Tíminn - 13.05.1978, Blaðsíða 16

Tíminn - 13.05.1978, Blaðsíða 16
16 Laugardagur 13. mal 1978. Aðalfund ur Félags íslenzkra bókaút- gefenda Félag islenzkra bókaútgefenda hélt aðalfund sinn miðvikudaginn 10. mai i húsakynnum félagsins að Laufásvegi 12. Formaður félagsins, Orlygur Hálfdánarson, flutti skýrslu um starfsemi félagsins á liðnu ári. 1 lok ræðu sinnar gat hann þess, að hann gæfi ekki kost á sér til end- urkjörs i formannssæti, en hann hefur gegnt íormennsku i félag- inu i sex ár. 1 stað örlygs var kjörinn formaður Arnbjörn Kristinsson. Þrir menn gengu úr stjórninni og voru þeir allir endurkjörnir. Stjórnin er þannig skipuð: Arn- björn Kristinsson formaður, Böðvar Pétursson varaformaður, Brynjólfur Bjarnason gjaldkeri. Ragnar Gunnarsson ritari, og meðstjórnendur örlygur Hálf- dánarson, Valdimar Jóhannsson og Hjörtur Þóröarson. Á myndinni sést Gunnar Friöriksson forseti SVFI veita gjöfinni viö- töku. Talið frá vinstri: Benedikt E. Gunnarsson Gunnar Friöriksson og Richard Hannesson. SVFÍ Fær kennslubát að gjof Fyrirtækið RFD i Englandi og umboðsaðili þesshér á landi Ölaf- ur Gislason og Co. hf., hafa fært Slvsavarnafélagi Islandsað gjöf 6 manna gúmbjörgunarbát til að nota við kennslu á námskeiðum fyrir sjómenn um meðierð og notkun þessara báta. Þetta er ný gerð af björgunar- bátum sem gagngert eru fram- leiddir til notkunar um borð i minni fiskibátum og skemmtibát- um og samræma kröfur fyrir eldri gerðir slikra báta 4ra og 6 manna sem eru vel þekktir meðal islenzkra sjómanna. Richard Hannesson forstjóri afhenti þessa kærkomnu gjöf og þakkaði hinn mikla þátt SVFt að kenna Sjómönnum rétta notkun hinna mikilvirku björgunartækja um leið oghann óskaði félaginu til hamingju með 50 ára afmælið og árnaði þvi allra heilla í fram- tiðinni. m\ uai\ 'flie n*l*[á*lmlmm*kmhmÉ9 j ALEX HALEY AUGAVEG 178. SÍM! 86780. Aflabrögð í Vestfirðingafjórðungi: Aflinn misjafn ef tir veiðisvæðum Stöðugar gæftir voru á Vest- fjörðum allan aprilmánuð en afli óvenjulega misjafn eftir veiði- svæðum. Undanfarin ár hefur afli vestfirzku linubátanna verið nær eingöngusteinbituren nú bregður svo við að uppistaðan i aflanum er þorskur en steinbitsaflinn bregzt að miklu leyti. Athyglis- vert er að steinbiturinn var óvenjulega horaður. Þykir þetta benda tii að fiskurinn hafi nú haft minna æti en oft áður. Afli togaranna var góður fyrstu vikuna en lengst af tregur eftir það, þar til siðustu daga mánaðarins að farið er að lifna yfir honum á ný. t april stunduðu 47 (45) bátar róðra frá Vestfjörðum réri 31 (27) með linu 6 (9) með net og 10 (9) með botnvörpu auk nokkurra minni báta sem voru byrjaðir handfæraveiðar. Heiidaraflinn i mánuðinum var 9.700 lestir og er heildaraflinn frá áramótum þá orðinn 28.937 lestir. í fyrra var aflinn i april 7.951 lest og heildaraflinn frá áramótum 29.562 lestir. Af vertiðaraflanum er linuaflinn 13.731 lest (14.003) lestir eða 47% afli togaranna 13.525 (13.764)lestir.einnig 47% og afli netabátanna 1.681 (1.795) lestir eða 6%. Afli linubáta i april var 4.118 lestir i 701 róðri eða 5,9 lestir að meðaltali i róðri en var 3.124 lest- ir í 529 róðrum eða 5,9 lestir að meðaltali i róðri i april i fyrra. Afii flestra togaranna og afla- hæstu línubátanna er nú um 10% lakari en hann var á sama tima í fyrra,valda ógæftirnar fyrri hluta vertiðarinnar vafalitið þar mestu um. Fj ölbrautaskóli Suðurnesja sigraði í skákkeppni stofnana Nýlega lauk skákkeppni stofn- ana ogfyrirtækja 1978. Keppninni var skipt i tvo riðla, A- og B-riðil. 1 A-riöiitefldu 16 sveitir 7 um- ferðir eftir Monrad-kerfi. Sigur- vegari varð Fjölbrautaskóli Suð- urnesja, hlaut 19 vinninga af 28 mögulegum. Röð efstu sveita varð þessi: vinningar 1. Fjölbrautaskóli Suðumesja 19 2. Búnaðarbankinn 18 3. Grunnskólar Reykjav ikur 17 1/2 4. Otvegsbankinn 16 1/2 5. Breiðholt hf. 151/2 6. Flugleiðir a-sveit 15 Sigursveit Fjölbrautaskóla Suðurnesja skipuðu þessir skák- menn: 1. Bragi Halldórsson 2. Björgvin Viglundsson 3. Jón G. Briem 4. Gisli K. Sigurkarlsson 1. varam.: Jón Böðvarson 2. varam.: Baldur Kristjánss. 3. varam.: Garðar Oddgeirsson 4. varam.: Sigmundur Böðvars. Að lokinni aðalkeppninni i A-riðli var efnt til hraðskákmóts og sigraði þá sveit frá Skákprent, en Búnaðarbankinn varð i 2. sæti. 1 B-riðli tefldu 24 sveitir. Flesta vinninga hlaut unglingasveit frá Taflfélagi Reykjavikur (14 ára og yngri), alls 21 vinning. Sú sveit keppti sem gestur i mótinu, og hlaut þvi 1. verðlaun skáksveit Landspitalans, sem hlaut 19 vinn- inga. 2. verðlaun hlaut Rikisút- varpið með 18 vinninga og 3. verðlaun þýzk-islenzka verzl- unarfélagiö með 17 1/2 vinning. 1 sigursveit Landspitalans voru þessir skákmenn: 1. Ingólfur Hjaltalin 2. Bjarni Þjóðleifsson 3. Sverrir Bergmann 4. Snorri Páll Snorrason 1. varam.: Davið Gislason 2. varam.: Guðjón Sigurbj.son 3. varam.: Auðunn Sveinbj.son 4. varam.: Þórður Harðarson. Hraðskákmót fór einnig fram i B-riöli og sigraði þýzk-islenzka verzlunarfélagið, sem hlaut 41 vinning, en unglingasveit frá Taflfélagi Reykjavikur hlaut 39 1/2 vinning. ■j/////////////W///////////fl//y////////W///y/////////////////y//i£- f Vandaðar vélar v . X % borga %sig | bezt HEUmR HEL-II ^///////////////////////////////////. wniEmEHER Aí* HF HAMAR5 véladeild sími 2-21-23 Tryggvagötu Reykjavík.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.