Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.12.2008, Qupperneq 46

Fréttablaðið - 06.12.2008, Qupperneq 46
46 6. desember 2008 LAUGARDAGUR V ið finnum fyrir meiri áhuga á íslenskri framleiðslu undan- farið sem hefur án efa hjálpað verkefn- inu. ,” segir Sigríður Sigurjónsdóttir prófessor í vöru- hönnun við Listaháskóla Íslands. Verkefnið umrædda var sett í gang fyrir tveimur arum síðan en þar áttu nemendur í vöruhönnun að kynna sér ákveðinn bónda, þekk- ingu hans, afurðir og framleiðslu- tæki og leggja fram hugmyndir um nýja afurð sem yki virðisauka bóndans og skapaði eftirsóknar- verða upplifun hjá neytandanum„ Hugmyndin er upprunulega sprott- in út frá lestri Draumalands Andra Snæs Magnasonar”, útskýrir Sig- ríður. „ Þar er hann að velta fyrir sér hvers vegna við Íslendingar erum ekki að nýta hönnun meira okkur til framdráttar og af hverju við höfum ekki komið betur til móts við neytendur varðandi óskir þeirra um rekjanleika til dæmis með því að geta keypt afurðir í meira magni beint frá bónda.“ Hugmyndin fékk nafnið „ Stefnu- mót bænda og hönnuða” og er frumkvöðlaverkefni í þágu atvinnulífsins þar sem tvær starfs- téttir eru leiddar saman til að skapa einstaka afurð. „Mikil sókn- artækifæri felast í matvælafram- leiðslu og með markvissri nýsköp- un á hráefninu er hægt að margfalda virðisaukann. Í sér- stöðu og upplifun felast mikil verð- mæti, því er markmið verkefnis- ins að þróa héraðsbundnar matvörur byggðar á hæstu gæðum, rekjanleika og menningarlegri skírskotun,” útskýrir hún. Nýnæmi verkefnisins felst í samstarfi hönn- uða, bænda, matvælafræðinga og matreiðslumanna en Sigríður telur vera á ferðinni mikið frumkvöðla- starf sem muni geta haft verulegt fordæmisgildi í framtíðinni. „Í verkefninu er einni af elstu starfs- téttum landsins, bændum, att saman við eina af yngstu starfs- stéttunum, hönnuðum. Markmið verkefnisins er að þær afurðir sem verða þróaðar á næstu 3 árum skapi efnahagslegan ávinning og verði fyrirmyndir fyrir aðra bænd- ur til að auka vægi nýsköpunar í framleiðslunni í samstarfi við hönnuði. Í litlu samfélagi eins og Íslandi eru fyrirmyndir mjög lík- legar til að hafa margföldunará- hrif og við það styrkist samkeppn- isstaða íslensks landbúnaðar verulega.” Hversdagsmatur í hátíðarbúningi. Það eru matarhönnuðirnir Bryn- hildur Pálsdóttir og Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir sem leiða hóp nemenda hjá LHÍ við þróun verkefnisins, en fjölmargir aðilar koma að verkefninu, meðal ann- ars Matís sem sérhæfir sig í mat- vælarannsóknum, landsliðskokk- arnir Örvar Birgisson og Gunnar Karl kokkur á Vox og svo auðvitað bændurnir.” Fyrstu vörurnar sem voru þróaðar og eru komnar í framleiðslu eru rabbarbarakara- mellur framleiddar í samvinnu við Dorothee Lubecki og Kjartan H. Ágústsson rabarbarabændur á Löngumýri á Skeiðum, og sláturt- ertur framleiddar með bændunum Elísabetu Kristjánsdóttur og Vil- hjálmi Vernharðssyni á Möðrudal. „ Rabbarbarakaramellurnar eru fáanlegar meðal annars í Vínber- inu og Rósum og Súkkulaði hér í Reykjavík og hafa rokið út, enda sérlega ljúffengar” segir Sigríður. „ Og það sem er svo skemmtilegt við sláturtertuna er að hún er hversdagsmatur færður hefur verið í hátíðarbúnin plan. Hún byggir á gömlum grunni en er í takt við nútímann, holl og góð, og falleg í útliti.” Sláturtertan er búin til úr úrvals innmat frá Möðrudal, og í stað fitunnar eru notaðar kart- öflur og rófur. Blóðberg og aðrar kryddjurtir setja sterkan keim á afurðina sem er borin fram í Fjalla- kaffi á Möðrudal og er aðeins fáan- leg þar. „ Gunnar Karl á Vox hjálp- aði okkur svo með útfærslu réttarins en hann er nú borinn fram með berjasósu, rófu og kart- öflustöppu og er snæddur ásamt rauðvíni. Fleiri vörur eru í þróun og Sigríður segir verkefnið, sem er styrkt af Tækniþróunarsjóð og Framleiðnisjóð Landbúnaðarins sé ævintýri líkast. „ Fyrir tveimur árum síðan var erfitt að fá fjár- magn fyrir slík verkefni, þegar efnahagslandslagið var allt öðru- vísi. „Þá var allt á svo stórum skala og hugmyndin þótti ekki gefa nógu mikinn arð. Nú hefur landslagið hinsvegar breyst og það er að sumu leyti jákvætt. Nú eiga til dæmis lítil, falleg verkefni meiri tækifæri.” Í litlu samfélagi eins og Íslandi eru fyrirmyndir mjög líklegar til að hafa margföldunaráhrif og við það styrkist samkeppnisstaða íslensks landbúnaðar verulega. Innblásið af Drau malandinu Hugmynd um nýjar íslenskar landbúnaðarafurðir fæddist í Listaháskóla Íslands. Anna Margrét Björnsson ræddi við Sigríði Sigur- jónsdóttur prófessor í vöruhönnun um frjótt samstarf, sláturtertur og rabbarbarakaramellur. BRAGÐBÆTT MEÐ BLÓÐBERGI Maria Markovic ber fram ljúffenga sláturtertu SLÁTURKÖKUVEISLA Sest að snæðingi á Fjallakaffi í Möðrudal. RABBARBARI RIFJAR UPP MINNINGAR Hugmyndin að baki karamellunum er að rifja upp þegar rabbarbara er stungið ofan í sykur- karið hjá ömmu MYND/ÁSLAUG SNORRADÓTTIR GOURMET-TAKTAR Gunnar Karl bræðir sykurhúð yfir slátur- tertuna SLEGIÐ UPP VEISLU Nemendur í LHÍ sýna afurðirnar. ÆVINTÝRI LÍKAST Sigríður Sigurjónsdóttir prófessor í vöruhönnun segir verkefnið hafa heppnast svona vel vegna þess frábæra fólks sem tekur þátt í því.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.