Fréttablaðið - 24.03.2007, Side 98

Fréttablaðið - 24.03.2007, Side 98
 Alfreð Gíslason lands- liðsþjálfari hefur valið lands- liðshópinn sem tekur þátt í gríð- arsterku æfingamóti í París um páskana. Þar verða andstæðingarn- ir Evrópumeistarar Frakka, silf- urliðið frá HM, Pólland og svo Túnis. Leikið er 6., 7., og 8. apríl og allir leikirnir verða í beinni út- sendingu á Rúv. Fimm breytingar eru á hópn- um síðan á HM en markverðirnir Birkir Ívar Guðmundsson og Ról- and Valur Eradze eru fjarri góðu gamni að þessu sinni. Slíkt hið sama á við um þá Sigfús Sigurðs- son og Alexander Petersson sem eru meiddir. Einar Örn Jónsson er ekki valinn í hópinn að þessu sinni. Björgvin Páll Gústavsson kemur á ný í hópinn. Bjarni Fritzson, Valdimar Þórsson og Andri Stefan fá sjaldséð tækifæri Framarinn Jóhann Gunnar Ein- arsson er eini nýliðinn í hópnum . Fimm breyting- ar frá HM Valur Ingimundar- son, þjálfari Skallagríms, liggur undir feldi þessa dagana og íhug- ar framtíð sína. Valur, sem orð- inn er 45 ára, hefur verið í körfu- bolta alla sína hundstíð og þar af hefur hann verið þjálfari í meist- araflokki í 21 ár samfleytt. „Ég hef verið að velta því fyrir mér í vetur að hvíla mig að minnsta kosti í eitt tímabil. Ég held að það hafi allir gott af því að taka smá frí,“ sagði Valur, sem er búinn að þjálfa Skallagrímslið- ið síðustu fimm ár og náð frábær- um árangri. Lengst fór Skalla- grímur á síðustu leiktíð er hann komst í úrslit Íslandsmótsins þar sem lærisveinar Vals máttu lúta í lægra haldi fyrir Njarðvík. „Það má segja að þetta sé upp- söfnuð þreyta í bland við áhuga á að prófa hvernig lífið sé fyrir utan körfuboltann. Ég hef aldrei gert það. Þetta hefur ekkert með liðið að gera enda er ég mjög ánægð- ur hér í Borgarnesi,“ sagði Valur en Skallagrímsmenn vilja ólmir halda Vali áfram við stjórnvölinn. „Ég byrjaði 17 ára í meistara- flokki og hef verið í körfubolta allar götur síðan. Ég byrjaði að þjálfa meistaraflokk 24 ára og hef verið að þjálfa stanslaust síðan,“ sagði Valur en ástæðan hefur ekkert að gera með fjölskylduna sem hefur ávallt stutt við bakið á honum og krakkarnir hans vilja í raun að hann haldi áfram að þjálfa. „Ég veit að það er til meira í líf- inu en körfubolti þótt körfuboltinn hafi vissulega gefið mér mikið. Það væri gaman að fylgjast með úr fjarlægð til tilbreytingar. Ég myndi samt mæta á alla leiki og fylgjast með úr stúkunni. Þar er ég líka rólegri en á hliðarlínunni. Við sjáum hvað setur en ég mun ákveða mig á næstu vikum. Ég er ekki alveg tilbúinn að gefa ákveð- ið svar strax,“ sagði Valur Ingi- mundarson. Langar að prófa að vera í fríi frá körfubolta í einn vetur Nesbyggð Sýnum um helgina fullbúnar íbúðir í Reykjanesbæ. Íbúðirnar eru 60-120 m2 og eru seldar með öllum rafmagnstækjum. Opið hús kl. 10 til 17 laugardag og sunnudag. Íbúðirnar eru í Dalshverfi I og II og allar upplýsingar á sölusýningu i Tjarnarbakka 12. Nánari upplýsingar á www.nesbyggd.is og hjá fasteignasölum í Reykjanesbæ Nesbyggð ehf. Hefur fengið sérstaka viðurkenningu frá Reykjanesbæ, sem verktaki fyrir góðan frágang bygginga og lóða. Íbúðir í boði: Samtals íbúðir Seldar Óseldar Afhending Tjarnabakki 10 10 9 1 1. maí ’07 Tjarnabakki 12 10 9 1 Strax Tjarnabakki 14 10 10 0 Engjadalur 2 16 13 3 1. maí ‘07 Engjadalur 4 20 16 4 1. sept. ‘07 Beykidalur 2 12 5 7 1. feb. ‘08 Beykidalur 4 12 0 12 1. apr. ‘08 Sölusýning Opið hús laugardag og sunnudag frá klukkan 10.00 til 17.00 Tjarnabakka 12 Reykjanesbæ Nesbyggð ehf | Stapahraun 5 | 260 Reykjanesbær Sími 421 2700 | Fax: 421 2765 www.nesbyggd.is Spánverjar leika gríð- arlega mikilvægan leik gegn Dönum í dag og þeir verða án Carles Puyol, leikmans Barce- lona. „Hann bað um frí þar sem amma hans féll frá og móðir hans á um verulega sárt að binda,“ sagði Luis Aragonés landsliðsþjálfari. Sergio Ramos, leikmaður Real Madrid, er einnig frá. Þetta er annað áfallið sem Puyol verður fyrir á stuttum tíma en fyrr í vetur varð hann að yfirgefa félaga sína í Barcelona á keppnis- ferðalagi þar sem faðir hans lést í vinnuslysi. Hann mun hins vegar fara til landsliðsfélaga sinna á morgun og verður til í slaginn gegn Íslendingum á miðvikudag. „Það er til ýmislegt sem er jafn- vel mikilvægara en fótbolti og ég hef skilning á því,“ segir Aragon- és sem viðurkennir að þetta muni vissulega veikja spænska liðið en starf hans er talið vera að veði í leiknum. „Það kemst ekkert annað að í mínum huga en að vinna; við erum búnir að tapa þeim leikj- um sem við megum tapa. Ég veit ekki hvað stjórnin gerir ef allt fer á versta veg. Ég hugsa aðeins um að sigra.“ Þarf að hugga móður sína
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.