Fréttablaðið - 23.02.2007, Blaðsíða 82

Fréttablaðið - 23.02.2007, Blaðsíða 82
 Danski miðjumaðurinn Joachim Boldsen er sterklega orðaður við spænska stórliðið Barcelona þessa dagana en tveir landar hans, Kasper Hvidt og Jesper Noddesbo, eru á leið til Barca í sumar. Boldsen leikur með þýska félaginu Flensburg og það mætir einmitt Barcelona í Meistara- deildinni í kvöld en leikinn má sjá í beinni útsendingu á Eurosport 2 sem er á Digital Íslandi. Boldsen er staðráðinn í að yfirgefa herbúðir þýska liðsins og hann hefur skrifað undir þriggja ára samning við AaB frá Álaborg en er með klausu í samningnum sem gerir honum kleift að fara til Spánar kjósi hann svo. Boldsen til Barcelona? Forráðamenn franska félagsins Lille hafa kennt Manchester United um troðning- inn sem varð í áhorfendahólfi United á leik liðsins gegn Lille ytra í vikunni. Forráðamenn Lille segja að United hafi byrjað að dreifa miðum sínum á leikinn svo snemma að auðvelt hafi verið að falsa miða. Áhorfendur á fölsuðum miðum hafi síðan verið ástæðan fyrir troðningnum á leiknum en litlu mátti muna að illa færi en lögregla neyddist til að kasta táragasi að áhorfendum. Forráðamenn United neita sök og skilja ekkert í ásökunum Lille. Falsaðir miðar sök United Grindavík vann 86-93 sigur í Keflavík í fyrrakvöld í Iceland Express deild kvenna og færði þar með Haukastúlkum nánast deildarmeistaratitilinn á silfurfati. Nýkrýndir bikarmeist- arar Hauka þurfa aðeins að vinna tvö neðstu liðin, Breiðablik og Hamar, til þess að verða deildar- meistarar annað árið í röð. Í fyrri sex leikjum liðanna hefur Haukarliðið unnið minnst með 31 stiga mun. Það vakti athygli að Tamara Bowie skoraði „aðeins“ 23 stig fyrir Grindavík í leiknum. Petrúnella Skúladóttir átti frábæran leik, skoraði 21 stig, tók 8 fráköst og hitti úr 7 af 9 skotum sínum. Hjá Keflavík var TaKesha Watson í sérflokki með meira en helming stiga liðsins, 44 af 86. Færðu Hauk- um titilinn Valur og KR spila til úrslita í Reykjavíkurmóti kvenna í fótbolta í kvöld en leikurinn hefst klukkan 19.00 í Egilshöll- inni. Liðin eru jöfn að stigum fyrir leikinn en KR er með mun hagstæðari markatölu og nægir jafntefli í leiknum. KR endaði fimm ára sigurgöngu Valskvenna í fyrra með því að vinna 2-1 í leik undir sömu kringumstæðum og eru í kvöld. Margrét Lára Viðarsdóttir hefur enn ekki skipt yfir í Val og verður að öllum líkindum ekki með í leiknum en það yrði mikill styrkur fyrir Val ef svo færi enda var Margrét yfirburðamanneskja í boltanum síðasta sumar. Valur og KR spila til úrslita Það verður stórleikur í Keflavík í kvöld þegar nágrann- arnir og erkifjendurnir Keflavík og Njarðvík mætast í Iceland Express deild karla. Njarðvík er 4 sætum og 10 stigum ofar í töflunni, vann fyrri leikinn með 14 stigum og er sigurstranglegra liðið. Keflvíkingar hafa breytt liði sínu og kallað til lítinn og eldfljót- ann bakvörð, Tony Harris, sem þeir vonast til að kveiki í Keflavík- urliðinu í sínum fyrsta leik í kvöld. Þetta er í 60. sinn sem liðin mætast í deildarkeppni úrvalsdeildar og tveir kappar hafa spilað stærsta hlutann af þessum leikjum. Þeir búast við skemmtilegum og vel sóttum leik. Enginn hefur spilað fleiri Reykjanesbæjarleiki í úrvalsdeild en Guðjón Skúlason sem skoraði 596 stig í 45 leikjum sínum með Keflavík á móti Njarðvík. „Kefla- víkurliðið hefur ekki verið sann- færandi undanfarið. Það er einhæf ógnun í sóknarleik liðsins og liðin óttast ekki skytturnar í Keflavík eins og áður,“ segir Guðjón sem er búinn að sjá nýja Bandaríkjamann- inn sem spilar sinn fyrsta leik í kvöld. „Ég er búinn að kíkja á hann og líst vel á hann. Það verður spenn- andi að sjá hvernig hann kemur út. Það er búið að prófa stóra leik- menn og Keflavíkurliðið hefur nóg af stórum körlum en vantar meiri stöðugleika í bakvarðasveitina,“ segir Guðjón. „Eina von Keflavíkur til að hífa sig upp í fjórða sætið er að vinna það sem eftir er. Annars byrja Keflvíkingar á útivelli í úrslita- keppninni og það er erfitt,“ segir Guðjón. Enginn hefur skorað fleiri stig í Reykjanesbæjarleikjum í úrvals- deild en Teitur Örlygsson sem skoraði 623 stig í 39 leikjum sínum með Njarðvík á móti Keflavík. „Það hefur gengið mjög vel í vetur. Njarðvík er með gríðarlega sterkan mannskap og með flotta blöndu af eldri og reyndari mönn- um og svo ungum strákum sem hafa komið inn í þetta,“ segir Teit- ur sem segir nýjan leikmann skapa óvissu fyrir leikinn í kvöld. „Við höfum áður lent í Keflavík og tapað þegar þeir hafa verið að koma með nýjan mann. Ég held að Siggi sé að pæla í því að sprengja þetta allt í tætlur. Þeir hafa engu að tapa, þetta hefur ekki gengið hjá þeim eins og þetta er búið að vera. Þeir eru því óhræddir við að sprengja þetta upp og hlaupa eins og brjálæðingar,“ segir Teitur sem hefur þó trú á sigri sinna manna. „Það verður erfitt fyrir Kefla- vík að vinna þetta á þriggja stiga skotum því Njarðvík er með mjög gott varnarlið,“ segir Teitur og bætir við. „Ef Njarðvíkingar verða þolin- móðir og láta Keflvíkinga ekkert ýta sér út úr sínum bolta þá held ég bara að Keflavík geti ekki var- ist þeim. Þetta er bara undir Njarð- vík komið,“ segir Teitur að lokum. Keflavík og Njarðvík mætast í kvöld á Sunnubrautinni í 60. sinn í úrvalsdeild karla. Guðjón Skúlason og Teitur Örlygsson eru spenntir fyrir leiknum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.