Fréttablaðið - 21.09.2006, Síða 4

Fréttablaðið - 21.09.2006, Síða 4
4 21. september 2006 FIMMTUDAGUR STJÓRNMÁL „Frumvarpið gengur of skammt og veitir kynfrelsi kvenna ekki nægilega réttarvernd. Öðrum einkalífsþáttum eins og persónu- legum bréfum, bílum og húsum, er veitt meiri vernd heldur en kynfrelsi kvenna.“ Þetta segir Atli Gíslason, lög- maður og varaþingmaður Vinstri- hreyfingarinnar − græns fram- boðs, um þann þátt frumvarps dómsmálaráðherra um kynferðis- brot sem snýr að nauðgunum. Atli vill að gengið sé út frá því að sam- þykki liggi fyrir kynferðismök- um, annars teljist verknaðurinn nauðgun. Ágúst Ólafur Ágústsson, vara- formaður Samfylkingarinnar, tekur í sama streng hvað þann lið áhrærir. „Verknaðaraðferðin er útgangspunktur í frumvarp- inu. Ég vil draga mörkin við hvort samþykki hefur legið fyrir eða ekki og að einblínt sé á sjálfs- ákvörðunarrétt einstaklings- ins.“ Ágúst Ólafur segir áfangasigur hafa náðst hvað varðar fyrningar- frest kynferðisbrota gegn börnum en frumvarpið gerir ráð fyrir að hann miðist við átján ára aldur brotaþola í stað fjórtán ára nú. Hans skoðun er engu að síður sú að fyrningarfrestinn beri að afnema og um það hefur hann flutt frumvarp. Atli kveðst ánægður með þenn- an þátt frumvarpsins, segir enda útilokað sönnunar- og réttarfars- lega að taka upp mál þrjátíu til fjörutíu árum eftir að atburðir gerðust. Sú meginbreyting er gerð á lög- unum að felld er niður refsing fyrir að stunda vændi sér til fram- færslu en í staðinn gert refsivert að auglýsa vændisþjónustu opin- berlega. Ágúst Ólafur og Atli vilja báðir að sænska leiðin svonefnda verði farin á Íslandi; að kaup á vændisþjónustu varði refsingu. „Slíkt myndi draga úr eftirspurn og þar af leiðandi úr framboðinu,“ segir Ágúst Ólafur. Atli er á sama máli en telur engu að síður breyt- inguna sem nú er boðuð vera fram- för. „Eftir því sem fleiri ríki gera vændiskaup refsiverð, þeim mun drýgra er það í baráttunni gegn mansali. En ef farið er út í smá- atriðin þá spyr ég hvað er opinber auglýsing. Er það rautt ljós úti í glugga?“ Atli vill líka að í lögum verði kveðið á um að konum sem lagt hafa fyrir sig vændi verði veitt félagsleg þjónusta. Slíkt ákvæði er ekki í frumvarpi dóms- málaráðherra. Ágúst Ólafur segir að heilt yfir sé ýmislegt jákvætt í frumvarp- inu og nefnir þyngri refsingar í kynferðisbrotum gegn börnum. „Á móti kemur að dómstólar hunsa refsiramma málaflokksins en þar er ekki við löggjafann að sakast. Það er vonandi að skilaboðin sem felast í þessu nái til dómstól- anna.“ bjorn@frettabladid.is Frumvarpið gengur of skammt og veitir kyn- frelsi kvenna ekki nægilega réttarvernd. ATLI GÍSLASON LÖGMAÐUR GENGIÐ 20.09.2006 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 122,6797 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 70,01 70,35 131,78 132,42 88,69 89,19 11,887 11,957 10,699 10,763 9,617 9,673 0,5961 0,5995 103,44 104,06 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR ���������������������������������������������������������������������� ������������ ������������� ������������ �������� ����� ���������������������������������������������������������������� ���� ����� ����� �� Bílum og húsum veitt meiri vernd en kynfrelsi kvenna Þingmaður Samfylkingarinnar og varaþingmaður Vinstri grænna telja suma liði í frumvarpi dómsmála- ráðherra um kynferðisbrot ganga of skammt. Þeir segja skref stigin í rétta átt í öðrum liðum þess. LÖGREGLUMÁL Karlmaður á sjötugs- aldri hefur játað við yfirheyrslur hjá lögreglunni á Egilsstöðum að hafa skotið heimiliskött á Egils- stöðum í bakgarði vídeóleigunnar Vídeóflugunnar 6. maí síðastliðinn. Vopnið sem hann notaði var 22 kali- bera riffill. Ástæða verknaðarins, að sögn mannsins, var sú að hann vildi passa upp á fuglalífið í garð- inum við íbúðarhús sitt. Kristinn Kristmundsson, eig- andi kattarins, segir að eina leiðin fyrir manninn til að skjóta köttinn þennan dag hafi verið að skjóta hann af svölum íbúðarhúss síns. Kristinn lýsti atvikum á eftirfar- andi hátt í samtali við Fréttablað- ið: „Didda skreið helsærð úr bak- garðinum inn í íbúðarhúsið þar sem henni blæddi út. Hún komst inn í húsið og ég fann hana við rúm þar sem hún hefur ætlað sér að fara uppí. Þá var hún rænulaus en svo dó hún á meðan ég var að tala við lækninn.“ Kristinn hefur fengið staðfest hjá dýralækni að kúlan gekk inn við rófuna á kettinum, rauf slagæð í afturfæti og fór út í gegnum kviðarholið. Hann segir verknaðinn enn alvarlegri fyrir þá sök að ungt barn var í garðinum stuttu áður en dýrið var skotið og börn séu að leik við húsið allt árið um kring. Að sögn lögreglunnar á Egils- stöðum er málið enn í rannsókn en að sögn lögfræðings varðar athæfi mannsins við hegningarlög, skot- vopnalög og dýraverndunarlög. Skaðabótaskylda í máli eins og þessu mun vera ótvíræð. - shá Karlmaður á Egilsstöðum hefur játað að hafa skotið heimiliskött: Skaut heimiliskött með riffli Á GÓÐRI STUNDU Kiddi og Didda voru mestu mátar. Didda var skotin af nágranna með riffli og hefur nágranninn játað verknaðinn. MYND/KK FUGLALÍF Blesgæs hefur verið friðuð ótímabundið á Íslandi og hvetur Landvernd gæsaveiði- menn til að gæta sérstakrar varkárni við gæsaveiðar. Á fáum árum hefur orðið hrun í stofni blesgæsa sem orsakast af slökum varpárangri. Þetta veldur því að nýliðun er ekki nægileg til að standa undir afföllum vegna skotveiða hér á landi. Á árunum 1998-1999 taldi stofninn um 36 þúsund fugla en síðasta vetur var stofninn kominn í 24.860 fugla. Blesgæsin hefur verið alfriðuð utan Íslands um árabil en varpheimkynni hennar eru á Mið- og Vestur-Grænlandi. - hs Blesgæs friðuð á Íslandi: Blesgæsum hefur fækkað BLESGÆS Er sjónarmun minni en grá- gæs og heiðagæs en þessi tegund er nú friðuð á Íslandi. MEXÍKÓ, AP Greinilegur sáttatónn er í mexíkóskum þingmönnum eftir rúmlega þriggja mánaða pólitískar deilur vegna forseta- kosninganna þar í landi. PAN- flokkur sigurvegarans Felipes Calderón, sem er talinn flokkur kaupsýslumanna og efnaðri laga samfélagsins, leggur sig nú fram við að koma til móts við stuðnings- menn López Obrador, sem höfðaði til fátækustu kjósendanna og tapaði kosningunum naumlega. PAN-flokkurinn hefur nú kynnt væntanleg lagafrumvörp og stend- ur meðal annars til að bjóða upp á ódýrari heilbrigðisþjónustu og auka réttindi frumbyggja. - kóþ Sáttatónn í Mexíkó: Komið til móts við fátæka BÍLSLYS Ekið var á átta ára gamla stúlku þar sem hún var gangandi á leið í skólann í gærmorgun. Stúlkan var á leið yfir gangbraut við gatnamót Háaleitisbrautar og Fellsmúla þegar slysið varð. Hún var flutt með sjúkrabíl á slysa- deild Landspítalans með áverka á andliti. Samkvæmt upplýsingum lögreglu reyndust meiðsli hennar þó minni háttar og því fór betur en á horfðist. - þsj Ekið á átta ára stúlku: Var á leið yfir gangbraut VÆNDI MÓTMÆLT Kaup á vændi er ólöglegt í Svíþjóð og sumir hafa viljað að sænska leiðin svokallaða væri farin á Íslandi. .
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.