Fréttablaðið - 04.07.2008, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 04.07.2008, Blaðsíða 62
38 4. júlí 2008 FÖSTUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 LÁRÉTT 2. snap, 6. kringum, 8. hversu, 9. varkárni, 11. klaki, 12. gljái, 14. málm- húðun, 16. ætíð, 17. þrí, 18. hrópa, 20. bardagi, 21. svall. LÓÐRÉTT 1. veltingur, 3. skammstöfun, 4. sundra, 5. lærir, 7. talsmaður, 10. mál, 13. veiðarfæri, 15. títla, 16. haf, 19. skammstöfun. LAUSN LÁRÉTT: 2. betl, 6. um, 8. hve, 9. gát, 11. ís, 12. glans, 14. plett, 16. sí, 17. trí, 18. æpa, 20. at, 21. rall. LÓÐRÉTT: 1. rugg, 3. eh, 4. tvístra, 5. les, 7. málpípa, 10. tal, 13. net, 15. títa, 16. sær, 19. al. BESTI BITINN Í BÆNUM „Mér finnst gott að taka með mat af veitingastaðnum Ban Thai, enda er hann bara á næsta horni við heimili mitt. Svo finnst mér Eldsmiðju pitsurnar alltaf æðislegar.“ Katrín Á. Johnson dansari „Þetta er með skemmtilegri fund- um. Þegar Gnarrinn kynnir hug- myndirnar. Auðvitað eru ákveðn- ar hugmyndir sem ekki fara í gegn og okkur hefur tekist að veðja á þær réttu,“ segir Petrea Guð- mundsdóttir, framkvæmdastjóri markaðssviðs Símans. Mikil ánægja er ríkjandi innan Símans með viðbrögð við auglýs- ingum sem EnnEmm-auglýsinga- stofan hefur gert fyrir fyrirtækið, bæði „Júdasar-auglýsinguna“ og „Galíleó-auglýsinguna“ en maður- inn á bak við þær er Jón Gnarr. Í nýrri könnun sem gerð var á vegum Capacent, þar sem virkni auglýsinga er mæld, fá þessar auglýsingar frábæra einkunn. „Við erum mjög ánægð með við- brögðin sem fóru langt fram úr markmiðum okkar hvað varðar sölu og markaðsleg viðmið. „Gali- leó“ fær 7,0 í einkunn sem er hæsta einkunn sem fyrirtækja- auglýsing hefur fengið á þessu ári og 3. hæsta einkunn sem auglýs- ing hefur fengið frá því mælingar hófust árið 2002. Þar er verið að auglýsa 0 krónur á netið á kvöldin og salan á netlyklum var 300% umfram áætlanir,“ segir Petrea og þakkar það auglýsingunni. Hún bendir á að aðspurðir voru ekki aðeins ánægðir með auglýsinguna heldur var vitund um hvað var verið að auglýsa há; 92 prósent þeirra sem voru spurðir, á aldrin- um 16-75 ára, vissu hvað var verið að auglýsa. Sem hlýtur, jú, að skipta máli. Nokkurt hugrekki þarf til að stökkva á auglýsingahugmyndir sem eru nýstárlegar í hinu svo- kallaða fyrirtækjaumhverfi. Og Petrea er sú sem veltir því fyrir sér hvaða hugmyndir Jóns fara alla leið. Hún er ánægð með sam- starfið og Jón einnig. Hann reyndar segist vita hvað klukkan slær í þeim efnum núorðið og bjóði Petreu ekki upp á neina vitl- eysu. „Ég er orðinn nokkuð næmur á þetta í dag. Öfugt við þegar við Sigurjón Kjartansson fórum fyrir um 18 árum og töluðum við Sigurð G. Tómasson hjá Rás 2 og vildum gera útvarpsþátt. Hann spurði hvaða nafn við hefðum hugsað okkur á þáttinn og ég sagði blað- skellandi: „Uppi í rassgatinu á þér – alla sunnudaga“. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar,“ segir Jón sem var viss um að „Galíleó-auglýsingin“ myndi heppnast. En að hún yrði svona vel heppnuð er ánægjuleg upp- götvun. Og auglýsingin sé augna- yndi af hálfu Saga film. Miklu skipti að fá umfjöllun meðal almennings og í fjölmiðlum. Og þá sé ekkert endilega málið að hneyksla heldur frekar vekja fólk til umhugsunar. „En maður reyn- ir að fara á brúnina, jújú, það er áhugaverðara að horfa á mann sem gengur á línu yfir Niagara- fossa en mann sem gengur á götu,“ segir Jón Gnarr sem nú hefur verið hjá EnnEmm í um ár. Og lætur vel af. „Það er nota- legra í auglýsingaheimum en grínheimum.“ jakob@frettabladid.is PETREA GUÐMUNDSDÓTTIR: GALÍLEÓ-AUGLÝSINGIN FÆR HÆSTU EINKUNN Konan sem temur Gnarrinn JÓN KYNNIR PETREU HUGMYNDIR SÍNAR Hún er konan sem annaðhvort samþykkir nýstárlegar hugmyndir Jóns eða ekki og fer með þær lengra. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM „Já, það er frábært að fá þetta tækifæri. Grímur Atlason … hann er mikill listamaður og mikill heiður að fá að vera með á svona hátíð,“ segir Geir Ólafsson sem verður ein helsta skrautfjöður Innipúkans – innihátíðar sem haldin verður á Nasa um næstu verslun- armannahelgi. Dagskráin liggur í meginatriðum fyrir. Þetta er sjötti Innipúkinn og til hans var stofnað upphaflega til að vera eins konar mótvægi við gleðipopp og útihátíðir. Þeir listamenn sem fram koma bera dám af því: Hjálmar, Megas, Dr. Spock, Hjaltalín, Benni Hemm Hemm, Dísa, Múgsefjun og svo Grjóthrun í Hólshreppi sem kemst á dagskrá í gegnum bullandi klíku. En þar er bassaleik- arinn téður Grímur bæjarstjóri sem er jafnframt framkvæmdastjóri Innipúkans. Þegar önnur atriði eru skoðuð skýtur Geir Ólafs með sína ágætu big-band tónlist. Grímur segir hins vegar frábært að fá Geir í hópinn, hann verði einn af hápunktum hátíðarinnar og Geir segir þetta misskiling að hann sé eitthvað illa í sveit settur þarna. „Við eigum það sameiginlegt að vera öll tónlistarfólk. Og eigum það sameiginlegt að vera ólík innbyrðis. Það er mikill heiður fyrir mig að koma fram með þessu frábæra listafólki. Tækifæri sem ég get ekki látið fram hjá mér fara,“ segir Geir sem mun flytja eldra efni sem og kynna nýtt sem verður að finna á næstu plötu hans sem heitir Meira. Undirleikur verður af segul- bandi en á útgáfutónleikum 12. september verður öllu til tjaldað með big-bandi og gestum. - jbg Geir Ólafs helsta stjarna Innipúkans GEIR ÓLAFS Mikill heiður að koma fram með þessu frábæra listafólki. Allar íslenskar kvikmyndir verða gefnar út á DVD-diskum á næstu árum, að sögn Friðriks Þórs Frið- rikssonar kvikmyndagerðarmanns. „Það er stefnan. Það tekur kannski tvö, þrjú ár,“ segir hann. Friðrik segir að verið sé að ganga frá mál- inu með Kvikmyndamiðstöð Íslands, enda sé mikilvægt að varð- veita myndir og koma þeim á tölvu- tækt form. Sjö kvikmyndir Friðriks Þórs koma einmitt út á DVD-diskum um þessar mundir. Þrjár þeirra, Englar alheimsins, Djöflaeyjan og Börn náttúrunnar, hafa verið gefnar út áður en hinar fjórar eru að koma út í fyrsta skipti. Þær eru Á köldum klaka, Skytturnar, Bíódagar og Rokk í Reykjavík. „Það eru alltaf túristar hringj- andi heim til mín út af þessum myndum,“ segir Friðrik. Hann segir ýmiss konar fólk hafa hringt eða bankað upp á hjá honum. „Það eru svo margir búnir að sjá þetta og svo hefur þetta ekkert verið til úti heldur, nema á VHS-spólum. Nú er það að breytast og það er mjög ánægjulegt.“ Friðrik þykir vænst um að Bíó- dagar komi nú út á DVD, „því hún byggir á ævi minni. En annars er þetta bara eins og börnin manns, maður gerir ekki upp á milli. Mér þykir líka vænt um myndir þar sem fólk er farið frá manni, eins og margir af þessum gömlu leikurum, Gísli Halldórs, Sigríður Hagalín, Rúrik Haraldsson og Baldvin Hall- dórsson. Myndirnar verða svona minnisvarðar um fólk, ég tek það allavega þannig. Mér þykir vænt um myndirnar út af því, og fólkið lifir í þessum myndum.“ - þeb Allar íslenskar myndir á DVD FRIÐRIK ÞÓR Segir stefnu setta á að koma öllum íslenskum bíómyndum á DVD. Fjórar myndir Friðriks koma út á DVD í fyrsta sinn um þessar mundir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Nýjasta nýtt frá heilsudrottningunni Jónínu Benediktsdóttur er pólskt kollagen sem framleitt er úr sérstakri tegund af fiski sem veiðist í volgu vatni í Póllandi. Um er að ræða kraftaverkatöflur og gel sem yngir, gefur heilbrigt útlit og dregur úr lið- verkjum – eykur heilbrigði hárs og nagla. Sjálf hefur Jónína notað þessa ótrúlegu vöru og segir í bréfi til skjólstæðinga sína, en þeim fjölgar stöðugt, að þrátt fyrir að vera oft spurð að því hafi hún ekki farið í andlits- lyftingu og þakkar það heilsuvörum sínum. Úrval erlendra poppara hefur miðast við eldri kantinn á Íslandi í sumar og þeir sem vilja sjá eitthvað yngra og ferskara verða að bregða sér út fyrir landsteinana. Þetta gera margir, til dæmis Friðrik Ómar sem ætlar að skella sér á tónleika með sjálfum George Michael í Tor- onto um miðjan júlí. Friðrik hefur lengi verið aðdáandi George Michael en aldrei séð hann á tónleikum fyrr. Einar Ágúst er í góðu stuði þessa dagana og hamingjusamlega laus við ruglið sem hann var í um árið. Hann kemur oft og iðulega fram með Vigni í Írafári en hafnaði boði um að slást í hóp gömlu félaga sinna í Skítamóral sem hafa verið að skjóta saman nefjum að undan- förnu. Einar Ágúst ætlar að gera nýja sólóplötu sem kemur út á næsta ári. Sú fyrri kom út fyrir síðustu jól og hét því útúrsnúningavæna nafni, Það er ekkert víst að það klikki. Gaman verður að sjá hvaða titil Einar býður upp á næst. Vonandi ekki Einar Ágúst 2! - jbg/glh FRÉTTIR AF FÓLKI Auglýsingasími – Mest lesið VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8 1. 20 stöðugildi. 2. 130.000 tonn. 3 Ungfónía.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.