Fréttablaðið - 04.07.2008, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 04.07.2008, Blaðsíða 58
34 4. júlí 2008 FÖSTUDAGUR sport@frettabladid.is FÓTBOLTI Valskonur spila sinn riðil í Evrópukeppni kvenna í Slóvakíu. Dregið var í gær en auk heimaliðsins Slovan Duslo Sala mætir Valur Cardiff City frá Wales og Maccabi Holon frá Ísrael. Riðillinn verður leikinn 4. til 9. september. Tvö lið komast áfram. Verði Valur annað þeirra mætir það Evrópumeistaraliði Umeå frá Svíþjóð, Ítalíumeisturum Bardelino og einu öðru félagi sem vinnur sinn riðil í undankeppn- inni. Er þá leikið í öðrum riðli en upp úr honum komast tvö félög í átta liða úrslit. - hþh Valskonur í Evrópukeppninni: Langt ferðalag fram undan FÓTBOLTI Íslandsmeistarar Vals keyptu í gær Danann Henrik Eggerts frá Fram. Hann kom til Fram í fyrra og spilaði þá sjö leiki en hann hefur aðeins spilað í 36 mínútur á mótinu í ár vegna meiðsla. „Hann er heill þessa stundina en læknar okkar eiga eftir að skoða hann,“ sagði Willum Þór Þórsson, þjálfari Vals. „Þetta er öflugur leikmaður, af því sem ég hef séð til hans. Hann er teknískur og skapandi,“ sagði þjálfarinn, sem fékk Eggerts nánast beint upp í hendurnar. „Ég fékk símtal frá formannin- um mínum, sem spurði hvort ég hefði áhuga á að fá hann til okkar. Ég kvað svo vera,“ sagði Willum en Framarar þurftu að skera niður í sínum rekstri. Lúðvík Þorgeirsson, formaður meistaraflokksráðs Fram, sagði við Fréttablaðið að ákvörðunin hefði verið afar erfið, en nauðsynleg. „Við erum í bullandi aðhaldi í rekstrinum og þurfum að halda okkur réttum megin við núllið. Óneitanlega réðumst við því á dýrasta leikmanninn,“ sagði Lúðvík. Hann sagði jafnframt að með sölunni ætti Fram að geta bætt við sig leikmanni í staðinn fyrir hinn 32 ára gamla Eggerts. - hþh Valur kaupir Dana frá Fram: Fram hafði ekki efni á Eggerts HANDBOLTI Einar Hólmgeirsson hefur tilkynnt Guðmundi Guðmundssyni landsliðsþjálfara að hann gefi ekki kost á sér í liðið á Ólympíuleikana í sumar. Einar ætlar að setja fjölskylduna í fyrsta sæti en hann á von á barni með konu sinni í byrjun ágúst. Einar segist einnig vera ósáttur við hversu fá tækifæri hann fékk með landsliðinu í undankeppni ÓL og HM. „Ég var bara ósáttur við hvað ég fékk fá tækifæri þennan síðasta mánuð og ég vil miklu frekar vera heima hjá nýfæddu barni en að vera túristi þarna í Peking,“ sagði Einar meðal annars við Vísi í gærkvöld. Hann sagðist þó virða ákvörðun þjálfarans. „Það er greinilega eitthvað sem þeir fíla ekki við mig, en það verður bara að hafa það. Það getur alveg eins einhver annar setið þarna á bekknum eins og ég, þó að ég telji mig nú geta hjálpað liðinu meira en ég hef fengið tækifæri til að sýna,“ sagði Einar. Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari sagði við Fréttablaðið í gær að hann hefði viljað hafa Einar í hópnum sem færi á ÓL. - hþh Einar Hólmgeirsson: Gefur ekki kost á sér til Peking ÓSÁTTUR Einar er ósáttur með hversu fá tækifæri hann fékk í undankeppni EM og ÓL. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR > Þriðja tapið hjá stelpunum Íslenska U-16 ára landsliðið tapaði 2-0 gegn sterku liði Þjóðverja í lokaleik riðla- keppni opna Norðurlandamótsins sem fer fram hér á landi. „Við vissum að þetta yrði erfitt en ég er ánægð með stelpurnar. Þær sýndu að við getum alveg vel staðið í þeim,“ sagði þjálfarinn Kristrún Lilja Daðadóttir. „Við erum að nálgast þessar þjóðir, það er alveg ljóst,“ segir Kristrún en Ísland spilar um sjöunda sætið gegn Svíum á morgun klukkan 11 á ÍR-velli. Ísland lenti í neðsta sæti síns riðils eftir þrjú töp, gegn Dönum og Norðmönnum og Þjóðverjum, sem unnu riðilinn örugglega. „Ég er búinn að bíða lengi eftir þessu marki og það var tilvalið að fá það á þessari stundu,” sagði hinn sautján ára Jóhann Berg Guð- mundsson, leikmaður Breiðabliks. Jóhann skaut Blikum í átta liða úrslit VISA-bikarsins með því að skora eina markið í 1-0 sigri á Val. „Við gjörsamlega yfirspiluðum þá, mættum strax og ákváðum að taka bara á þessu,” sagði Jóhann, sem skoraði beint úr aukaspyrnu í seinni hálfleik, kom boltanum laglega undir varnarvegg Vals og framhjá Kjartani Sturlusyni í markinu. Þetta var hans fyrsta mark fyrir meistaraflokk Breiðabliks. Blikar voru talsvert sterkari í leiknum og héldu boltanum vel. Liðið fékk nokkrar ansi álitlegar sóknir en það virðist vera þannig að Kópa- vogsliðið þurfi fleiri færi en önnur lið til að ná að setja mark. „Við erum búnir að vera ansi lélegir að klára sóknirnar okkar í sumar en þetta hefur verið tekið fyrir á æfingasvæðinu og mun vonandi lagast. 1-0 er alveg nóg,” sagði Jóhann. Valsmenn virkuðu mjög hugmyndasnauðir í sínum aðgerðum og sköpuðu sér fá færi. „Við vissum það að þeir hafa ekki verið að spila vel í sumar og ákváðum því að mæta þeim af krafti. Það tókst.” Þarna voru tveir Akureyrarbanar að eigast við en Blikar unnu KA í 32 liða úrslitum meðan Valsmenn unnu Þór. Bæði lið hafa ollið vonbrigðum í Landsbankadeildinni og fyrir leikinn var bikarinn eini möguleiki þeirra á titli í sumar. Það sást hins vegar ekki á leik Valsliðsins í gær. Sjálfstraust Marels Baldvinssonar virð- ist vera undir frostmarki en þegar hann kemst í færi þessa dagana rennur allt út í sandinn. Hann fékk nokkur dauðafæri í leiknum en vandræðlegt var að sjá hvernig hann fór með þau. Sem betur fer fyrir hann náði þó Jóhann að setja boltann í markið og Marel hefur því getað sofið vært í nótt. - egm JÓHANN BERG GUÐMUNDSSON: SKAUT BREIÐABLIKI Í ÁTTA LIÐA ÚRSLIT VISA-BIKARSINS „Gjörsamlega yfirspiluðum þá“ FÓTBOLTI Sigurganga KR-inga hélt áfram á KR- vellinum í gær þegar þeir slógu nágranna sína í Fram út úr 16 liða úrslitum VISA-bikars karla með 2-0 sigri. Þetta var fimmti sigurleikur KR- liðsins í röð og einnig sá fimmti í röð sem liðið nær að halda marki sínu hreinu. Framarar byrjuðu leikinn mun betur og áttu fínar sóknir í upphafi. En alveg eins og í deildarleiknum á dögunum tókst þeim ekki að nýta ágæt tækifæri í byrjun leiksins og þeir gáfu síðan eftir þegar leið á hálfleikinn. KR-ingurinn Björgólfur Takefusa skoraði í sjöunda leiknum í röð þegar hann kom KR í 1-0 á 31. mínútu. Björgólfur var þá aleinn á markteignum eftir hornspyrnu. „Fyrsta markið var skelfilega klaufalegt því Björgólfur stendur bara aleinn og potar honum inn,“ sagði Reynir Leóssson, fyrirliði Fram, eftir leikinn. Björgólf- ur sjálfur skildi heldur ekkert í varnartilþrifum Framara. „Það var enginn á mér í hornunum í fyrri hálfleik, ekki nema markvörðurinn, og ég hafði því frekar mikinn tíma. Það var kominn maður á mig í seinni,“ sagði Björgólfur. Sjö mínútum síðar var staðan orðin 2-0 eftir að Viktor Bjarki Arnarsson opnaði markareikn- ing sinn fyrir félagið. Seinni hálfleikurinn var síðan eign KR- liðsins að mestu og Framarar voru aldrei líklegir til þess að koma aftur inn í leikinn. „Það fjaraði undan þessu þegar þeir skoruðu og þeir skoruðu aftur eftir horn á okkur. Eins og síðast vorum við með leikinn í höndunum fyrsta hálftímann. Þegar þeir komast á bragðið þá eru þeir sterkir og við þurftum að fara út úr skipulaginu okkar. Það er síðan mjög erfitt að koma til baka á þessum velli,“ sagði Reynir Leósson, fyrirliði Fram. „Ég get ekki hætt að skora meðan liðið er að spila svona vel,“ sagði Björgólfur, sem er að sjálfsögðu ánægður með gengi liðsins. „Það er frábært að ná að halda búrinu hreinu, það hefur verið stígandi í spilamennskunni en núna verður alltaf erfiðara og erfiðara að halda þessu gangandi. Ég vona að liðið haldi áfram að spila svona vel og vonandi verð ég líka sá leikmaður sem nær að setja boltann í markið,“ segir Björgólfur, sem spilar frammi með Guðjóni Baldvinssyni sem átti enn á ný flottan leik þótt hann hafi ekki náð að skora. „Guðjón hefur átt skilið að skora í öllum leikjunum sem hann er búinn að spila í sumar. Hann náði að skora tvö á móti HK og ég er pottþéttur á því að hann á eftir að skora miklu fleiri mörk í sumar. Það er frábært að spila með svona manni sem hleypur allar níutíu mínúturnar og er líka ógnandi allan tímann,” sagði Björgólfur um Guðjón. - óój Björgólfur Takefusa skoraði í sjöunda leiknum í röð og KR sló Fram út úr bikarnum: Gleymdu heitasta manninum í markteignum TAKTAR Ívar Björnsson tekur bakfallsspyrnu í leiknum í gær, umkringdur mönnum. FR ÉTTA B LA Ð IÐ /D A N ÍEL FÓTBOLTI Keflavík vann FH, 3-1, í 16 liða úrslitum VISA-bikars karla í gærkvöld. Leikur bikarmeistara tveggja síðustu ára var opinn og skemmtilegur strax frá fyrstu mínutu en gestirnir í FH gerðu sig líklegri til þess að taka forystu framan af leik. Það voru hins vegar heimamenn sem skoruðu fyrsta markið þegar fyrirliðinn Guðmundur Steinars- son fékk sendingu inn fyrir vörn FH-inga frá Símuni Samuelsen, lék laglega á Daða Lárusson í markinu og afgreiddi boltann snyrtilega í netið. Keflvíkingar efldust til muna við markið á meðan FH-ingar virk- uðu slegnir út af laginu. Símun átti síðan misheppnað skot að marki en boltinn rataði aftur á móti beint í hlaupalínu Guðjóns Árna Antoní- ussonar sem komst einn á móti Daða og skoraði af öryggi. FH-ingar reyndu hvað þeir gátu að minnka muninn en þá skorti áræðni og hungur til að klára dæmið og staðan var 2-0 í hálfleik. Sama var uppi á teningnum í upp- hafi síðari hálfleiks; FH-ingar voru meira með boltann en Kefl- víkingar fengu mun betri mark- tækifæri. FH-ingar færðu sig eðlilega framar á völlinn eftir því sem líða tók á seinni hálfleik í örvæntingar- fullri leit að marki til að opna leik- inn aftur. Keflvíkingar voru hins vegar sem fyrr þéttir varnarlega og gáfu fá færi á sér en voru svo stórhættulegir þegar þeir sóttu hratt upp völlinn. Það dró hins vegar til tíðinda á 88. mínútu þegar FH-ingar áttu þunga sókn að marki Keflavíkur og varamaðurinn Matthías Vil- hjálmsson skoraði af stuttu færi. Það voru hins vegar Keflvíking- ar sem áttu síðasta orðið þegar Redo komst einn inn fyrir vörn FH-inga mínútu síðar og skoraði. Lokatölur urðu því 3-1 og bikar- meistarar FH eru úr leik. „Þegar við spilum eins og við spiluðum í þessum leik, þegar allir eru að leggja sitt af mörkum og berjast, þá náum við góðum úrslit- um, svo einfalt er það. Við verðum bara að gera meira af því,“ sagði Guðmundur Steinarsson kátur í leikslok. Atli Viðar Björnsson, framherji FH, var vitanlega ekki sáttur í leikslok. „Það er náttúrlega fúlt að við séum dottnir út úr bikarnum. Þetta var ekkert frábær leikur hjá okkur en heldur ekkert alslæmur,“ sagði Atli, sem kvað FH-ingana ætla að koma tilbúna á sunnudag- inn þegar liðin mætast að nýju á Sparisjóðsvellinum, þá í deildinni. „Við ætlum að borga fyrir okkur á sunnudaginn, það kemur ekkert annað til greina,“ sagði Atli. omar@frettabladid.is Bikarmeistararnir úr leik Keflvíkingar gerðu sér lítið fyrir og slógu ríkjandi bikarmeistara í FH úr VISA- bikarnum í gær. Leikurinn var opinn og skemmtilegur en lokatölur voru 3-1. ÖRUGGUR Patrik Redo innsiglar hér 3-1 sigur Keflvíkinga með marki á lokamínútunni. FR ÉTTA B LA Ð IÐ /ÞO R G ILS VALUR Fer til Slóveníu í Evrópukeppn- inni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.