Fréttablaðið - 23.02.2007, Blaðsíða 68
Það er sáraeinfalt að spila góðan fótbolta,
þetta snýst bara um samvinnu og ekkert
annað. Í raun er þetta voðalega líkt því sem
maður gerir í svefnherberginu, því eins og í
fótbolta er lítið vit í að
gera allt einn.
Þú sérð hvað ég meina, er það
ekki? Fótbolti er enginn staður
fyrir fólk sem ekki hugsar um
annað en sjálft sig, alveg eins
og ...
Í svefnherberginu.
Vúpps!!! Lyktar-
eyðirinn
brotnaði
Farðu nú að
viðurkenna að þú
ert líklega með
fótsvepp og eitthvað
þarf að gera í því.
Grunnskóli og
Tattoo stofa
Þrymirs
Varstu búin að skoða
þetta almennilega?
Hvað ætlar þú að
verða þegar þú
ert orðinn stór?
Hvað meinarðu?
Ég meina, verður
þú dalmatíuhundur,
kjölturakkur eða púðlu
hundur?
Bara svona
eins og ég er
Svona nú, þú
getur nú gert
betur, ekki þetta
metnaðarleysi
Hefur
einhver
séð góða
pennann
minn?
Það fer eftir því
hvað þú meinar
með séð?
Ég meina,
ég hef alveg
séð hann.
Það hafa allir
séð þennan
penna sem búa
hérna?
Það sem þú ert í raun að
spyrja er hefur einhver fengið
pennan lánaðan? Kannski fékk
einhver hann lánaðan til að lita
í litabókina sína eða til að teikna
falleg hjörtu á hendina á sér ...
Hefur einhver
fengið góða
pennann minn
lánaðan?
Skilgreindu,
einhver ...
Klámframleiðendur
hafa hætt við fyrir-
hugaða ráðstefnu á
Íslandi eftir að hafa
verið vísað frá Hótel
Sögu, þar sem hópur-
inn átti bókaða gist-
ingu.
Sjálfsagt varpa
margir öndinni léttar, þar
á meðal stjórn Bændasamtaka
Íslands sem eiga Hótel Sögu,
borgaryfirvöld og ýmis félagasam-
tök, sem hafa lýst sig andvíg komu
hópsins. Klámhundarnir hafa hins
vegar risið upp á afturfæturna og
mótmælt mannréttingabrotunum
sem verið er að fremja í þessu fyrir-
myndarríki.
Persónulega finnst mér ráð-
stefnan hafa fengið allt of mikla
fjölmiðlaathygli, þótt umræðan sé
vissulega þörf og hafi í þessu tilviki
haft áhrif. Ég er nefnilega ansi
hræddur um að sú neikvæða
umfjöllun sem hópurinn hefur
fengið eigi eftir að reynast honum
ágætis auglýsing þegar öllu er á
botninn hvolft, alveg sama þótt
hann hafi afboðað komu sína til
landsins.
Mér finnst líka skrítið að áhugi
klámframleiðenda á landinu skuli
koma Íslendingum svona á óvart.
Sérstaklega í ljósi þeirrar landkynn-
ingar sem fyrirtæki eins og Ice-
landair hafa staðið fyrir um árabil,
þar sem gert er út á lauslæti lands-
manna. Eða man enginn eftir banda-
rísku slökkviliðsmönnunum og
Playboy-tökuliðinu sem komu hing-
að í sitt hvoru lagi en í þeim sama
tilgangi: að komast yfir konur?
Það er bara vonandi að við drög-
um lærdóm af þessu máli og verð-
um betur undirbúin þegar næsti
klámhópur boðar komu sína hingað.
Ég legg til að við eyðum þá ekki öllu
púðri í þvaður heldur látum verkin
tala, handtökum fólkið, tökum af
því myndavélarnar og setjum í
stofufangelsi í Austurbæjarskóla.
Sleppum því ekki aftur undir bert
loft fyrr en tilgangur þess liggur
ljós fyrir og höfum það svo undir
ströngu eftirliti.
Það er alveg nóg að við skulum
hafa leyft útlendingunum að nauðga
landinu, látum þá ekki líka hossa
sér úti í náttúrunni.
GRENSÁSVEGI 48 • S ÍM I 553 1600
Í NAUTI ERUM VIÐ BESTIR
Áttu von
á gestum?