Fréttablaðið - 21.09.2006, Blaðsíða 86

Fréttablaðið - 21.09.2006, Blaðsíða 86
50 21. september 2006 FIMMTUDAGUR Greta Mjöll Samúelsdóttir vakti mikla athygli í síðustu viku þegar hún skoraði sigurmark Breiðabliks í tveimur af þremur leikjum liðs- ins í Evrópukeppninni, annað gegn finnsku meisturunum í Helsinki og hitt gegn hvít-rússnesku meisturunum í Vitebsk, en bæði mörkin komu á síðustu mínútum leikjanna. Fyrir vikið komst Breiðablik í 8 liða úrslit þar sem Blikastúlkur munu etja kappi við ensku meistar- ana í Arsenal. „Það var gaman að skora þessi mörk svona alveg í lokin. Það er alltaf aðeins meiri plús þegar þetta er svona spennandi. Halda áhorfendunum spenntum,“ sagði Greta Mjöll og var greinilega mjög ánægð með mörkin tvö. Greta Mjöll lét mjög vel af þessari ferð og sagði að stemningin í hópnum hefði verið mjög góð. „Þetta var rosalega skemmtileg ferð. Nú hefur maður farið í nokkrar landsliðsferðir og þetta er allt öðruvísi stemning. Ekki það að landsliðsferðirnar séu leiðinlegar, alls ekki, þær eru bara öðruvísi. En auðvitað var þetta svolítið erfið ferð, við spiluðum þarna þrjá leiki á sex dögum,“ sagði Greta Mjöll. Eins og áður segir mæta Blikastúlkur Arsenal í næstu umferð og er fyrri leikurinn hér á landi 12. október, líklega á Kópavogsvelli. Greta Mjöll er með samning við Breiðablik út næsta sumar og sagðist vel geta hugsað sér að fara til útlanda og spila knattspyrnu þar eftir þann tíma. „Það hefur alltaf verið stefnan að fara einhvern tímann út, t.d. í skóla, og ég er að velta þessu fyrir mér. Auðvitað er líka frábært að fá tækifæri til að spila við lið eins og Arsenal og Frankfurt og vonandi nær maður bara að sýna hvað maður getur gegn þeim. En ég verð í Landsbankadeildinni í a.m.k. ár í viðbót þar sem ég er enn að klára menntaskóla en svo fer maður kannski í einhvern háskóla. Ég er svolítið spennt fyrir Bandaríkjunum og svo er Þýskaland líka mjög spennandi. Draumurinn er að geta lifað á því sem mér finnst skemmtilegast að gera,“ sagði þessi snjalla knattspyrnukona að lokum. GRETA MJÖLL SAMÚELSDÓTTIR: TVÖ SIGURMÖRK FYRIR BREIÐABLIK Á SÍÐUSTU MÍNÚTUM LEIKJANNA Draumurinn að fara út að spila > Ekki nema 8 lið í 1. deildinni í körfubolta Tvö lið hafa nú dregið sig úr keppni í 1. deild karla í körfuknattleik. Reynir Sand- gerði og ÍS féllu úr 1. deildinni sl. vor og í þeirra stað komu ÍG og Ármann/Þróttur upp úr 2. deild. ÍG og Drangur frá Vík í Mýrdal sáu sér hins vegar ekki fært að halda úti liði í 1. deild og hafa fyrir vikið hætt við keppni. Í kjölfarið var gengið á forsvarsmenn Reynis frá Sandgerði og ÍS um að liðin héldu sætum sínum í 1. deildinni í vetur en bæði liðin afþökkuðu boðið og sögðust einfaldlega ekki hafa nægan mannskap í þetta verkefni. Sú staða er því komin upp að eingöngu 8 lið eru skráð til keppni í 1. deildinni og er það visst áhyggjuefni fyrir körfuknattleikshreyfinguna og leiðindamál fyrir körfuboltann í heild sinni. FÓTBOLTI Í Fréttablaðinu í gær kom fram í frétt um Guðjón Þórðarson að lið Víkings væri hugsanlega einn af valmöguleik- um Guðjóns á starfi sem segist eiga fleiri kosti en ÍA. Það er ekki rétt sem fram kom í fréttinni að samningur Magnús- ar við Víking væri væntanlega uppsegjanlegur eftir sumarið því hann er ekki uppsegjanlegur fyrr en í október 2007. „Það er ánægja með störf Magnúsar hjá Víkingi og hann er ánægður hjá félaginu,“ sagði Róbert B. Agnarsson, formaður knattspyrnudeildar Víkings. Hugsanlegum möguleikum Guðjóns á starfi hér á land hefur þar með fækkað um einn. - hbg Magnús Gylfason: Áfram með Víking FÓTBOLTI Morten Olsen, landsliðs- þjálfari Dana, hefur látið hafa eftir sér að hann vilji fækka útlendingum í dönsku knatt- spyrnunni. Olsen segir að erlendir leikmenn séu margir hverjir góðir en þeir séu líka vandamál. Landsliðsþjálfarar Noregs og Svíþjóðar hafa sagt það sama á undanförnum mánuðum. „Við höfum orðið vitni að því á síðustu árum að fjöldi sæmilegra knattspyrnumanna í skandinav- ískum félögum hefur aukist mikið,“ sagði Morten Olsen. Landsliðsþjálfararnir þrír hafa því allir farið fram á það að bestu liðin í löndunum þremur hætti að flytja inn erlenda leikmenn sem ekki eru í landsliðsklassa, þeir taki einfaldlega pláss frá hæfi- leikaríkum heimamönnum. - dsd Morten Olsen: Vill færri er- lenda leikmenn MORTEN OLSEN Segir að of margir erlendir leikmenn séu í dönsk deildinni. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Breska ríkissjónvarpið sýndi í fyrrakvöld klukkustundar- langan sjónvarpsþátt þar sem fjallað er um spillingarmál í ensku úrvalsdeildinni. Fylgst er með knattspyrnuþjálfara sem þykist hafa áhuga á að gerast umboðs- maður. Hann fylgist með og ræðir við umboðsmenn og knattspyrnu- stjóra sem segja frá mútugreiðsl- um sem starfsmenn knattspyrnu- félaga hafa tekið við. Einn þeirra umboðsmanna og sá sem er hvað mest áberandi í þættinum er Peter Harrison, fyrrum umboðsmaður Eiðs Smára Guðjohnsen. Harrison sá um sölu Eiðs frá Bolton til Chelsea og fullyrðir umsjónarmaður þáttarins að Harrison hafi hagnast um eina milljón punda á þeirri sölu. Eiður var seldur á 4,5 milljónir punda á sínum tíma. Þó er ekki fullyrt að þau viðskipti hafi verið með nokkrum hætti óeðlileg. Enska knattspyrnusambandið hefur farið fram á að BBC afhendi öll sönnunargögn sem það hefur undir höndum hvað varðar spill- ingarmál í enskri knattspyrnu. Í þættinum er mikið um ásakanir og dylgjur en afar lítið um blá- kaldar staðreyndir og sönnunar- gögn. Í sumum tilfellum eru þó fullyrðingarnar mjög sannfær- andi. Sam Allardyce, stjóri Bolton, er sakaður um að hafa þegið mútu- greiðslur frá tveimur umboðs- mönnum í gegnum son sinn, Craig, sem þar til í sumar var skráður umboðsmaður knattspyrnu- manna. Mútugreiðslurnar virka þannig að viðkomandi knatt- spyrnustjóri samþykkir að kaupa leikmann í gegnum viðkomandi umboðsmann gegn því að stjórinn fái hluta þóknunarinnar sem umboðsmaðurinn fær fyrir við- skiptin. Sú greiðsla er vitanlega svört og kallast á ensku „bung“. Allardyce hefur neitað ásökun- unum og hyggst kæra BBC fyrir að bera lygar upp á sig og sverta mannorð hans. Hann segist sann- færður um að BBC geti ekki komið fram með nein sönnunar- gögn sem styðji ásakanirnar. Harry Redknapp er einnig fest- ur á filmu þar sem hann ræðir við Harrison um að festa mögulega kaup á Andy Todd, fyrirliða Black- burn. Harrison er einnig sýndur þar sem hann ræðir við Frank Arnesen, yfirmann unglingamála Chelsea, og fulltrúa Liverpool um 15 ára táning að nafni Nathan Por- ritt sem er á mála hjá Middles- brough. Fram kom í gær að for- ráðamenn félagsins væru æfir vegna málsins og aldrei gefið Harrison leyfi til að ræða við önnur félög um Porritt. Arnesen sést í þættinum ræða það hvernig mætti greiða Porritt leynilegar greiðslur upp á 150 þúsund pund ef hann samþykkti að koma til félagsins. Mun fleiri ásakanir koma fram í þættinum og greinilegt að ekki eru öll kurl komin til grafar í þessu máli. - esá Í SVIÐSLJÓSINU Sam Allardyce fyrir utan heimili sitt í gær þar sem hann var umsetinn fréttamönnum og ljósmyndurum. NORDIC PHOTOS/AFP Sjónvarpsþáttur BBC um spillingarmál í enska boltanum sýndur í fyrrakvöld: Fyrrverandi umboðsmaður Eiðs Smára Guðjohnsen á bólakafi í spillingarmáli HNEFALEIKAR IBF-heimsmeistarinn í hnefaleikum, Vladimir Klitschko, mætir áskorandanum Calvin Brock í Madison Square Garden í New York 11. nóvember næstkomandi. Calvin Brock hefur ekki enn tapað bardaga á sínum ferli, hefur unnið alla þá 29 bardaga sem hann hefur tekið þátt í og þar af 22 með rothöggi. Vladimir Klitschko á 49 bardaga að baki, 46 sigra og 3 töp, þar af hefur hann unnið 40 bardaga með rothöggi. - dsd IBF-titillinn í hnefaleikum: Klitschko mæt- ir Calvin Brock FÓTBOLTI Fylkir er sem kunnugt er eitt þeirra liða sem eiga það á hættu að falla úr úrvalsdeild karla þegar ein umferð er óleikin. Liðið er með 21 stig og eins og gefur að skilja er hvert stig dýrmætt í fall- baráttunni. Fylkismenn geta þakk- að Páli Einarssyni fyrir níu þeirra en þau fimm mörk sem hann hefur skorað í sumar hafa öll komið í stigaleikjum. Nú síðast jafnaði hann metin fyrir Fylki gegn Blik- um og tryggði liðinu jafntefli. Fyrr í sumar tryggði hann Fylki sigur gegn ÍA á útivelli og skoraði síðara markið í 2-0 sigri á Víkingi í sínum fyrsta deildarleik með félaginu. Þá hefur hann auk leiks- ins gegn Blikum tvívegis tryggt Fylki jafntefli á útivelli. „Það er auðvitað gaman að þessari tölfræði en þetta hefur kannski ekki verið nóg því við erum ekki lausir við falldraug- inn,“ sagði Páll við Fréttablaðið í gær. „En mér hefur gengið mjög vel og liðinu ágætlega. Það hefur spilað á köflum mjög vel og er ég ótrúlega ánægður með að hafa skipt yfir í Fylki. Það gaf mér smá spark í rassinn og dvöl mín hefur verið skemmtileg enda Fylkir mjög gott félag.“ Brotthvarf Páls frá Þrótti var áberandi í fjölmiðlum í haust en þáverandi þjálfari liðsins, Atli Eðvaldsson, gagnrýndi Pál til að mynda fyrir að vera of þungur og hafa gætt sér á samloku fyrir leik í fyrra. „Ég neita því ekki að ég var far- inn að íhuga það alvarlega að hætta eftir þetta mál en maður hefur svo hryllilega gaman af þessu að það er erfitt að slíta sig frá þessu.“ Leifur Garðarsson, þjálfari Fylkis, segir að Páll hafi reynst happafengur fyrir Fylki. „Við hefðum ekki fengið hann nema við vissum að það byggi eitthvað í honum. Hann hefur sannarlega skilað af sér og rúmlega það. Hann er einnig dýrmæt hjálp fyrir okkar yngri leikmenn enda afar reynslu- mikill. Það er ómetanlegt að hafa slíka leikmenn til að geta leiðbeint þeim yngri inni á vellinum. Hann gefur vel af sér í því. En fyrst og fremst kann Páll að hafa gaman af fótbolta og það er það sem fótbolti á fyrst og fremst að snúast um.“ Páll fagnaði markinu gegn Breiðabliki á sérstæðan máta en þá hljóp hann upp að auglýsinga- skilti sem auglýsti Júmbó-samlok- ur. „Maður varð að gera smá djók úr þessu. Ef við hefðum gengið skrefinu lengra og verið með sam- loku á staðnum hefði ég klárlega bitið í hana,“ sagði hann og hló. eirikur.asgeirsson@frettabladid.is PÁLL EINARSSON Fagnar hér fyrsta marki sínu fyrir Fylki, sem hann skoraði gegn Víkingi í vor. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Mörk Páls dýrmæt Fylki Páll Einarsson gekk til liðs við Fylki í vetur eftir að hafa alið manninn í Þrótti stærstan hluta síns knattspyrnuferils. Hann hefur verið lykilmaður í liðinu og skorað fimm mörk sem hafa verið hvert öðru dýrmætara. FÓTBOLTI Harry Kewell, leikmaður Liverpool, þarf að gangast undir aðra aðgerð til að fá bót meina sinna. Þetta er mikið áfall fyrir Kewell, sem hefur verið lengi frá vegna meiðsla á sínum ferli. Kewell þurfti að hætta keppni á HM í sumar og fyrstu fréttir voru þær að leikmaðurinn væri með þvagsýrugigt. Það var hins vegar ekki rétt og talsmaður Liverpool sagði frá því í gær að leikmaðurinn væri með liðsýk- ingu í fæti. „Kewell fór í aðgerð í júlí og nú er ljóst að hann þarf að fara í aðra aðgerð til losna við þetta leiðinlega vandamál,“ var haft eftir talsmanni Liverpool. - dsd Áfall fyrir Harry Kewell: Þarf að fara í aðra aðgerð HARRY KEWELL Hefur átt í miklum meiðslum allt frá því að hann gekk til liðs við Liverpool frá Leeds. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES sport@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.