Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.12.2008, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 18.12.2008, Qupperneq 6
6 18. desember 2008 FIMMTUDAGUR LÖGREGLUMÁL Aðeins fjórir lög- lærðir starfsmenn eru eftir hjá efnahagsbrotadeild ríkislögreglu- stjóra eftir að einum lögfræðingi var sagt upp störfum í sparnaðar- skyni. Ekki fást upplýsingar frá embættinu um aðrar uppsagnir. Eftir uppsögn lögfræðingsins verða starfsmenn efnahagsbrota- deildar þrettán talsins. Það er um þriðjungs fækkun frá árinu 2004 þegar þeir voru nítján talsins. Haraldur Johannessen ríkislög- reglustjóri vildi ekki veita viðtal vegna málsins. Í tölvupósti frá fulltrúa hans kemur fram að emb- ættinu sé ætlað að spara 40 millj- ónir króna á árinu 2009. Til að mæta þeim markmiðum sé meðal annars „ekki ráðið í stöð- ur yfirmanna eða í aðrar stöður sem losna og skorið verulega niður í öðrum rekstrarliðum embættis- ins“, segir í póstinum. Þar er einnig vakin athygli á því að starfsmönnum efnahagsbrota- deildar hafi fjölgað frá stofnun embættis ríkislögreglustjóra árið 1997. Þótt það sé óumdeilt er það einnig staðreynd að starfsmönn- um deildarinnar hefur nú fækkað nokkuð frá því sem mest var. Starfsmenn deildarinnar voru nítján árið 2004, sautján árið 2005 og sextán árið 2006, samkvæmt ársskýrslum ríkislögreglustjóra. Eftir uppsögnina verða þeir þrett- án talsins en að auki er einn starfs- maður í fæðingarorlofi. Í ársskýrslu embættisins frá árinu 2005 kemur fram að hver starfsmaður efnahagsbrotadeild- ar hafi verið með tvöfalt fleiri við- fangsefni á hverjum tíma en starfsmenn hjá sambærilegum deildum í Noregi og Svíþjóð. Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari efnahagsbrota hjá Ríkislögreglustjóra vildi ekki ræða áhrif uppsagnanna þegar eftir því var leitað. Í viðtali við norska sjónvarpsstöð fyrir skömmu sagði hann að lögreglu hefði skort fé til að rannsaka útrásarvíkingana. Björn Bjarnason dómsmálaráð- herra vildi ekki veita Fréttablað- inu viðtal, en svaraði hluta af spurningum blaðsins í tölvupósti. Hann sagðist ekki þekkja mála- vöxtu, ákvarðanirnar væru teknar af embætti ríkislögreglustjóra. Hvarvetna væri þó krafist sparn- aðar í ríkisbúskapnum. Björn benti á að embætti sér- staks saksóknara sem rannsaka á aðdraganda bankahrunsins hafi verið auglýst. Embættið verði öflug viðbót við efnahagsbrota- rannsóknir. brjann@frettabladid.is Fækka lögmönnum á efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóri hefur fækkað lögfræðingum hjá efnahagsbrotadeild emb- ættisins um einn. Fjórir lögfræðingar starfa nú á deildinni. Starfsmenn deildar- innar voru nítján árið 2004 en nú hefur þeim verið fækkað niður í þrettán. BAUGSMÁLIÐ Rannsókn á hinu svokallaða Baugsmáli var fyrirferðarmikið verkefni hjá efnahagsbrotadeild ríkissaksóknara. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA ÍRAK, AP Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, boðar brotthvarf breska hersins frá Írak strax á næsta ári. Á blaðamannafundi í Bagdad sagði Brown að bresku hermennirnir í Írak verði farnir ekki síðar en 31. maí. Bretar höfðu áður sagt að herinn færi snemma í sumar en virðast nú hafa flýtt brotthvarfinu eitthvað. Nouri Al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, sagði á sama blaðamannafundi að Íraksstjórn væri Bretum þakklát fyrir baráttu þeirra gegn einræðisstjórn og hryðjuverkum. „Þeir hafa fært miklar fórnir,“ sagði Al-Maliki. Ríkisstjórn Íraks hefur krafist þess að allt erlent herlið, að því bandaríska undanskildu, fari frá landinu ekki síðar en í júlílok. Bandaríkin gerðu nýverið samning við Íraksstjórn um að bandarískt herlið yrði áfram í landinu næstu þrjú árin. Bretar hafa verið með um 4.000 manna herlið í Írak, en það er fjölmennasta erlenda herliðið í landinu, að því bandaríska undanskildu. Í gær fórust hátt í tuttugu manns og meira en fimmtíu særðust þegar tvær sprengjur sprungu í austanverðri Bagdad. Skammt frá hafði fyrr um daginn önnur sprengja sprungið nálægt bandarískum hermönnum, en sú sprengja varð engum að bana. - gb Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, á blaðamannafundi í Írak: Breski herinn kallaður heim GORDON BROWN OG NOURI AL MALIKI Forsætisráðherrar Bret- lands og Íraks á blaðamannafundi í Bagdad í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP MÓSAMBÍK, AP Þurrkar og hátt matarverð valda hungursneyð í Mósambík, þar sem um það bil hálf milljón manns þarf nú á neyðaraðstoð að halda, segir landbúnaðarráðherra landsins. Talið er að um 450 þúsund manns þurfi á aðstoð að halda strax. Af þeim séu um 150 þúsund í brýnni neyð. Í yfirlýsingu frá landbúnaðarráðuneytinu segir að þessi stóri hópur dragi fram lífið á einni máltíð á dag. Mósambík er á suðausturströnd Afríku. Íbúafjöldi er um 21 milljón manns en landið er tæplega átta sinnum stærra en Ísland. - bj Hungursneyð í Mósambík: Hálf milljón þarf aðstoð AKUREYRI Fjárhagsáætlun Akur- eyrar gerir ráð fyrir eins millj- arðs halla á rekstri bæjarfélags- ins. Þar munar mest um fjármagnskostnað Fasteigna Akureyrarbæjar sem gert er ráð fyrir að verði tæpir tveir milljarð- ar króna á næsta ári. Heildartekj- ur bæjarfélagsins verða 14,6 millj- arðar á næsta ári. Oddvitar allra flokka í bæjar- stjórn unnu áætlunina, ásamt starfsmönnum bæjarins. Gert er ráð fyrir hækkun útsvars úr 13,03 í 13,28 prósent og fasteignagjöld hækka um tíu prósent. Almenn hækkun gjaldskrár verður 10 pró- sent, en gjöld fyrir leikskóla og frístundir hækka ekki. Skorið er niður í almennum rekstri og er sparnaður áætlaður 200 til 300 milljónir króna. Laun bæjarstjóra, bæjarfull- trúa og nefndafólks verða lækkuð um 10 prósent. Ekki verða upp- sagnir meðal bæjarstarfsmanna en dregið verður úr yfirvinnu eins og hægt er. Gert er ráð fyrir lán- töku upp á 3,1 milljarð og afborg- unum lána upp á 2,3 milljarða. Hermann Jón Tómasson, odd- viti Samfylkingarinnar, segir að markmiðið með fjárlagagerð hafi verið að draga úr útgjöldum án þess að segja upp fólki. „Við reyndum að jafna byrðarnar eins og hægt er. Aukinn fjármagns- kostnaður er aðalástæða þessa halla og það er erfitt við það að eiga.“ - kóp Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar lögð fram í bæjarstjórn: Halli næsta árs einn milljarður AKUREYRI Gert er ráð fyrir halla upp á einn milljarð á næsta ári. Hár fjármagns- kostnaður er aðalorsökin. FRÉTTABLAÐIÐ/KK Upplestur úr jólabókum á Háskólatorgi fi mmtudaginn 18. desember kl.16 Hálmstráin Friðrildi, mynta og spörfuglar Lesbíu Magnús Sigurðsson Gott á pakkið Níels Rúnar Gíslason Fluga á vegg Ólafur H. Símonarsson Sólkross Óttar M. Norðfjörð Konur Steinar Bragi Af mér er það helst að frétta... Gunnar Gunnarsson Hola í lífi fyrrverandi golfara Guðmundur Óskarsson Háskólatorgi Sími 570 0777 boksala@boksala.is www.boksala.is - Tilboð á jólabókum - Háma með kaffi og meðlæti - Vefverslun opin allan sólarhringinn www.boksala.is Innbundin hátíðarútgáfa Seldist upp í fyrra! Auglýsingasími – Mest lesið Björn Bjarnason dómsmála- ráðherra undrast áhuga Fréttablaðsins á fækkun starfsmanna efnahagsbrota- deildar. Það kemur fram í tölvupósti þar sem hann svarar hluta af spurningum blaðsins vegna málsins. „Fréttablaðið hefur sem Baugsmiðill tekið því almennt illa undanfarin misseri að unnið sé að rannsókn efnahagsbrota og hefur blaðið og eigendur þess gagnrýnt mig, þegar aflað hefur verið fjár til að styrkja rannsóknir og sak- sókn vegna efnahagsbrota og talið að þeim fjármunum væri betur varið til annarra hluta,“ skrifar Björn. „Hvað veldur sinnaskipt- um blaðsins? Mér finnst það fréttapunkturinn í þessu máli frekar en krafa fjárveit- ingavaldsins um aðhald í ríkisrekstri í viðleitni stjórnvalda til að draga úr skaða bankahrunsins á þjóðarbúið.“ UNDRAST ÁHUGA FRÉTTABLAÐSINS BJÖRN BJARNASON Verða rjúpur á borðum hjá þér um jólin? Já 11,7% Nei 88,3% SPURNING DAGSINS Í DAG: Styrkir þú hjálparstarf fyrir jólin? Segðu skoðun þína á Vísir.is KJÖRKASSINN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.