Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.12.2008, Qupperneq 44

Fréttablaðið - 18.12.2008, Qupperneq 44
 18. DESEMBER 2008 FIMMTUDAGUR10 ● fréttablaðið ● veljum íslenskt Hún nefnir þau „orbin“ sín, en him- intunglin gætu þau líka kallast á ís- lensku. Hér er verið að tala um Ellu Rósinkrans glerlistakonu og hring- laga veggskúlptúra úr endurunnu gleri sem koma úr smiðju hennar. Skúlptúrarnir eru af ýmsum stærðum og útgáfum og þar leika bæði mildir og kraftmiklir litir í myndverkinu. Í september sýndi Ella verk sín í Bretlandi og nú hefur heildsölufyrirtæki fyrir myndlistargallerí og hönnunar- verslanir þar í landi sýnt mikinn áhuga á verkum hennar. „Framtíð- in virðist björt fyrir himintunglin mín,“ segir hún og er að sjálfsögðu himinlifandi. Ella hefur unnið við listsköp- un og hönnun undanfarin átján ár og meðal annars hannað fyrir hina þekktu verslunarkeðju Oasis í Bret- landi. Verk hennar prýða fyrirtæki hérlendis og fjölda heimila. Hún kveðst líka vinna eftir óskum og málum listunnenda sem panta oft hjá henni gler í glugga. „Skúlptúr- arnir hafa heillað listunnendur og fagurkera víða um heim frá því ég hóf að vinna með hið hjúpaða form,“ segir hún og kveðst hafa fengist við fjölbreytt listform í gegnum tíðina, meðal annars margs konar málma. Undanfarin níu ár hafi hún þó ein- beitt sér að glerinu. Minni verk Ellu eru til sölu í Blómaversluninni á horninu, Miklu- braut 68, en stærri verkin eru á vinnustofu hennar í Súðarvogi 26. - gun Glerlist á sporbaug út í heim Stórt glerverk sem bæði hentar í glugga og á vegg. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Sum verkin eru á leið út úr rammanum en önnur halda sig á botni hans. Skúlptúrarnir eru í margs konar formi. Skreytt skál sem fer vel á borði. Nett himintungl á ferð. „Við vorum fimm listaháskóla- nemar sem fengum það verkefni að vinna með litlu fyrirtæki að hönnun og framleiðslu. Við feng- um Örva, sem er starfsþjálfunar- staður fatlaðra, til liðs við okkur, en hönnunin gekk út á að nýta þau tól og tæki sem fyrirtækið á,“ segir Eyþór Jóvinsson listaháskólanemi í arkitektúr og einn þeirra sem hannaði tölvutöskurnar sem nú seljast sem heitar lummur. „Mest af þeirri mótavinnu sem Örvi vinnur sést ekki, svo við ákváðum að auglýsa fyrirtækið með vöru sem fólk tæki eftir. Hönn- un töskunnar er snjöll því ól henn- ar fer hringinn í kringum þykk- ar plasthliðar sem sýna vel hvert smáatriði sem á það er þrykkt. Út- koman er því níðsterkur og fal- legur hlutur,“ segir Eyþór um töskurnar, sem fást í fjórum munstrum. „Í raun má þrykkja á plastið hvaða munst- ur sem er og við höfum verið svolítið í sérpönt- unum. Fyrir sumarið ætlum við svo að færa út kvíarnar og koma með enn fleiri munst- ur og útfærslur,“ segir Eyþór um töskurnar. „Þetta er íslensk hönnun og framleiðsla sem hjálpar fötluð- um einstaklingum að kom- ast á vinnumarkað.“ Töskurnar fást í Reykjavík Bags og Herðubreið. - þlg Óþrjótandi möguleikar Hún er töfrum líkust og hálfgerð milljónabudda, þessi flotta tölvutaska með áþrykktri íslenskri mynt sem og erlendri. Tölvutaska með áþrykktum laufblöðum er fallegur fylgihlutur í námi og starfi, með bakland í góðum málstað, fötluð- um og námsmönnum til handa. Tölvutöskurnar eru samvinnuverkefni listaháskólanema og Örva og fást í mismun- andi munstrum en möguleikarnir eru óþrjótandi. DREPFYNDIÐ ÆVINTÝRI FYRIR UNGLINGA OG FULLORÐNA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.