Fréttablaðið - 12.03.2008, Síða 14
12. MARS 2008 MIÐVIKUDAGUR6 ● fréttablaðið ● landbúnaður
Námskeiðinu Stefnumót hönn-
uða og bænda við Listaháskóla
Íslands lýkur á laugardaginn
en á því vinna nemendur í
vöruhönnun með bændum í
heimaframleiðslu.
Þetta er í annað sinn sem nám-
skeiðið er kennt en það teng-
ist verkefninu Beint frá býli.
Verkefnið fól í sér að nemendur
kynntu sér framleiðsluna á því
búi sem þeir unnu með og settu í
samstarfi við bóndann fram hug-
myndir að vöruþróun til að auka
verðgildi og eftirspurn afurðar-
innar.
Kennarar á námskeiðinu voru
vöruhönnuðirnir Guðfinna Mjöll
Magnúsdóttir og Brynhildur Páls-
dóttir en þær þróuðu námskeiðið
í samvinnu við Sigríði Sigurjóns-
dóttur, prófessor við LHÍ. Kristj-
án Björn Þórðarson, grafískur
hönnuður var grafískur leiðbein-
andi. Brynhildur segir námskeið-
ið hafa gengið vel en í haust fékk
verkefnið styrk til þriggja ára
frá Rannís tækniþróunarsjóði.
„Það sem styrkurinn þýðir
fyrir okkur er að nú verða tvö
verkefni valin til að þróa áfram
og þeir nemendur fá vinnu í
sumar við það í samvinnu við
okkur Guðfinnu,“ segir Brynhild-
ur en námskeiðið hefur staðið í
sjö vikur og mun þróunarvinnan
hefjast í júní. Lokavaran verður
svo kynnt í september.
„Vörurnar verða þá búnar að
fara í gegnum allar prófanir hjá
Matís og fullunnar en styrkurinn
gerir okkur kleift að búa til prufu-
eintök og umbúðir fyrir veitinga-
hús eða verslanir. Næstu þrjú
árin munu því koma nýjar mat-
vörur á markaðinn í september
og nemendur fá þessa vinnu yfir
sumarið til að þróa þær.“
Vörur sem komu út úr verkefn-
inu í fyrra fengu talsverða athygli
og segist Brynhildur hafa fundið
fyrir auknum áhuga hjá bændum
þegar farið var að leita eftir sam-
starfsaðilum fyrir þetta ár.
„Fólk sér tækifærin í því að fá
hönnuð með sér í samstarf. Í dag
skiptir það fólk líka máli hvaðan
maturinn kemur og hvernig hann
er unninn. Við þurfum að bera virð-
ingu fyrir hráefninu og hvernig
það er sett fram því íslensk mat-
væli eru hágæðavörur sem þarf
að kynna sem slíkar og tækifærin
liggja þar,“ segir Brynhildur.
Þær vörur sem verða kynntar
á markaðnum á laugardaginn eru
sjávarmarineraðar kartöfluflögur
frá Skarði í Þykkvabæ eftir Guð-
rúnu Björk Jónsdóttur og Helgu
Björg Jónasardóttur, kryddlegnar
gulrófur og söl frá Hrauni í Ölf-
usi eftir Lenku Plivovu, Guðrúnu
Hjörleifsdóttur og Eddu Gylfa-
dóttur; rabarbarakarmella og ra-
barbarasafi frá Löngumýri á
Skeiðum eftir Örnu Rut Þorleifs-
dóttur, Kristínu Þóru Sigurðar-
dóttur og Stefanie Silberman og
sláturterta frá Möðrudal á Fjöll-
um eftir Brynjar Sigurðarson og
Maríu Markovic. Markaðurinn
verður haldinn að Grandagarði 8
frá klukkan 14 til 17 laugardaginn
15. mars. - rat
Hönnuðir og bændur í samstarf
Nemendur í vöruhönnun við LHÍ vinna með bændum í heimaframleiðslu. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Íslenskt hráefni er hágæðavara sem ber
að kynna sem slíka að mati Brynhildar.
Rabarbarasafi er meðal þess sem kom
út úr samstarfi nemenda og bænda á
Löngumýri á Skeiðum.