Fréttablaðið - 12.09.2007, Page 4
Óttast er að bankar og fjármála-
fyrirtæki í Evrópu verði fyrir
skelli á næstu tíu dögum en þá
falla allt að 70 milljarða punda
skuldabréf á gjalddaga, jafnvirði
níu þúsund milljarða króna. Svo
gæti farið að bankarnir þyrftu
í versta falli að reiða fram háar
fjárhæðir takist þeim ekki að
endurfjármagna eldri lán.
Greinendur segja það vel
geta hent að bankar og fjármála-
fyrirtæki sjái sér nauðugan kost-
inn að punga út upphæðinni allri
eða hluta hennar þar sem fagfjár-
festar á borð við lífeyrissjóði séu
tregari til að kaupa
skuldabréf banka nú
en áður og vilji bíða
þess að lygni á fjármálamarkaði.
Breska ríkisútvarpið segir
banka og fjármálafyrirtæki
í Evrópu hafa upp á síðkastið
safnað í varasjóði til að eiga fyrir
greiðslu lána sem þessara.
Staðan er talsvert erfiðari á
lánamarkaði nú en áður og hafði
breska blaðið Sunday Times eftir
ónafngreindum heimildamanni
um helgina að ástandið á fjár-
málamarkaði hefði ekki verið
verra í tuttugu ár. - jab
Bankar búa sig
undir skuldadaga
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson
skrifar
Countrywide Financial, eitt stærsta fasteignalána-
fyrirtæki Bandaríkjanna, íhugar að segja upp allt
að tólf þúsund starfsmönnum í hagræðingarskyni
á næstu þremur mánuðum. Þetta jafngildir því að
fimmtungi starfsmanna verði sagt upp. Fjármála-
skýrendur segja þetta fyrstu stóru uppsagnahrin-
una og telja líkur á að allt upp undir 100 smærri fast-
eignalánafyrirtæki í Bandaríkjunum muni segja upp
allt að 100 þúsund starfsmönnum á næstu mánuðum,
að sögn fréttaveitu Bloomberg.
Hagur fasteignalánafyrirtækja á borð við Country-
wide hefur versnað mjög á árinu, ekki síst eftir
að vanskil jukust á vordögum hjá lántökum fyrir-
tækisins með litla greiðslugetu, sem alla jafna fengu
ekki hefðbundin húsnæðislán. Svo illa hafa van-
skilin farið með Countrywide að fjárfestingarbank-
inn Merrill Lynch sagði fyrirtækið ramba á barmi
gjaldþrots seint í ágúst. Vanskil í þessum lánaflokki
ollu niðursveiflu á fjármálamörkuðum víða um heim
um miðjan síðasta mánuð en það hefur aftur leitt til
þess að aðgengi að lánsfé er takmarkað og endur-
fjármögnun fjármálafyrirtækja getur orðið erfið-
ari en ella.
Angelo Mozilo, forstjóri Countrywide, sagði í innan-
hússbréfi sem hann sendi starfsmönnum fyrirtækis-
ins í sl. viku að þrengingarnar nú væru þær verstu
sem hann hefði séð á fasteignamarkaði vestanhafs
um árabil. Þá beindi hann orðum sínum til banda-
ríska seðlabankans og sagði uppsagnir verða færri
bötnuðu aðstæður á fjármálamörkuðum, svo sem
með lækkun stýrivaxta.
Fjárfestar í Bandaríkjunum hafa frá miðju ári
þrýst á seðlabankann að lækka vexti til að bæta úr
stöðunni. Bankinn hefur hins vegar staðið fast á sínu,
að til slíkra ráða grípi hann ekki fyrr en draga taki
úr verðbólgu í Bandaríkjunum. Þrátt fyrir þetta telja
fjármálaskýrendur í Bandaríkjunum yfirgnæfandi
líkur á að seðlabankinn lækki stýrivexti á vaxta-
ákvörðunarfundi sínum í næstu viku til að koma í veg
fyrir að há ávöxtunarkrafa berist út í verðlag. Gerist
það er hætt við að neytendur haldi að sér höndum og
dragi úr einkaneyslu, sem aftur getur leitt til minni
hagvaxtar í Bandaríkjunum á seinni hluta árs.
Countrywide hefur gert ýmislegt til að bæta stöð-
una. Meðal annars hefur það breytt útlánastefnu
sinni og nýtt sér 11,5 milljarða dala lánaheimild. Þá
seldi fyrirtækið hlut til Bank of America fyrir tvo
milljarða dala. Önnur fyrirtæki sem starfa í svip-
uðum útlánageira og Countrywide hafa á sama tíma
orðið gjaldþrota síðan á vordögum en önnur berjast
við að rétta úr kútnum.
Countrywide hefur dregið seglin mikið saman
vegna stöðunnar sem upp er komin og gera stjórn-
endur fyrirtækisins ráð fyrir því að útlán muni drag-
ast saman um allt að 25 prósent á næsta ári.
Uppsagnir hjá Countrywide
Staðan á bandaríska fasteignalánamarkaðnum hefur ekki
verið verri um árabil. Reiknað er með að harðna muni í ári.
12. SEPTEMBER 2007 MIÐVIKUDAGUR4 MARKAÐURINN
F R É T T I R
FL Group hefur gert óformlegt
yfirtökutilboð í alla hluti breska
leikjafyrirtækisins Inspired
Gaming Group. Tilboð FL Group
hljóðar upp á 385 pens á hlut,
en samkvæmt því er markaðs-
virði félagsins um 35,5 milljarð-
ar króna.
Samkvæmt tilkynningu frá FL
Group er allsendis óvíst að form-
legt yfirtökutilboð verði lagt
fram. Hjá FL Group var enginn
fáanlegur til viðtals, enda kveða
yfirtökureglur skýrt á um þag-
mælsku í tilfellum sem þessum.
Inspired Gaming Group er skráð á
AIM-markaðinn í Lundúnum, sem
er markaður sérsniðinn smærri
og millistórum fyrirtækjum.
FL Group á nú þegar 18,9 pró-
senta hlut í félaginu, en FL Group
keypti tíu prósenta hlut á 240,5
pens á hlut í maí síðastliðnum.
Inspired Gaming Group selur
leikjavélar og hugbúnað fyrir af-
þreyingar- og leikjamarkaðinn.
Gengi bréfa í Inspired Gaming
Group stóð í tæpum 370 pensum
á AIM-markaðnum um hádegis-
bil í gær og hafði hækkað um
tæplega hálft prósent það sem af
var degi. Samkvæmt því gengi er
markaðsvirði félagsins um 33,8
milljarðar króna. - jsk
FL vill leikjafyrirtæki
Markaðsvirði Inspired Gaming Group er rúmir
35 milljarðar króna samkvæmt tilboði FL Group.
Forystumenn fjölda verslunar-
fyrirtækja, sem mörg hver eiga
í samkeppni, ætla að samein-
ast um markmið til hagsbóta
fyrir neytendur, starfsfólk sitt
og þjóðina alla. Yfirlýsing um
þetta verður undirrituð í lok
morgunverðarfundar Samtaka
verslunar og þjónustu sem
fram fer á Nordica milli
klukkan átta og tíu í
fyrramálið.
Á fundinum verður
meðal annars fjall-
að um hvað verslunin í
löndunum í kringum okkur geri
í hollustumálum. Guðlaugur Þór
Þórðarson heilbrigðisráðherra
flytur ávarp og Sigurður Jóns-
son, framkvæmdastjóri SVÞ,
flytur erindið „Betri lífshættir
– ábyrgð verslunarinnar.“
- óká
Keppinautar saman
um almannahag
Nafni Greiðslumiðlunar – VISA
Íslands hefur verið breytt í Valitor
ásamt því sem ráðist hefur verið
í áherslu- og skipulagsbreytingar
hjá fyrirtækinu. Ástæða breyt-
inganna er sögð vera vaxandi
starfsemi utan landsteinanna og
aukin breidd í þjónustu fyrir-
tækisins.
Höskuldur H. Ólafsson, for-
stjóri Valitor, segir verið að
styrkja stoðir fyrirtækisins í
flóknara samkeppnisumhverfi.
„Samkeppni hefur farið vaxandi
hér heima. Við erum bara hluti
af þessum heimi þar sem landa-
mæri eru ótt að hverfa.
Til skamms tíma var
það þannig að korta-
fyrirtækin voru land-
fræðilega afmörkuð,
en það hefur breyst og
í því sjáum við tæki-
færi,“ segir Höskuldur
og kveður fyrirtækið
undanfarið hafa verið
að byggja upp viðskipti
með samningum við
kaupmenn erlendis.
„Það hefur gengið ágætlega og
er orðið um tíu prósent af okkar
kortaveltu. En þetta hyggjumst
við margfalda á
næstu misserum.“
Aukinheldur segir
Höskuldur „Greiðslu-
miðlun“ hafa verið
erfitt nafn að nota á
erlendum tungum og
því tilefni þar til endur-
nýjunar. „Við erum
að búa okkur undir
að vera viðræðuhæf-
ari. Þá verður líka
tengingin við VISA
lausari því við erum að vinna
líka með önnur kortafyrirtæki.“
- óká
Greiðslumiðlun verður Valitor
Tíundi hluti starfseminnar er í útlöndum og stefnt á frekari útrás.
EINA VIÐSKIPTABLAÐIÐ SEM ÞÚ ÞARFT
Með Fréttablaðinu alla miðvikudaga Í hádeginu kl 12:12 á Stöð 2 Markaðurinn á Vísi alla daga
VIÐSKIPTAFRÉTTIR
ALLA DAGA VIKUNNAR