Fréttablaðið - 12.09.2007, Side 1
Eyjamenn selja | Glitnir hefur
keypt tæplega fjörutíu prósenta
hlut í Tryggingamiðstöðinni
(TM) af félögum Guðbjargar M.
Matthíasdóttur og hjónanna Sig-
ríðar E. Zoëga og Geirs G. Zoëga
auk tengdra aðila.
Vilja sameinast | Forsvarsmenn
Sparisjóðsins í Keflavík, Spari-
sjóðs Vestfirðinga og Sparisjóðs
Húnaþings og Stranda ætla að
leggja til á fundi stofnfjáreigenda
í nóvember að sjóðirnir samein-
ist.
Met slegið | Velta með hlutabréf
í Glitni er orðin meiri það sem af
er ári en heildarvelta í Kauphöll
árið 2002. Kauphöllin miðar við að
ársvelta félags samsvari markaðs-
virði þess.
Vilja evru | Lagt verður fyrir
stjórnarfund Kaupþings í næsta
mánuði að hlutafé bankans verði
skráð í evrum. Þá verður einnig
lagt til að bækur bankans verði
gerðar upp í evrum.
Alfesca líka | Tillaga um að skrá
hlutafé Alfesca í evrum og að
auka hlutafé um allt að 1,7 millj-
arða hluta liggur fyrir aðalfundi
Alfesca sem verður haldinn mánu-
daginn 24. september næstkom-
andi.
Fáránleg hugmynd | Á vaxta-
ákvörðunarfundi Seðlabankans,
þar sem kynnt var sú ákvörðun
að halda stýrivöxtum óbreyttum í
13,3 prósentum, sagði seðlabanka-
stjóri einhliða upptöku evrunnar
„fáránlega hugmynd“.
Fimmta stoðin | Stjórnendur Al-
fesca stefna að því að ljúka kaupum
á breska fyrirtækinu Oscar Mayer
fyrir áramót. Með kaupunum á fé-
laginu yrði fimmta stoðin reist
undir starfsemi Alfesca með til-
búnum réttum.
Framtíðarsýn
Straums
Háleit
markmið
14
Íslensk flugmiðlun ehf.
Í skörpu flugtaki
6
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
F R É T T I R V I K U N N A R
Lárus Welding
Kominn með keflið
8-9
Vanskil eru í sögulegu lágmarki
samkvæmt nýju yfirliti Fjár-
málaeftirlitsins (FME). Ragnar
Hafliðason, aðstoðarforstjóri
FME, segir þau vanskilahlutföll
sem nú sjást vera þau lægstu á
tímabilinu sem yfirlitið nær yfir,
en það eru rúm sex ár.
Ragnar áréttar þó að þótt
hlutfall vanskila sé nú í sögu-
legu lágmarki beri að athuga að
aukning útlána á undanförnum
misserum kunni að koma fram
í auknum vanskilum síðar. „Í
því sambandi er rétt að benda
á að þátttaka innlánsstofnana
í fasteignalánum frá og með
seinni hluta ársins 2004 kann að
hafa haft áhrif á þróun vanskila
sem sýnd er á yfirlitinu, einkum
vanskilahlutfall einstaklinga,“
segir hann.
Hlutfall vanskila af útlánum
í lok annars ársfjórðungs þessa
árs er tæplega 0,6 prósent, sam-
anborið við 0,7 prósent í lok
fyrsta fjórðungs og rúmlega 0,5
prósenta í lok árs 2006. „Frá
árslokum 2005 hefur hlutfall-
ið verið á bilinu 0,5 til 0,7 pró-
sent, sem eru lægstu vanskila-
hlutföll sem sést hafa á því rúm-
lega 6 ára tímabili sem yfirlitið
nær yfir,“ segir í frétt Fjármála-
eftirlitsins.
Tölurnar sem FME hefur tekið
saman um vanskil útlána hjá
innlánsstofnunum miða við lok
júní í ár og borið saman við
næstu ársfjórðunga á undan.
Horft er til vanskila sem staðið
hafa lengur en einn mánuð. Um
er að ræða brúttó vanskil og því
ekki dregnar frá fjárhæðir sem
lagðar hafa verið til hliðar sem
sérstakar afskriftir.
Fram kemur í tölum FME að
vanskilahlutfall fyrirtækja hafi
verið 0,5 prósent um mitt þetta
ár, en það sé óbreytt samanborið
við árslok 2006. „Vanskilahlut-
föll fyrirtækja miðað við eins og
tveggja ára tímatöf eru 0,6 pró-
sent og 1,0 prósent og eru þau
lægstu sem yfirlitið sýnir.“ Þá
var hlutfall vanskila einstakl-
inga 0,8 prósent í lok annars árs-
fjórðungs 2007 og er það nán-
ast óbreytt hlutfall frá lokum
tveggja næstu ársfjórðunga á
undan. Fram kemur að vanskila-
hlutföll einstaklinga miðað við
eins og tveggja ára tímatöf séu
0,9 prósent og 1,4 prósent og séu
líkt og með fyrirtæki þau lægstu
sem yfirlit eftirlitsins sýnir.
Vanskil eru í sögulegu lágmarki
FME segir útlánaaukningu síðustu missera kunna að vera ávísun á vanskil síðar.
G
O
TT
F
Ó
LK
Peningabréf ISK/EUR/USD/GBP eru fjárfestingarsjó›ir í
skilningi laga nr. 30/2003, um ver›bréfasjó›i og fjárfestingar-
sjó›i. Sjó›irnir eru reknir af Landsvaka hf., rekstrarfélagi me›
starfsleyfi FME. Landsbankinn er vörslua›ili sjó›anna. Athygli
fjárfesta er vakin á flví a› fjárfestingarsjó›ir hafa r‡mri fjár-
festingarheimildir skv. lögunum heldur en ver›bréfasjó›ir.
Um frekari uppl‡singar um sjó›ina, m.a. hva› var›ar muninn
á ver›bréfasjó›um og fjárfestingarsjó›um og fjárfestingar-
heimildir sjó›anna, vísast til útbo›sl‡singar og útdráttar úr
útbo›sl‡singu sem nálgast má í afgrei›slum Landsbankans
auk uppl‡singa á heimasí›u bankans, landsbanki.is.
CAD
4,2%*
DKK
4,4%*Örugg ávöxtun
í fleirri mynt
sem flér hentar EUR
4,7%*
GBP
6,5%*ISK14,4%*
Markmið
Peningabréfa er
að ná hærri ávöxtun en
millibankamarkaður og
gjaldeyrisreikningar. Enginn
munur er á kaup-
og sölugengi.
Peningabréf
Landsbankans
USD
5,4%*
* Nafnávöxtun á ársgrundvelli frá 1. ágúst - 31. ágúst 2007.
www.trackwell .com
Flotaeftirlit – tækjanotkun
og aksturslagsgreining
FORÐASTÝRING
„Fjármálaafurðir og áhættustýr-
ing eru gríðarlega flókin fyrir-
bæri sem fáir
skilja. Því verð-
ur að fylgjast vel
með svo þau séu
ekki misnotuð,“
segir Nick Leeson,
verðbréfamiðlar-
inn fyrrverandi
sem þekktastur
er fyrir að gera
breska Barings-bankann gjald-
þrota fyrir tólf árum.
Leeson segir í viðtali við Mark-
aðinn í dag að stjórnendur og endur-
skoðendur bankans hefðu með
virku eftirliti getað komið í veg
fyrir misnotkun hans á fjármun-
um bankans í afar áhættusömum
gjaldeyrisviðskiptum sem leiddu
til gjaldþrotsins. - jab / sjá síðu 12
Varist vítin
Norræni fjárfestingabankinn
tilkynnti í gær um krónubréfa-
útgáfu að nafnvirði fimm millj-
arðar króna. Bréfin falla í flokk
krónubréfa sem koma á gjald-
daga í september 2008.
Það sem af er september hafa
krónubréf að andvirði 22,5 millj-
arðar króna fallið á gjalddaga.
Hinn 20. september næstkom-
andi falla sextíu milljarðar á
gjalddaga.
Útistandandi krónubréf nema
nú um 423 milljörðum króna að
nafnvirði. - jsk
Ekkert lát á
krónubréfaútgáfu
Jón Skaftason
skrifar
Forsvarsmenn Símans kunna að fara fram á undan-
þágu frá samkomulagi sínu við einkavæðingar-
nefnd þess efnis að skrá Símann á hlutabréfa-
markað fyrir áramót, verði aðstæður á markaði
óheppilegar. „Það getur ekki verið tilgangur rík-
isins að selja bréf á lágu verði. Samkomulagið er
gert með það í huga að markaðsaðstæður verði
eðlilegar og nú er það okkar að fylgjast með því,“
segir Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Símans.
Síminn var einkavæddur sumarið 2005 og var
kaupverðið 66,7 milljarðar króna. Kaupandi var
eignarhaldsfélagið Skipti, þar sem Exista fer með
fjörutíu og fimm prósenta eignarhlut og Kaupþing
með þrjátíu prósent. Í kaupsamningnum er ákvæði
þess efnis að kaupendum beri að skrá félagið á
hlutabréfamarkað eigi síðar en í árslok 2007.
Brynjólfur Bjarnason segir undirbúning skrán-
ingarinnar á lokastigi og raunar sé einungis leitað
heppilegrar tímasetningar, enda séu skráningar-
lýsing og nauðsynleg gögn nánast tilbúin. „Það er
allt klárt. Nú erum við bara að fylgjast með mark-
aðnum sem hefur verið fremur órólegur undan-
farið. Við höfum verið að fara í gegnum þetta og
höfum velt fyrir okkur ýmsum dögum. Auðvitað
reynum við að standa við samkomulagið og gera
þetta fyrir áramót, en það verður bara að koma í
ljós.“
Mikill óróleiki hefur verið á hlutabréfamörkuð-
um undanfarnar vikur í kjölfar fregna á vanskil-
um á annars flokks húsnæðislánum í Bandaríkj-
unum. Úrvalsvísitalan hefur hækkað og lækkað
á víxl og stendur nú í rúmum 7.900 stigum eftir
að hafa hæst farið í 9.016 stig í júlí síðastliðnum.
Greiningardeildir bankanna hafa þó ekki vikið
frá spám sínum og telja vísitöluna eiga talsverða
hækkun inni fram að áramótum.
Síminn hefur á árinu ráðist í kaup á tveimur er-
lendum félögum; danska símafélaginu Business
Phone Group og hinu breska Aerofone. Félagið
er langstærsta óskráða eign Existu og er bókfært
virði eignarhlutarins 13,5 milljarðar króna.
Skráningu Símans
kann að verða frestað
Hugsanlegt er að Síminn fari fram á undanþágu frá sam-
komulagi við ríkið um að skrá félagið á markað fyrir ára-
mót. Forstjóri félagsins segir aðeins leitað dagsetningar.