Tíminn - 13.05.1978, Blaðsíða 12

Tíminn - 13.05.1978, Blaðsíða 12
12 Laugardagur 13. mal 1978. TÍMINN HEIMSÆKIR VESTMANNAEYJAR Fjárhagsstaðan er mjög þung — enda hefur bæjarsjóður ekki enn fengið allt tjón vegna gossins bætt Rætt við Pál Zóphoníasson bæjarstjóra — Fjármálin eru okkur mjög erfið um þessar mundir.-sagði Páll Zophoniasson, bæjarstjóri i Vestmannaeyjum, i viðtali við Tímann nýlega.-Annars vegar er það vegna þess,að ekki hefur verið staðið við þau loforð,sem forsætisráðherra gaf þegar við- lagasjóður var lagður niður, og hins vegar kemur erfið staða fiskvinnslufyrirtækjanna hér i Eyjum mjög illa við bæjarsjóðr Páll sagði, að þegar Viðlaga- sjóður hætti störfum hefði það komið skýrt fram hjá forsætis- ráðherra, að eftirþað yrði vandi bæjarsjóðs Vestmannaeyja og Rafveitu Vestmannaeyja, sem enn er til staðar vegna gossins, alfarið á herðum rikissjóðs. Skipuð hefði verið úttektar- nefnd, sem skilaði áliti i júli 1977. Nefndin lagði til, að bæjarsjóði yrðu lánaðar 300 millj. kr. á timabilinu 1977 til 1981. Yrði lán þetta með 10% vöxtum og afborgunarlaust fyrstu 10 árin. Aukþess var talið að Rafveitan þyrfti að fá 250 millj. kr. lán á þessu timabili. Þessu til viðbótar gerði út- tektarnefndin tillögur um ýmsa fleiri þætti. -1 lánsfjáráætlun rikisstjórn- arinnar fyrir árið 1978,er gert ráð fyrir 200 millj. kr. láni til þessara mála. Ekkert af þvi fé hefur hins vegar fengizt ennþá og kemur þetta sér mjög illa fyrir okkur,-sagði Páll. Dælustöð hitaveitunnar að verða tilbúin En þótt erfiö sé fjárhagsstað- an og ýmsar blikur á lofti i þvi sambandi eru þó margar bjart- ar hliðar á lifinu i Eyjum um þessar mundir. Sélitið til fram- kvæmda á vegum bæjarins kemur hitaveitan strax i hug- ann. Nú er dælustöð að verða til- búin og er áætlað að tengja nýju byggðina, iþróttahúsið, elli- heimilið o.fl. við hitaveituna i mai eða júni. Páll sagði, að hitaveitan, sem fyrir nokkru var lögð i austur- byggðina heföi reynzt mjög vel. Markmiðiö væri að ljúka lagn- ingu hitaveitu i allan bæinn á Páll Zophoniasson Dælustöðin er nú að veröa fullbyggð. Hitaveitan veröur tengd I þessum eöa næsta mánuöi. Unga kynslóöin unir sér vel i leikskólanum. Frá Vestmannaeyjum. næstu tveimur árum, en það fer þó eftir fjárhagsafkomu hita- veitunnar hvort það takmark næst. Nýr rafkapall úr landi i sumar 1 ágúst er fyrirhugað að leggja nýjan rafkapal milli lands og Eyja. Gamli kapallinn er orðinn mjög ótryggur og bil- anir tiðar á honum. Nýi kapall- inn mun því auka öryggið mikið. "En nýi kapallinn er ekki að- eins lagður til þess að auka öryggið,-sagði PálL-Orkunotkun- in hefur aukizt það mikið hér i Eyjum að flutningsgeta gamla kapalsins verður fullnýtt árið 1980. Ný skolpleiðsla Nú standa yfir framkvæmdir við lagningu nýrrar skolpleiðslu i Vestmannaeyjum. Hingað til hefuralltskolp verið leittihöfn- ina. 1 gosinu lokaðist höfnin mjög mikið og hreinsar sig mun verr eftir gos en fyrir. Þvi' er sjór i höfninni mjög mengaður og þessi framkvæmd af þeim sökum nauðsynleg. Vaxandi samvinna milli skólanna Vaxandi samvinna hefur verið milli skólanna i Vest- mannaeyjum að undanförnu. Hugmyndin er siðan að slá öll- um framhaldsskólunum i einn samræmdan framhaldsskóla. Hugsanlegt er að sameiningin eigi sér stað þegar næsta haust og verði þá stofnaður fjöl- brautarskóli i Vestmannaeyj- um. Páll sagði það vera von manna, að með þvi að sameina skólana opnuðust möguleikar á enn frekara framhaldsnámi fyrir unglinga i Vestmannaeyj- um. Fjölmörg fleiri mál, en hér hafa verið nefnd eru ofarlega á baugi i Vestmannaeyjum. Þar er t.d. unnið að gatnagerð og hafnarframkvæmdum. Hug- myndir eru uppi um að koma þarupp skipalyftu og fjölmargt fleira mætti telja. Ibúar i Eyjum eru nú um 4700. Fyrir gos voru þeir flestir 5300. Mikið hefur verið um það, að nýtt fólk hafi flutt til Eyja eftir gos og hefur þvi ibúunum íjölgað stöðugt siðan fólk fór að flytja út i Eyjar á ný eftir gos. MÓ Laus til ábúðar Jörðin Grenjar i Álftaneshreppi, Mýra- sýslu er laus til ábúðar frá næstu fardög- um. Á jörðinni er um 100 fermetra ibúðarhús, 300 kinda fjárhús, 12 kúa fjós ásamt hlöð- um. Jörðin hentar vel til fjárbúskapar. Upplýsingar gefa: Jóhannes M. Þórðarson, oddviti, Kross- nesi, Álftaneshreppi, Mýrasýslu, simi um Arnarstapa, og Vifill Oddsson, Norðurbrún 36, Reykjavik, simi: 91-82202. 1 I Auglýsingadeild Tímans Ritstjórn, skrifstofa og afgreiðsla

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.