Fréttablaðið - 16.07.2008, Qupperneq 29
MIÐVIKUDAGUR 16. júlí 2008 21
menning@frettabladid.is
Kl. 20.30
Ítalski píanóleikarinn Sebastiano
Brusco kemur fram á tónleikum í
Laugarborg í Eyjafjarðarsveit í kvöld
kl. 20.30. Þar leikur hann tónlist eftir
rómantísku tónskáldin F. Schubert og
F. Chopin, en efnisskrá þessi er
nokkur nýjung hjá Brusco þar sem að
hann hefur einkum sérhæft sig í að
leika 20. aldar tónlist. Aðgangseyrir
að tónleikunum er 1000 kr.
Nýverið endurheimti bókasafn háskólans í
bresku borginni Durham eina mikilvægustu
eign sína; frumútgáfu af fyrsta safnriti leikrita
Shakespeares. Safnritið kom út árið 1623,
aðeins sjö árum eftir dauða skáldsins, og inni-
heldur öll leikrit hans. Ritið er gjarnan talið
með þeim mikilvægustu sem komið hafa út
á prenti á enskri tungu, enda hefur það verið
notað sem helsta heimild allra seinni útgáfa á
leikritum Shakespeares. Ritin voru uppruna-
lega 750 talsins, en í dag er aðeins vitað um
230 þeirra.
Ritinu var stolið úr bókasafninu í Durham
fyrir tíu árum síðan. Bíræfnir þjófar brutu sýn-
ingarskápa og stálu þaðan fjöldanum öllum
af sjaldgæfum og dýrmætum bókum auk
Shakespeare-ritsins, þar á meðal handritum
frá fjórtándu og fimmtándu öld og útgáfu
af Bjólfskviðu frá nítjándu öld. Ekkert hafði
spurst til bókanna síðan þeim var stolið, en
þær eru allar svo gott sem einstakar og því
líkast til erfitt að koma þeim í verð.
Það bar þó svo við að í síðasta mánuði
kom breskur bókasali, Raymond Scott að
nafni, með Shakespeare-ritið í Folger Shake-
speare-bókasafnið í Washingtonborg í Banda-
ríkjunum til þess að láta meta það. Glöggir
starfsmenn Folger-safnsins sáu undireins að
um ófalsaða útgáfu væri að ræða og voru
ekki lengi að finna út að henni hafði verið
stolið. Ritinu hefur nú verið skilað til háskóla-
bókasafnins í Durham, en Raymond Scott var
handtekinn. Hann ber því statt og stöðugt við
að hafa keypt ritið á markaði á Kúbu, en leit
á heimili hans leiddi í ljós talsverðan fjölda
gamalla bóka sem Scott gat ekki fyllilega gert
grein fyrir. Því miður fundust þó ekki hin ritin
sem á sínum tíma hurfu af Durham-bókasafn-
inu og eru örlög þeirra því enn sem komið er
ráðgáta.
-vþ
Safnrit Shakespeares endurheimt
SHAKESPEARE Eitt merkasta skáld enskrar
tungu, fyrr og síðar.
Söngkonan Guðlaug Dröfn Ólafs-
dóttir heldur tónleika á Norður-
landi ásamt kvintett annað kvöld
og á föstudag. Söngkonan kemur
fram í Ketilhúsi á Akureyri á
morgun kl. 21.30 og á Gamla
Bauk á Húsavík á föstudags-
kvöld, sömuleiðis kl. 21.30.
Með Guðlaugu leika Ásgeir
Ásgeirsson á gítar, Róbert Þór-
hallsson á bassa, Scott McLem-
ore á trommur og Vignir Þór
Stefánsson á píanó. Á efnis-
skránni eru meðal annars lög af
nýlega útkomnum geisladisk
Guðlaugar „Gentle Rain“ sem
hefur hlotið góða dóma gagnrýn-
enda. Diskurinn hefur að geyma
tökulög úr Amerísku söngbók-
inni og lög eftir höfunda eins
Michel LeGrand og Luiz Bonfa.
Einnig má finna poppstandarda í
djössuðum búningi eftir Lennon
og McCartney og Joni Mitchell.
-vþ
Sunginn djass á
Norðurlandi
GUÐLAUG DRÖFN ÓLAFSDÓTTIR Heldur
tónleika á Akureyri og á Húsavík á
næstu dögum.
Mezzósópransöngkonan
Sólveig Samúelsdóttir
og orgelleikarinn Lenka
Mátéova koma fram á
hádegistónleikum í Dóm-
kirkjunni í Reykjavík á
morgun kl. 12.15. Tón-
leikarnir eru hluti af röð
á vegum Félags íslenskra
organleikara og Alþjóð-
legs orgelsumars.
Sólveig er Íslendingur og Lenka
er frá Tékklandi. Listakonurnar
tóku mið af þjóðernum sínum
við samsetningu efniskrár tón-
leikanna og munu því flytja bæði
tékkneska og íslenska tónlist á
tónleikunum. Þeir hefjast á því
að þær flytja fjóra söngva úr
Biblíuljóðum Dvoraks og síðan
leikur Lenka tvö orgelverk eftir
tékkneska barroktónskáldið
Bohuslav Matej Cernohorský.
Seinni hluti tónleikanna einkenn-
ist af íslenskum sönglögum; flutt
verða Sumar, Í dag skein sól og
Vögguvísa eftir Pál Ísólfsson og
Ave María eftir Sigvalda Kalda-
lóns.
„Okkur þótti viðeigandi að
flytja tónlist eftir Pál Ísólfsson á
þessum tónleikum þar sem hann
var á sínum tíma Dómkirkju-
organisti,“ útskýrir Sólveig.
„Svo langaði okkur að taka Ave
Maríu Sigvalda Kaldalóns þar
sem að það tínast oft inn túristar
á tónleika á þessum árstíma og
Ave María slær alltaf í gegn,
enda ákaflega fallegt verk.“
Það er ekki á hverjum degi
sem tékknesk og íslensk tónlist
ómar hlið við hlið. Sólveig segir
enda nokkuð ólíkan hljóminn í
tónlist landanna tveggja.
„Íslenska tónlistin sem við flytj-
um er nokkuð undir áhrifum frá
þjóðlagatónlist, en það er ein-
hver allt annar tónn í tékknesku
tónlistinni. Hún býr yfir ein-
hverjum léttleikandi dansi sem
maður heyrir ekki í íslensku tón-
listinni.“
Þær Sólveig og Lenka hafa
þekkst um nokkurt skeið og hafa
áður komið saman fram á tón-
leikum. „Ég söng fyrst með
Lenku þegar hún var organisti í
Fella- og Hólakirkju. Þá kom-
umst við að því að við vinnum
vel saman og höfum svipaðan
smekk, þannig að ég útiloka ekki
að við munum vinna enn meira
saman í framtíðinni,“ segir Sól-
veig.
vigdis@frettabladid.is
Orgeltónlist og
sönglög í hádegi
LENKA MÁTÉOVÁ OG SÓLVEIG
SÆMUNDSDÓTTIR Koma fram á áhuga-
verðum hádegistónleikum í Dómkirkj-
unni í Reykjavík á morgun.
Sýningar eru nú hafnar á tón-
leikamynd bandaríska listmálar-
ans og leikstjórans Julians
Schnabel frá tónleikum Lou
Reed í New York þar sem hann
flutti verkið Berlin. Berlin kom
út 1973 og fylgdi eftir afar frjó-
sömu tímabili á ferli Reed þar
sem út komu á skömmum tíma
fyrsta sólóplata hans Lou Reed,
Transformer og Berlin. Bob
Ezrin stýrði upptökum á söngvas-
veignum sem segir sögu ungra
hjóna sem eru að festast í neti
neyslu. Safninu var fálega tekið
á sínum tíma, var reyndar sagt
eitt svartasta verk þessa tíma-
bils, einkum í notkun barnaradda
í frásögninni. Á þeim tíma sem
platan kom út segist Schnabel
hafa átt erfitt og Berlin hafi
rímað vel við hugarástand hans.
Þeir Reed hafa verið vinir og
nágrannar um langt árabil.
Schnabel myndskreytti verkið
sér til skemmtunar, en fálætið
sem Berlín mætti hefur leitt til
þess að Reed hefur sjaldan flutt
lög úr safninu fyrr en hin seinni
ár, þótt álit á verkinu hafi aukist
jafnt og þétt eftir því sem árin
liðu og aðdáendur Reed fengu
fjarlægð á efnið. Susan Felman,
listrænn stjórnandi Vöruhúss
heilagrar Önnu í New York, bauð
Reed að flytja verkið í heild
sinni og þá kom upp sú hugmynd
að kvikmynda flutninginn og
sviðsetja hann að hluta. Reed fól
Schnaebel leikstjórnina. Kons-
ertinn var filmaður með fimm
vélum Og fyrr á þessu ári var
myndin frumsýnd vestanhafs og
er nú tekin að dóla milli landa í
Evrópu og er hvarvetna vel
tekið. Tíminn hefur unnið með
verkinu. Staða fíkniefnaneyt-
enda er öllum ljósari og sú
grimmd sem verkið lýsir er
öllum kunn. Ekki er vitað til að
kvikmynd Shnabel hafi verið
keypt hingað til lands, en fyrsta
kvikmyndin sem hann leikstýrði
var myndin Basqiat sem Sigur-
jón Sighvatsson framleiddi.
-pbb
Berlin á tjaldi
KVIKMYNDIR Lou Reed á tónleikum í
Höllinni FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
S
m
á
ra
to
rg
i 3
/ 2
0
1
K
ó
p
a
vo
g
i / s
ím
i: 5
2
2
7
8
6
0
/ m
ánud
aga til föstud
aga 1
1
:0
0
til 1
9
:0
0
/ laugard
aga 1
0
:0
0
til 1
8
:0
0
/ sunnud
aga 1
2
:0
0
til 1
8
:0
0
20%
Útsalan
er haf in
til
afsláttur
70%