Fréttablaðið - 23.02.2007, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 23.02.2007, Blaðsíða 1
Smáauglýsingasími550 5000 Auglýsingasími Al Sigfús Bjartmarsson skáld hefur sínar aðferðir við kryddun og eldun lambalæris og útkoman er einstök. „Þetta er mjög einfalt. Hugmyndin er það að minnsta kosti. Það er verið að reyna að ná lambalærinu jafn góðu og minn- ingin er um lambalærið hjá mömmu. Mitt trix er að láta það liggja dálítið lengi í kryddmauki sem er búið til úr ólífuolíu og þurrkuðu blóðbergi og steikja það svo í fjóra klukkutíma við lágan hita. Þá verður það moðsoðið og meyrt. Svona matreiðsla kostar litla fyrirhöfn en þess meiri fyrirhyggju,“ byrjar Sigfús útskýringar sínar. Hann segir blóðbergið auka íslenska lambakjötskeiminn sem sumir kenni við villibráð og því vera frábært krydd á fjallalambið. „Það skiptir dálitlu máli upp á virknina að mylja blóðbergið sem best. Ef það ætlar ekki að gefa sig getur þurft að setja það í mortél en yfirleitt er nóg að mylja það milli fingra sér,“ segir hann. Þess má geta að blóðbergið ræktar Sigfús sjálfur norður í Aðaldal og hefur líka þróað sínar aðferðir við það. Tekur það á þeim tíma sem keimurinn er sterkastur og býr til úr því kryddblöndur og bráðhollt te, auk þess sem það fæst ómengað. „Þetta eru nokkur vísindi eins og allur landbún- aður er,“ segir hann brosandi.Af því að blóðbergið er milt krydd segir Sigfús gott að láta það liggja lengi á kjötinu og talar um þrjá til fjóra daga. Síðan steikir hann það lengi við lágan hita en til að fá brún- an lit og smá skorpu hækkar hann á ofninum síðustu 15 mínúturnar. Sósu gerir hann svo úr villtum jurtum líka en nánari leiðbeiningar um matreiðsluna er að finna á bls. 3. Sanetta samfellur - 300 kr. Rétt verð: 1.290 kr.Stærðir 56 Setur blóðberg á fjallalambið Frábær ferðamáti um Evrópu sumarferðirFÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2007 O TO S/ G ET TY IM A G ES Vertu örugg/ur á ferðalaginu með ferðatryggingum og neyðarþjónustu MasterCard kreditkort.is kreditkort.is Frábær ferðamátiSigrún Kristjánsdóttir hefur tvívegis farið í hjólaferð um Evrópu. BLS. 2 si rk us 23. febrúar 2007 Eiríkur Hauksson og Helga SteingrímsdóttirÁSTFAN Ingvar Þórðar Kvikmyndaframleiðand-inn keypti tvö ljón í Búlgaríu þar sem hann var staddur við að leggja lokahönd á kvikmyndina Astropia sem frumsýnd verður í sumar. Bls. 4 Halla Vilhjálms Í hópi fagurra kvenna, eins og Sadie Frost, Nicole Kidman og Siennu Miller, sem tengdar hafa verið við breska hjartaknúsarann Jude Law. Hún hefur vakið FRIÐRIKA GEIRSDÓTTIRFæddi kraftaverkadreng þremur mánuðum fyrir tímann sem er kominn heim og dafnar vel. BLS. 2 MENNING / PÓLITÍK / VIÐSKIPTI / FÓLK 15.02 0́7 KRONIKAN.IS Neytendur kvarta undan ósamþykktum rukkunum í heimabanka. NEYTENDAÚTTEKT Sonur Jóns Páls Sigmars- sonar heitins fær einkaleyfi á „Ekkert mál fyrir Jón Pál!“ RÚSÍNAN 22.02.07 KRONIKAN.IS 02# Krónikan VERÐ 650 kr.- 9 771670 721403 HEIMILIN Í HÖNDUM SPÁKAUPMANNA ÓMAR RAGNARSSON Segist vera réttu megin í stríðinu um Ísland. 2. TÖLUBLAÐ ER KOMIÐ ÚT KRONIKAN.IS Sjá dagskrá og upplýsingar á www.hi.is/ams Er stjórnar- skráin úrelt? Málþing um stjórnarskrárbreytingar og alþjóðavæðingu í dag föstudaginn 23. febrúar frá 13:30 til 15:30 Framleiðendur klámefn- is hafa hætt við að koma hingað til lands eftir að stjórn Bændasam- takanna, sem eiga Hótel Sögu, ákvað að hætt yrði við að hýsa þá þar. Framleiðendur segjast á heimasíðunni snowgathering.com hafa leitað liðsinnis lögfræðings til að innheimta kostnað sem til hafi fallið við skipulagninguna. Hrönn Greipsdóttir, hótelstjóri Hótel Sögu, segir að nauðsynlegt hafi verið að grípa til þessa ráðs vegna andstöðu almennings og yfirvalda. „Ljóst er að þeim sem koma að ferðaþjónustu hér er vandi á hönd- um ef þeir þurfa að meta og flokka ferðamenn sem hingað koma þótt ekkert ólöglegt hafi komið upp,“ segir Erna Hauksdóttir, fram- kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón- ustunnar. „Þetta snýst ekki um klám, margt er ólöglegt hér sem er löglegt annars staðar og erfitt getur reynst að flokka fólk út frá því,“ segir Erna og telur jafnvel þurfa að kalla eftir upplýsingum hjá borgar- yfirvöldum um hvaða ferðamenn séu æskilegir og hverjir ekki. Katrín Anna Guðmundsdóttir, talskona Femínistafélagsins, fagn- ar niðurstöðunni. Vilja fá endurgreiddan kostnað Sigurður Tómas Magn- ússon, settur ríkissaksóknari í Baugsmálinu, óskaði við lok dags í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær eftir fundi með dómara og verj- endum sakborninga um nafnlaust bréf sem sent hefur verið mörg- um sem að málinu koma. Rauði þráðurinn í bréfinu er sá að sýknudómar og frávísanir í mál- inu í Hæstarétti sé hefnd dómara við réttinn gegn Davíð Oddssyni, fyrrverandi forsætisráðherra, vegna þess að Davíð hafi beitt sér fyrir því að þeir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Jón Steinar Gunn- laugsson voru skipaðir hæstarétt- ardómarar. Fréttablaðið hefur fengið það staðfest að bréfið var sent í pósti til allra dómara Hæstaréttar Íslands, Gests Jóns- sonar, verjanda Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, og Arngríms Ísbergs, dómsformanns Baugs- málsins í héraðsdómi. Bréfið barst einnig ritstjóra Fréttablaðs- ins, póststimplað 19. febrúar. Bréfið er tvískipt, annars vegar er fjallað um valda dóma sem fallið hafa í Baugsmálinu og hins vegar eru settar fram tilgátur um ástæður fyrir niðurstöðum dóm- anna. Sigurður Líndal, prófessor í lögfræði, segir allt benda til að bréfritari sé lögfróður maður. „Það er greinilegt að bréfritari ber mjög þungan hug til eigenda Baugs vegna úrslita sakamála þeim á hendur.“ Eiríkur Tómasson, prófessor í lögfræði, segir það að dreifa nafn- lausu bréfi með jafn alvarlegum persónulegum aðdróttunum og hér er gert vera grafalvarlegt mál. „Þegar það bætist svo við að bréfið getur ekki verið skrifað nema af lögfræðingi eða einstakl- ingi sem hefur heimildarmann úr hópi lögfræðinga, gerir það mál þetta enn alvarlegra.“ Gestur Jónsson staðfesti í gær að honum hafi borist bréfið og segist líta það afar alvarlegum augum, enda sé bréfið ótrúlega rætið og óhugguleg lesning. „Þetta er skrifað af manni sem er nafnlaus, að ekki sé talað um hug- laus. Það er ómögulegt að lesa þetta bréf öðruvísi en svo að þarna sé verið að reyna að hafa áhrif á niðurstöðuna í málinu.“ Gestur segir bréfið skrifað af mikilli þekkingu á lögfræði og á málinu sjálfu. Hann telur ljóst að tilgangur bréfsins sé að sakborn- ingar verði sakfelldir. Settur saksóknari kallar á fund vegna nafnlauss bréfs Hefnd hæstaréttardómara á Davíð Oddssyni er rauður þráður í nafnlausu bréfi sem lykilmenn í Baugsmál- inu fengu sent í pósti. Fræðimenn lýsa bréfinu sem óhugnanlegri lesningu og vegið sé að dómstólum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.