Fréttablaðið - 11.07.2008, Síða 63

Fréttablaðið - 11.07.2008, Síða 63
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Bergsteins Sigurðssonar Í dag er föstu dagurinn 11. júlí, 194. dagur ársins. 3.31 13.33 23.34 2.41 13.18 23.52 ÚRVAL ÚTSÝN ~ LÁGMÚLA 4 ~ 108 REYKJAVÍK ~ SÍMI 585 4000 ~ FAX 585 4065 ~ INFO@UU.IS Á sólríkum ströndum Algarve í Portúgal finnur þú paradís sóldýrkenda í landi andstæðna og fjölbreytni; líf og fjör á ströndinni, hljóðlát þorp í fjöllunum þar sem lífið gengur sinn vanagang. Fjölmargir íslenskir ferðalangar þekkja Albufeira í Algarve-héraðinu en nú hefur bæst við nýr áfanga- staður, Lagos; fjörlegur baðstrandabær sem hefur slegið í gegn. Margir góðir golfvellir eru á svæðinu og úrval af vatnasporti. Svo er auðvitað stutt til höfuðborgarinnar Lissabon og Sevilla á Spáni. Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting og íslensk fararstjórn. Verð miðast við að bókað sé á netinu. Ef bókað er á skrifstofu eða símleiðis er bókunargjald 2.500 kr. fyrir hvern farþega. Ferðaskrifstofa Leyfishafi Ferðamálastofu Verðdæmi: 49.171,- Snyrtilegt, fjölskyldurekið íbúðahótel með fallegum og vönd- uðum íbúðum. Sundlaugargarður og góð aðstaða fyrir börnin. Nýlegt íbúðahótel með stórri sundlaug, barnalaug, sturtum, bar, körfuboltavelli, fótboltavelli, veitingastað og góðri sólbaðs- aðstöðu í garðinum. Verðdæmi: 52.254,- m.v. 2 með 2 börn í íbúð m/svefnherb. og stofu í 1 viku 28. ágúst. Verð á mann m.v. tvo fullorðna í stúdíó í 1 viku 28. ágúst: 74.945,- m.v. 2 með 2 börn í íbúð m/svefnherb. og stofu í 1 viku 28. ágúst. Verð á mann m.v. tvo fullorðna í stúdíó í 1 viku 28. ágúst: 61.246,- Ódýrustu sætin bókast fyrst! Brisa Sol - Albufeira Paraiso de Albufeira – Albufeira Verð frá: 49.171 ...ég sá það á visir.is Segir grafhýsi Kleópötru fundið Myndir berast frá Mars Tilfærsla yfir á hægri akrein sviðsett Býst við minni verðbólgu MEST LESIÐ: Nokkur sumur á tíunda ára-tugnum var ég svo heppinn að fá að forframast upp í starf skóflustráks í Pósti og síma. Að húka niðri í skurði með skóflu var ekki ónýtt starf, að minnsta kosti í minningunni. Best var að komast út á land, þá fékk maður dagpeninga og þar kynntist ég líka hinni alkunnu gestrisni bænda. Í eitt skipti vildi hins vegar svo óheppilega til að hæfi- leikar gestgjafans í eldhúsinu héldust ekki í hendur við gest- risnina. VIÐ vorum tveir að legga nýja símalínu að sveitabæ í annarri Barðastrandasýslunni (látum hjá líðast að gefa uppi nákvæmari staðsetningu). Bóndinn á bænum var roskinn piparsveinn en vita- skuld elskulegheitin uppmáluð og heimtaði að við borðuðum með honum hádegismat. Illu heilli var ásýndin á eldhúsborð- inu nóg til að reka hungrið á braut. Á boðstólum voru skað- brenndustu og ólystugustu fiski- bollur sem ég hef nokkru sinni augum litið, bornar fram með hálfhráum kartöflum og gulum djús, sem grunsamleg slikja flaut ofan á. ÚR þessum aðstæðum var hins vegar ekki flúið. Eina ráðið var að láta sem ekkert væri heldur baða matinn í tómatsósu og stappa öllu saman þar til út varð svartrautt mauk og þræla því ofan í sig. Djúsinn sem skoluðum ösku- og kartöflubragðinu niður með bragðaðist næstum eins og vatn en guli liturinn varð eftir í glasinu. Að máltíðinni lokinni var boðið upp á lútsterkt, korg- blandað kaffi, sem bragðaðis hreint ekki eins og nýleg uppá- helling. ÞEGAR við vorum farnir að sjá fram á að geta snúið aftur til vinnu bað sá gamli okkur að hinkra í augnablik. Hann hljóp inn í búr en sneri aftur sigri hrós- andi á svip, með hálffullan, hálf- gagnsæjan plastbrúsa. Hann tók tappann af, rétti brúsann í átt að okkur og spurði hvort við vildum. Við reyndum að malda í móinn en en gerðum okkur fljótt grein fyrir að yrði engu tauti við hann kom- andi og fengum okkur sopa. „Bruggaðirðu þetta sjálfur,“ spurði ég inn á milli þess sem ég saup hveljur. „Nei,“ svaraði karl- inn, fékk sér slurk og gretti sig. „Einhver andskoti sem ég fann í fjörunni.“ Í mat

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.