Fréttablaðið - 27.08.2006, Blaðsíða 78
27. ágúst 2006 SUNNUDAGUR38
Hljómsveitin Sprengjuhöllin, með
Snorra Helgason á gítar, sýndi
stórskemmtileg tilþrif í Kastljós-
inu á fimmtudagskvöldið. Snorri á
ekki langt að sækja hæfileikana en
hann er sonur Helga Pé úr Ríó
tríó.
„Pabbi kenndi mér nú ekki á
gítarinn heldur lærði ég bara á
hann sjálfur,“ sagði Snorri þegar
Fréttablaðið ræddi við hann. Hanni
segist ekki vita til þess að hafa
orðið fyrir áhrifum frá Ríó tríó.
„Það hlýtur samt að hafa einhver
áhrif þegar tónlistin er alltaf
hljómandi í kring,“ segir hann þó.
Gítarleikarinn knái segist að
sjálfsögðu hlusta á lög Ríó tríós.
„Auðvitað hlusta ég. Ég má heldur
ekki segja neitt annað,“ segir
Snorri hlæjandi. Spurður hvert sé
uppáhaldslagið hans með Ríó tríó
segir hann: „Þeir eiga nokkra góða
smelli en það er erfitt að velja á
milli.“
Helgi Pé hefur fylgst grannt
með Snorra og Sprengjuhöllinni.
„Mér finnst þetta glaðlegt og
skemmtilegt hjá þeim. Melódísk
lög með fínum textum og það er
gaman að þeir skuli semja allt
sjálfir. Mér sýnist þeir vera að
skapa sinn eigin stíl,“ segir Helgi.
„Þeir eru líka duglegir sem er gott.
Því þetta kemur allt með æfing-
unni og það segi ég af gamalli
reynslu.“
Þeir feðgar hafa einu sinni troð-
ið upp saman með Ríó tríó en það
var þegar móðir Snorra fagnaði
fimmtugsafmæli sínu. „Það gekk
ljómandi vel en við höfum ekki
verið að troða mikið upp saman
enda erum við að ferðast á ólíkum
slóðum í tónlistinni,“ segir Helgi.
Helgi segir soninn ekki hafa
sýnt tónlistinni mikinn áhuga
þegar hann var yngri. „Öll eldri
systkinin hans þrjú fóru í tónlist-
arnám, bæði á píanó og í söng en
ekkert þeirra hefur sinnt því frek-
ar. Snorri byrjaði hins vegar bara
upp úr þurru þegar hann seildist í
gítar bróður síns þegar hann var
fimmtán ára,“ segir Helgi. „Óli
vinur minn úr Ríóinu kenndi hins
vegar tónmennt í Hlíðaskóla þegar
Snorri var að fara þar í gegn. Og
þó ég hefði ekki séð þess merki að
Snorri ætlaði í tónlistina tók Óli
eftir því. „Það er músík í þessum
strák,“ sagði hann og það hefur
gengið eftir.“
Helgi segir Snorra og félaga í
Sprengjuhöllinni ekki vera beint í
Ríó tríó stílnum. „Hann hefur samt
verið að hlusta á mikið af því sem
ég hlustaði sjálfur á, svo sem
Kinks og The Band og hann tekur
Dylan í nefið. Svo við erum kannski
ekki svo langt frá hvor öðrum í
tónlistinni.“ kristjan@frettabladid.is
SNORRI HELGASON: GÍTARLEIKARI SPRENGJUHALLARINNAR
Fetar í fótspor föður síns
Í ÞÁ GÖMLU GÓÐU Helgi Pétursson, Ólafur
Þórðarson og Ágúst Atlason skipa Ríó tríó.
FEÐGARNIR Snorri og Helgi eru miklir mátar og má búast við því að Helgi veiti syni sínum
föðurleg ráð í tónlistinni. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
Hvað er að frétta? Bara allt gott.
Augnlitur: Blár.
Starf: Ég er eiginlega bara nemi en er
að vinna í Pumabúðinni eins og er.
Fjölskylduhagir: Ég bý bara ein í
Reykjavík af því að fjölskyldan mín er öll
í Vestmannaeyjum.
Hvaðan ertu? Vestmannaeyjum.
Ertu hjátrúarfull? Já, ég er svolítið hjá-
trúarfull. Ef eitthvað gengur vel þá þarf
ég alltaf að gera það aftur eins. Eins og
til dæmis í undirbúningi fyrir leik.
Uppáhaldssjónvarpsþátturinn: Prison
Break.
Uppáhaldsmatur: Jólamatur og grill-
matur. Annar finnst mér allt frá mömmu
vera gott held ég bara.
Fallegasti staður: Vestmannaeyjar í sól
og blíðu.
iPod eða geislaspilari? iPod.
Hvað er skemmtilegast? Spila fótbolta
og vera með vinum mínum.
Hvað er leiðinlegast? Taka til.
Helsti veikleiki: Svolítið feimin.
Helsti kostur: Góður vinur.
Helsta afrek: Að komast í A-landsliðið
þegar ég var 16 að verða 17 ára.
Mestu vonbrigðin: Að besta vinkona
mín meiddist og getur ekki spilað
fótbolta lengur.
Hver er draumurinn? Að spila fótbolta
erlendis og komast á stórmót
með landsliðinu.
Hver er fyndnastur/
fyndnust? Karitas, vin-
kona mín er fyndnust en
pabbi er fyndnastur.
Hvað fer mest í taug-
arnar á þér? Að tapa
fer ótrúlega mikið í
taugarnar á mér og
líka þegar eitthvað
gengur ekki upp.
Uppáhaldsbókin?
Lord of the Rings
bækurnar.
Hvað er mikilvægast? Að eiga
góða vini og fjölskyldu.
HIN HLIÐIN MARGRÉT LÁRA VIÐARSDÓTTIR KNATTSPYRNUKONA
Er hjátrúarfull fyrir leiki
Sjónvarpsmaðurinn Ásgeir Kol-
beinsson notaði sumarfríið sitt vel
í sumar en hann hefur verið að
gera upp íbúð sem hann keypti sér
fyrir fjórum mánuðum. „Ég byrj-
aði á því að fá innanhússarkitekt-
inn Halla hjá Glám og kím til að
hanna með mér nýtt útlit á íbúðina.
Síðan henti ég öllu út úr henni
þannig að hún varð bara eins og
fokheld aftur,“ segir Ásgeir en þar
sem hann er dæmigerður karlmað-
ur þá nennti hann ekki að fara út
um allt til að velja nýtt inn í íbúð-
ina, heldur fékk bara heildartilboð
frá Byko í allt sem hann þurfti. „Ég
fékk allt nýtt inn í eldhúsið og á
baðið þar sem ég er með hitann í
gólfinu og færði til rafmagnstengi
og fleira.“ Ásgeir segir fátt
skemmtilegra en að gera húsnæðið
sitt nákvæmlega eins og hann vilji
hafa það því útkoman geti varla
verið annað en draumahúsnæðið.
Sjálfur hefur hann unnið hörðum
höndum við breytingarnar en feng-
ið gott fólk sér til aðstoðar. „Ég
fékk dyggan stuðning frá fjölskyld-
unni sem er örugglega farin að
íhuga að vera ekki lengur með mér
í fjölskyldu, því ég er búinn að jaska
þeim verulega út,“ segir Ásgeir
hlæjandi og viðurkennir að hann
hafi komið sjálfum sér verulega á
óvart með því hvað hann væri í raun
laginn í höndunum. „Ég er búinn að
leggja parket, pússa veggi og margt
fleira og það var bara rosa gaman.
Það kemur manni reyndar á óvart
hvað þetta er miklu meiri vinna en
maður telur í upphafi.“ Ásgeir er
nýfluttur inn í nýju íbúðina sína
þrátt fyrir að enn eigi eftir að ganga
frá einhverju smotteríi. „Ég er rosa-
lega ánægður með að hafa fengið
innanhússarkitekt til að aðstoða
mig við hönnunina og það var
algjörlega þess virði. Þannig getur
maður séð fyrir hvernig lokaútkom-
an verður og skipulagt hvert ein-
asta rými fyrirfram,“ segir Ásgeir
og er yfir sig ánægður með nýju
íbúðina sína. - sig
Gerði íbúðina sína upp sjálfur
FRÉTTIR AF FÓLKI
Áheyrnarpróf fyrir X -Factor verða haldin í októberbyrjun í Reykjavík
og á Akureyri. Eins og margir muna var
aðsóknin fyrir Idol-sjónvarpsþáttinn
mjög góð en reikna má með að nú
verði hún enn betri þar sem aldurstak-
markið er frá sextán ára og upp úr. Þá
geta alls kyns afbrigði af hljómsveitum
sótt um að komast í þáttinn sem nýtur
mikilla vinsælda í Bretlandi um þessar
mundir. Til marks um þann fjölbreyti-
leika sem gæti náðst í X-Factor er að
Leoncie sótti um fyrir þáttinn í Bretlandi
og þá reyndi níræð kona að komast inn
í ár. Inntökuprufurnar verða á Nordica
og KEA en dómarar í hinni íslensku
útgáfu eru þau Elly,
oftast kennd við
Q4Y, Einar Bárðar-
son og Páll Óskar
en þetta verður
eitt stærsta
verkefni Stöðvar
2 í vetur.
Kynnir verður
leikkonan Halla
Vilhjálmsdóttir.
Stuðmenn lokuðu hring sínum um landið á stórtónleikum á Seltjarn-
arnesi í gærkvöldi. Hljómsveit Íslands
hefur verið á fleygiferð um landið
undanfarna mánuði og skellti um
þarsíðustu helgi upp miklum dansleik á
Selfossi með hjálp glysrokksveitarinnar
Trabant. Fjöldi gestasöngvara hefur fylgt
hljómsveitinni að undanförnu og nægir
þar að nefna Valgeir Guðjónsson og
Stefán Karl Stefánsson. Birgitta Haukdal
hefur fyllt skarð Ragnhildar Gísladóttur
og Hildar Völu en hún var fjarri góðu
gamni í gær þar sem söngkonan vinsæla
er á faraldsfæti í Bandaríkjunum. Stuð-
menn leituðu ekki langt
yfir skammt þegar
kom að því að
finna staðgengil
Birgittu því
Steinunn Ólína
Þorsteins-
dóttir þandi
raddböndin á
miðnætti með
unnusta sínum,
Stefáni Karli,
við góðar
undirtektir
viðstaddra.
- fgg
HRÓSIÐ …
...fær Hallbjörn Hjartarsson í
Kántrýbæ fyrir að halda ótrauður
áfram með útvarpsstöðina sína
og bæta móttökuskilyrðin í
Skagafirði.
25.07.
1986
. .
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
EINBEITTUR Ásgeir er ein-
beittur á svip þar sem hann
mundar borvélina en hann
er orðinn mjög lunkinn í
heimilisviðgerðum.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Fjölmiðlakonur gerðu sér glaðan dag á föstudagskvöldið og sameinuðust í
kvennaboði í sportkafarahúsinu í Naut-
hólsvík. Mætingin var það góð að það
þurfti að tjalda fyrir utan húsið svo að
allar konurnar kæmust fyrir. Sungið var
fram á nótt og hljómsveitin Byssupiss
tók vel valin lög við góðar undirtektir
fjölmiðlakvensanna. Einnig var sungið
undir góðri stjórn Eddu Andrésdóttur og
Láru Ómarsdóttur, fréttakonum á NFS.
Þarna voru mættar konur frá flestum
fjölmiðlum landsins meðal annars
Ragnhildur Steinunn og Erla Tryggva-
dóttir frá Kastljósinu, Gerður Kristný,
Arna Schram, Kristín María Birgisdóttir
fréttakona á Rúv og lengi mætti áfram
telja. Þess má geta að
ákveðið var á þessu
skemmtilega kvöldi
að þetta yrði árleg
hefð fjölmiðlakvenna
til að efla stöðu
kvenna
innan ljós-
vakamiðl-
anna.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8
1 David Beckham.
2 Arndís Birta Sigursteinsdóttir.
3 Byggja upp heilbrigðisþjónustu
á vegum ÞSSÍ.
1 dálkur 9.9.2005 15:18 Page 4