Fréttablaðið - 06.12.2008, Side 8

Fréttablaðið - 06.12.2008, Side 8
8 6. desember 2008 LAUGARDAGUR 1 Hvaða íslensk hljómsveit er tilnefnd til Grammy-verðlaun- anna í ár? 2 Hvaða banki setur strangari skilyrði fyrir frystingu Íbúða- lána en aðrir? 3 Hvaða íþróttamaður segir þjálfara sinn ekki gera neitt annað en að öskra? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 90 Umsóknarfrestur er til 15. desember Kynntu þér námið á www.hr.is Námið er einkum ætlað þeim sem hafa lokið BSc-prófi í verkfræði eða tæknifræði með góðum árangri. Nemendur sem hafa annan bakgrunn úr BSc-námi sínu geta útskrifast með meistara- próf á tilteknum sérsviðum verkfræðinnar, s.s. meistarapróf í framkvæmdastjórnun, umferðar- og skipulagsfræðum, heilbrigðisvísindum o.fl. TÆKNI- OG VERKFRÆÐIDEILD HR MEISTARANÁM VIÐ Tækni- og verkfræðideild HR býður meistaranám í • Byggingarverkfræði - Framkvæmdastjórnun - Umferðar- og skipulagsfræðum - Steinsteyputækni - Mannvirkjahönnun • Fjármálaverkfræði • Véla- og rafmagnsverkfræði • Heilbrigðisverkfræði • Líf- og heilbrigðisvísindum • Ákvarðanaverkfræði SIMBABVE, AP Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, segir að löngu sé kominn tími á að Robert Mugabe, forseti í Simbabve, láti af völdum. „Það er löngu kominn tími til að Robert Mugabe fari. Það er augljóst mál,“ sagði Rice í Kaupmannahöfn í gær, „Það voru haldnar sýndarkosningar, og svo kom sýndarsamsteypu- stjórn. Við erum nú að sjá afleiðingarnar af þessu fyrir mannlífið í landinu.“ Rice vísar þarna til þess að heilbrigðisþjónusta landsins er í molum einmitt þegar kólerufar- aldur ríður yfir. Stjórnvöld í Simbabve biðja nú um aðstoð alþjóðasamfélagsins til að útvega lyf og matvæli til að takast á við vandann. - gb Condoleezza Rice: Segir Mugabe til syndanna VERSLUN „Þó það sé kreppa þá þarf fólk að borða og þess þá heldur þarf það að fá ódýran mat,“ segir Jón Garðar Sigurvinsson sem í síðustu viku opnaði Litlu fiskbúð- ina í Miðvangi í Hafnarfirði. Hann segist ekki óttast kreppuna. „Mig vantaði eitthvað að gera,“ segir Jón Garðar sem aldrei áður hefur stundað viðlíka verslunarrekstur. „Ég er sjómað- ur og var á sjó í tuttugu ár, svo ég þekki hráefnið og gæðin,“ segir Jón Garðar. Hann segist þó hafa þegið aðstoð frá vini sínum sem rekið hefur fiskbúð. „Hann var með mér hérna fyrstu dagana til að aðstoða mig og sýna mér hvern- ig þetta virkar,“ segir Jón Garðar. Allan fisk, sem seldur er í Litlu fiskbúðinni kaupir Jón Garðar á fiskmarkaði. Hann segist bjóða upp á lægsta verðið og nefnir sem dæmi línuýsu í raspi á 690 krónur kílóið. Þá býður hann einnig upp á kæsta skötu sem pakkað er í loft- þéttar umbúðir svo skötulyktin gerir ekki vart við sig fyrr en hún er velkomin. Jón Garðar segist nú þegar hafa nóg að gera. „Þetta leggst vel í mig. Fólk er bara ekki búið að fatta að það sé hægt að fá ódýran fisk en það fólk sem komið hefur til mín, kemur aftur,“ segir Jón Garðar. - ovd Hafnfirskur sjómaður óttast ekki kreppuna og opnar fiskbúð: Ódýr fiskur í kreppunni LITLA FISKBÚÐIN Jón Garðar Sigur- vinsson, eigandi Litlu fiskbúðarinnar í Hafnarfirði með væna Skötu fyrir Þorláksmessu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ÍRLAND, AP Brian Cowen, forsætis- ráðherra Írlands, hefur rætt við Gordon Brown um lausn á þeim vanda sem Írar steyptu Evrópu- sambandinu í með því að hafna staðfestingu Lissabon-sáttmálans í þjóðaratkvæðagreiðslu í júní. Í aðdraganda leiðtogafundar ESB, sem fram fer innan skamms, hefur Cowen hitt nokkra lykilleið- toga sambandsins til að ræða hugmyndir Írlandsstjórnar. Þær hafa ekki verið gerðar opinberar en leitt er líkum að því að þær gangi út á að koma eigi til móts við helstu mótbárur Íra með sér- ákvæðum og síðan verði efnt til þjóðaratkvæðagreiðslu á ný. - aa Írland og Lissabonsáttmáli: Cowen kynnir leiðir að lausn EFNAHAGSMÁL „Gengið hækkar vegna þvingaðs framboðs. Reglu- gerð Seðlabankans mælir fyrir um skilaskyldu á gjaldeyri. Nú eru útflytjendur sem hafa fengið tekjur erlendis, og geymt þær þar, að skila þeim heim,“ segir Lilja Móses- dóttir, doktor í Hagfræði við Háskóla Íslands. Gengi krónunnar hækkaði um rúm 11 prósent í gær og átta pró- sent í fyrradag. Fleytingin er þó varin með nokkrum höftum. Því er lýst svo að krónan sé á floti með bæði kút og kork. Lilja gerir ráð fyrir því að gengið lækki aftur á næstunni, „þegar þessi uppsafnaði gjaldeyrir er kom- inn inn í landið. Mér finnst svolítið skrýtið hvernig ríkisstjórnin kynn- ir málið, þar sem flotinu er í raun stýrt.“ Geir H. Haarde forsætisráðherra fagnaði fleytingunni á fundi með fréttamönnum í fyrradag og sagði hana hafa gengið vel. Viðskipti á gjaldeyrismarkaði á fyrsta degi fleytingar námu um milljarði króna. Einkum vegna vöru- og þjónustuviðskipta. Á venjulegum degi undanfarin þrjú ár hefur veltan ekki orðið minni en sex milljarðar, yfirleitt nokkrir tugir. Þórólfur Matthíasson, prófessor bendir á að líklega hafi veltan fyrsta daginn numið um fjórðungi af því „sem ætla mætti að ætti að eiga sér stað á venjulegum degi vegna vöru og þjónustu“. Höftin skýra þetta, segir Þor- varður Tjörvi Ólafsson, hagfræð- ingur í Seðlabanka. „Þegar viðskiptin eru takmörkuð er eðlilegt að það verði nokkrar sveiflur,“ segir hann og segist þá ekki vera að vísa í sveiflur frá degi til dags, heldur yfir lengra tímabil. Sé horft nokkrar vikur fram í tím- ann ættu vöru- og þjónustuviðskipti að styðja við krónuna; við flytjum meira út en inn. Gylfi Magnússon, dósent við Háskóla Íslands, segir varhugavert að lesa of mikið í styrkingu krón- unnar í gær og fyrradag. „Það eru mjög harkaleg gjaldeyrishöft og þátttakendur á innlenda gjaldeyris- markaðnum eru fyrst og fremst þrír bankar í eigu ríkisins, með þann fjórða, Seðlabankann, á hlið- arlínunni, tilbúinn að grípa inn í.“ Það komi ekki í ljós hvort gengið sé raunhæft fyrr en eftir nokkurn tíma. Endanlegt mat á því hversu raunhæft gengið sé fáist svo fyrst þegar gjaldeyrishöftin hafa verið afnumin. - ikh Skilaskylda skýrir hækk- un gengisins Hagfræðingur við Háskóla Íslands telur að skila- skylda útflytjenda á gjaldeyri skýri gengishækkun krónunnar. Gengið lækki aftur. Raunhæft gengi þegar höft verða afnumin, segir dósent. UNNIÐ AÐ ÚTFLUTNINGI Lilja Mósesdóttir hagfræðingur telur að hækkun á gengi krónunnar skýrist af því að útflytjendur séu að skila gjaldeyri heim. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA LILJA MÓSESDÓTTIR GYLFI MAGNÚSSON ÞÓRÓLFUR MATTHÍASSON ÞORVARÐUR TJÖRVI ÓLAFSSON VEISTU SVARIÐ?
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.