitjándu aldar var enn ekki fágætt, að fólk sem bjó i grennd við járn- brautina miklu, sæi stóra hópa Indiána rekna inn i lestar- klefa. Þá var verið að flytja þá nauðungarflutningi til vernd- arsvæðanna, er stjórnvöld höfðu ákveðið að þeir skyldu hafast við á. Hvitir landnemar höfðu heimtaði sinn hlut lönd og vatnsföll. þar sem þessir Indiánar höfðu stundað veiðar og lifað á jarðargróða frá ómuna tið. Indiánar litu á hvitu mennina sem ræningja, eins og þeir lika voru, og þeir komust fljótt að raun um, að lönd þau, sem þeim voru ætluð i staðinn, voru útskæfur, þar sem landkostir voru miklu minni. Nú, að meira en öld liðinni, finna Indiánar i Bandarikjun- um hringinn um sig enn þrengjast. Hvitu mennirnir sækja að þeim eins og áður gerðist.A hinum ófrjóu vernd- arsvæðum, sem þeim voru fyrirbúin á nitjándu öld, hafa fundizt námur og oliulindir og þá er ekki að sökum að spyrja: Græðgi hins hvita manns er söm við sig, hvað sem ártalinu liður. Samt hafa allmargir dómar, sem nýlega hafa gengið um deilumál hvitra manna og Indiána fært hinum örfátæku rauðskinn- um ofurlitinn fjárhagslegan ávinning. Enhvitir menn, sem ágirnast auðæfi þessara verndarsvæða er áður voru talin litils virði, sjá ofsjónum yfir þvi að þurfa að láta eitt- hvaðaf höndum rakna til Indi- ánanna og hafa myndað með sér samtök, sem þeir beita gegn þeim um landið allt. Þessi samtök, sem raunar kenna sig við jafnrétti og jafna ábyrgð, segjast til þess borin að rétta hlut hvitra manna i skiptum við Indiána og er þvi einkum haldið á loft, að Indi- ánar hafi atkvæðisrétt, en borgi ekki skatta á sama hátt og hvitir menn, auk þess sem sérstakir samningar veiti þeim meiriheimild til veiða á heimaslóðum sinum en öörum mönnum. í reynd er hér á döf- inni tilraun til þess að svipta Indiána verndarsvæðunum, og styðja samtökin alls konar málarekstur gegn Indiánum og kröfugerð á hendur þeim i tuttugu fylkjum Bandarikj- anna. í þessum samtökum eru um tiu þúsundmanns, og beita þau öllu afli til þess að fá Bandarikjaþing til þess að samþykkja lög, sem myndu stórlega skerða réttindi Indi- ána, auka vald lögreglu og fylkisdómstóla til afskipta á verndarsvæðunum og þrengja kosti Indiána yfirleitt. Þessar aðgerðir hafa leitt það af sér, að Indiánar viðs vegar að úr Bandarikjunum söfnuðust nýlega saman i Window Rock i Arizona til þess að ráða ráðum sinum um viðbrögð sin við þessu, mót- mælafundi og fjöldagöngur, i þvi skyni að vekja athygli al- þjóðar á þvi sem er að gerast. Það er kaldhæðnislegt, að samt(8cum af þvi tagi, er hér hefúr verið getið, skuli vera beittgegn Indiánum. Þeir eru lakast settir allra kynþátta i Bandarikjunum, og þeir hafa ef til vill tekið þvi með meiri þolinmæði en allir aðrir, hvernig að þeim er búið, að minnsta kosti fram á allra sið- ustu ár. Enn þann dag i dag búa 48% Indiána á verndar- svæðum við sára örbirgð, 55% búa i húsnæöi, sem er alls óviðunandi og 58% Indiána- barna komast aldrei upp i sjötta bekk barnaskóla. Lifs- bjargarmöguleikar Indiána eru fáir og áfengisneyzla er geigvænleg. A hinn bóginn eru svo oliu- lindirnar og málmgrýtið, sem menn vita nú, að er i jörðu á verndarsvæðunum. Jarðfræð- ingarhafaáætlað að þar sé um 40% af þvi úrani, sem finnan- legt er i Bandarikjunum, ef til vill tveir þriðju þeirra kola, sem nýtanleg eru i vesturrikj- unum og 5% af oliu og jarðgasi Bandarikjanna allra. Einkum boðar það ekki gott, að þar skuli vera svo mikið af úrani, þvi að þar er kjarnorkan og hervæðingin á hinn bóginn, og þá er hætt við að mannréttindi og lifskjör jafnvel tilvera,eins fátæks og illa leikins kynþátt- ar verði létt á metunum. Fram undir þetta hafa Indi- ánarsjálfirgefiðauðlindum af þessu tagi litinn gaum. En Indiánaskrifstofan og námu- félögin hafa ekki alfrjálsar hendur til þess aö ákveða end- urgjald fyrir þvilik landsvæði. Indiánar hafa uppgötvað aö þeir hafa að jafnaði verið hlunnfarnir i slikum málum, og af þeirra hálfu er nú megn andstaða gegn langtimasamn- ingum, sem tiðkaðir voru fram yfir 1970. Þeir hafa bundizt samtökum i svoköll- uðu orkumálaráöi kynþáttar sins, og hlutverk þess ráös er að standa vörð um rétt Indi- ána og finna leiðir til þess, að Indiánar nýti sjálfir auðlindir verndarsvæðanna ef nokk- ur kostur er og fari með stjórn vinnslustöðvanna, þegar fram liða stundir. Leita forystumenn Indiána að sinuleyti eftir stuðningi við þá hugmýnd hjá alrikisstjórn- inni, að ungir Indiánar geti átt kost á þeirri menntun og tækniþjálfun, er geri þeim kleift að verða forvigismenn við námagröft og oliuvinnslu, oger það stefnumið þeirra, að menn, sem fram úr skara geti hlotið fyllstu menntun, sem völ er á sem verkfræðing- ar og visindamenn. Nú hefur lika orðið sú breyting á að fleiri ungir Indiánar en áður kjósa að dveljast um kyrrt á verndarsvæðunum eða snúa þangað aftur að loknu skóla- námi. Þannig eru bersýnilega fram undan miklar sviptingar milli hvitra manna úr auö- mannastétt er girnast þær auðlindir, sem finnast á verndarsvæðunum, og nýrrar kynslóðar Indiána, sem ekki sættir sig lengur við, aö kyn- þáttur þeirra sé hafður að fótaskinni og fólk af Indiána- kyni dæmt til þess að vera ör- birgöarlýður og hrakningsfólk i þvi landi, er forfeöur þeirra áttu um langan aldur. En margt verður að breytast i viðhorfunum til Indiána, ef þeirra eiga ekki að biða ný vonbrigði á vonbrigði ofan.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.