Fréttablaðið - 23.09.2007, Blaðsíða 85
Sjónvarpsþáttaröðin Allir litir
hafsins eru kaldir, sem sýnd var í
sjónvarpinu í byrjun árs 2006,
hefur nú verið endurútgefin sem
níutíu mínútna sjónvarpsmynd.
Útgáfan er sérsaklega ætluð
fyrir erlendan markað og er nú
komin út á mynddisk ásamt upp-
runalegu þáttunum þremur.
Sagan segir frá Ara, lögmanni í
Reykjavík, sem er skipaður verj-
andi ungs ógæfumanns sem er
ákærður fyrir morð á öldruðum
listaverkasala. Við fyrstu sýn virð-
ist málið einfalt en þegar systir
sakbornings, Milla, hefur upp á
Ara tekur málið aðra stefnu og
draugar fortíðarinnar ryðjast upp
á yfirborðið.
Allir litir hafsins eru kaldir er
dúndurgóður krimmi. Vel skrifað-
ur og kemur á óvart með óvenju-
legu vali á sökudólgi. Persónuleg
togstreita Ara, sem er í forræðis-
deilu, fléttast vel inn í aðalsögu-
þráð og það er snilldarlausn að
nota soninn, sem Eyvindur Örn
Barðason leikur af mikilli kúnst,
sem eins konar rödd sannleikans.
Hilmir Snær Guðnason er stöð-
ugur í hlutverki Ara. Þórunn Lár-
usdóttir er mjög góð Milla og það
væri gaman að sjá meira af henni
í sjónvarpi eða á hvíta tjaldinu.
Hliðarpersónur eru litríkar þar
sem helst má nefna Jóhönnu Vig-
dísi Arnardóttur sem barnsmóðir
Ara, Ólafía Hrönn Jónsdóttir
kemur með húmorinn sem
húshjálpin Margrét og Jón
Sæmundur Auðarson er algjör-
lega réttur í hlutverk ógæfu-
mannsins Jóa. Þátt hins norska
Björns Floberg hefði þó mátt
skýra örlítið betur, ásamt lögreglu
þar sem sumar persónur urðu
helst til keimlíkar.
Glæpasagnamenning á Íslandi
virðist blómstra sem aldrei fyrr.
Enda ein skemmtilegasta og vin-
sælasta grein bæði innan bók-
mennta og myndrænna miðla.
Allir litir hafsins eru kaldir er til
marks um að innlent leikið sjón-
varpsefni hefur ekkert að óttast.
Góð og vel sögð saga hrífur, sama
hvað tungumálið heitir. Endur-
gerðin er bæði hnitmiðuð og þétt
og vonandi fáum við sem fyrst
fleiri sögur úr sarpi Önnu Th.
Rögnvaldsdóttur.
Glæpir og gamlir draugar
ALLIR LITIR HAFSINS ERU KALDIR
Leikstjóri og handritshöfundur: Anna Th. Rögnvaldsdóttir.
Aðalhlutverk: Hilmir Snær Guðnason, Þórunn Lárusdóttir, Jóhanna Vigdís
Arnardóttir, Eyvindur Örn Barðason, Jón Sæmundur Auðarson, Pétur Einarsson,
Helga Jónsdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Björn Floberg, Benedikt Árnason og
Rúnar Guðbrandsson.