Fréttablaðið - 23.02.2007, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 23.02.2007, Blaðsíða 78
MÖGNUÐ MYND MEÐ ÓSKARSVERÐLAUNA- TILÞRIFUM FRÁ FOREST WHITAKER SEM EINN GRIMMASTI HARÐSTJÓRI SÖGUNNAR. MISSIÐ ALLS EKKI AF ÞESSARI MYND! !óíbí.rk045 Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500 THE LAST KING OF SCOTLAND kl. 5.30, 8 og 10.35 B.I. 16 ÁRA NOTES ON A SCANDAL kl. 6, 8 og 10 B.I. 12 ÁRA PAN´S LABYRINTH kl. 5.45, 8 og 10.15 B.I. 16 ÁRA LITTLE MISS SUNSHINE kl. 8 og 10.10 B.I. 7 ÁRA KÖLD SLÓÐ/COLD TRAIL kl. 5.45 ENGLISH SUBTITLES B.I. 12 ÁRA THE NUMBER 23 kl. 5.45, 8 og 10.15 B.I. 16 ÁRA THE LAST KING OF SCOTLAND kl. 5.20, 8 og 10.35 B.I. 16 ÁRA SÝND Í LÚXUS kl. 5.20, 8 og 10.35 GHOST RIDER kl. 5.30, 8 og 10.30 B.I. 12 ÁRA THE PURSUIT OF HAPPYNESS kl. 8 og 10.30 ANNA & SKAPSVEIFLURNAR ÍSL. TAL kl. 4 og 4.45 STUTTMYND VEFUR KARLOTTU ÍSL. TAL kl. 3.40 NIGHT AT THE MUSEUM kl. 5.40 THE NUMBER 23 kl. 6, 8 og 10 B.I. 16 ÁRA GHOST RIDER kl. 8 og 10.15 B.I. 12 ÁRA NOTES ON A SCANDAL kl. 6 B.I. 12 ÁRA MIÐASALA Í SMÁRABÍÓ OG REGNBOGANN Á MIÐASALA Í SMÁRABÍÓ OG REGNBOGANN Á TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI SVALASTA SPENNUMYND ÁRSINS “FORREST WHITAKER ER HREINT ÚT SAGT MAGNAÐUR Í HLUTVERKI HARÐSTJÓRANS OG SÝNIR SVO AÐ EKKI VERÐUR UM VILLST AÐ HÉR FER EINN FREMSTI LEIKARI SAMTÍMANS. B.S. - FRÉTTABLAÐIÐ MYND EFTIR JOEL SCHUMACHER Myndin Ghost Rider byggir á sam- nefndri teiknimyndasögu um mótor- hjólakappann Johnny Blaze, sem selur skrattanum sál sína til að bjarga lífi föður síns. Mörgum árum síðar, þegar Blaze er orðinn einn þekktasti ofurhugi heims, vitjar djöfullinn hans til að innheimta skuldina. Blaze breytist í Drauginn, logandi beinagrind á eldspúandi mótorfáki sem eltir uppi þá sem hafa fallið í ónáð hjá þeim vonda, í þessu tilfelli son hans Blackheart sem vill búa til helvíti á jörð. Inn í fléttuna flækist æskuást mótorhjóla- töffarans, Roxanne, og dularfullur útfararstjóri sem reynist Blaze betri hjálp en engin. Leikstjórinn Mark Steven John- son á að baki myndir á borð við hinar slöku Daredevil og Elektra en skemmst er frá því að segja að honum tekst betur upp í Ghost Rider en þeim fyrrnefndu, enda með kappnóg af peningum milli hand- anna í þetta sinn. Því miður var hins vegar ekki úr háum söðli að detta og þegar upp er staðið getur Ghost Rider varla talist burðug mynd, sér- staklega í ljósi þess að undanfarin ár hafa leikstjórar á borð við Sam Raimi, Bryan Singer og Robert Rodriguez sett ný viðmið í kvik- myndagerð af þessu tagi. Í fyrsta lagi er handritið dauð- hreinsað, flatt og fyrirsjáanlegt. Sjarminn er víðs fjarri og persónu- galleríið hið dauflegasta. Búið er að stoppa í kollvikin á Nicolas Cage, sem er hér um bil eini munurinn á honum í þessari rulllu og fjölmörg- um öðrum sem hann hefur leikið áður. Barmur Evu Mendez prýðir ófá atriði en að öðru leyti fær hún lítið að spreyta sig. Skúrkateymið er sérstaklega tilkomulítið; Peter Fonda er heillum horfinn og klisju- legur í hlutverki skrattans, Wes Bentley er veimiltítulegur sem skollasonurinn og skósveinar hans lítilfjörlegir. Sem betur fer er keyrslan sæmi- leg og þrátt fyrir dauða punkta hist og her leiðist Ghost Rider aldrei út í óbærileg leiðindi og er því mögulega boðleg afþreying fyrir þá sem þurfa að fylla upp í tveggja tíma tómarúm. Mark Steven Johnson þarf þó að þramma býsna langt í sjö mílna skóm til að komast með tærnar þar sem Raimi og Singer hafa hælana. Sálarlaus beinasleggja Nýtt plötusnúðatvíeyki steig fram á sjónarsviðið á dögunum, þegar systurnar Gyða og Steinunn Bergs þreyttu frumraun sína á B5. „Við erum nú varla byrjaðar, þannig séð. Við höfum bara spilað í þetta eina skipti,“ sagði Gyða létt í lund, en frumraunin fór fram í svokölluðu Minimal-partíi. „Við spiluðum fyrst og svo tóku Mar- geir og Jón Atli við. Þetta var rosa- lega skemmtilegt og mjög vel heppnað,“ bætti hún við. Aðdragandinn að þessum fyrstu skrefum þeirra systra á plötusnúðabrautinni var þó ekki mjög langur, að sögn Gyðu. „Við erum bara að leika okkur, spila góða tónlist og sprella. Við þekkj- um Margeir og Jón Atla, svo þetta kom svolítið til í gegnum þá.“ Að sögn Gyðu nutu þær Steinunn einnig dyggrar aðstoðar við undir- búninginn. „Við eigum góða DJ- vini sem hjálpa okkur og kenndu okkur á þetta allt saman,“ sagði hún. Systurnar hafa mikinn áhuga á tónlist, eins og vænta má. „Við hlustum mjög mikið á tónlist, þótt við séum ekkert alltaf að búa hana til. Við erum líka með svipaðan tónlistarsmekk og hlustum mikið á fallega, elektróníska tónlist,“ sagði Gyða. Þær systur eru afar samrýmdar, enda voru þær fengn- ar til að leika tvíburasystur í Travis-myndbandi hér um árið. „Við erum bestu vinkonur og höfum alltaf verið,“ sagði Gyða kát. Þær Gyða og Steinunn munu endurtaka leikinn á B5 á laugar- daginn. „Það er búið að ganga frá því að við verðum þarna einu sinni í mánuði á næstu mánuðum,“ upp- lýsti Steinunn. „Svo bíðum við bara eftir gullnum tilboðum,“ bætti Gyða við. Nýtt plötusnúðatvíeyki Roman Polanski og Coen-bræð- urnir eru á meðal 35 leikstjóra sem hafa búið til stuttmyndir í tilefni af sextíu ára afmæli kvik- myndahátíðarinnar í Cannes. Hver mynd er þriggja mínútna löng og fjallar um það að fara í bíó. Verða þær sýndar á næstu Cannes-hátíð í maí. Á meðal fleiri leikstjóra sem taka þátt eru Lars Von Trier, Wim Wenders, Alejandro Gonz- ales Inarritu, Ken Loach og David Cronenberg. Gerist mynd Cronenberg inni á baðherbergi. „Enginn leikstjóranna vissi nokkuð um söguþræði hinna stuttmyndanna,“ sagði skipu- leggjandi Cannes-hátíðarinnar, Gilles Jacob. Myndirnar verða sýndar hinn 20. maí. Hátíðin sjálf stendur yfir frá 16. til 27. maí. Formaður dómnefndar verður breski leikstjórinn Stephen Frears. Gera stuttmyndir Hreinar hendur örugg samskipti 334 kr.237 kr. 5.988 kr. DAX Hár&húðsápa m.dælu 600ml DAX Handsápa mild 600ml m.dælu DAX Skammtari snertifrír Rekstrarvörur 1982–200725ára R V 62 24 B Á tilboð i í febrúar 2007 DAX Han dspritt, krem, sá pur ofl. DAX Handspritt 732kr. Jóhanna Runólfsdóttir sjúkraliði, ráðgjafi hjá RV
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.